Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

9.12.2009

Nýjir fulltrúar boðnir velkomnir og gamlir kvaddir

undefined

Fulltrúaráð Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar fundaði í gær, 8. desember. Góð mæting var á fundinn sem hófst með kynningu á félaginu fyrir nýja fulltrúa og síðan var fundur með öllu fulltrúaráðinu þar sem Garðar Hilmarsson formaður fór yfir starfið í haust og starfið framundan. Haukur Ingi Jónasson flutti mjög áhugavert erindi um þjóðfundinn og merkingu hans fyrir stéttarfélög.

 

7.12.2009

Upplestur jólabóka og BSRB kórinn

Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar býður félagsmönnum og vinum þeirra upp á kvöldstund með upplestur úr jólabókum og söng BSRB kórsins fimmtudagskvöldið 10. desember kl. 20 að Grettisgötu 89, 1. hæð. Þórarinn Eldjárn les upp úr bók sinni Alltaf sama sagan og Hlín Agnarsdóttir les upp úr bók sinni Blómin frá Maó. Kór BSRB mun syngja. Boðið verður upp á kakó og smákökur.

undefined

Auglýsing

2.12.2009

Vorönn trúnaðarmannafræðslu BSRB og Félagsmálaskólans

Trúnaðarmannafræðsla BSRB og Félagsmálaskóla alþýðu hefst aftur í janúar. Fyrsta þrep verður haldið 18. - 20 janúar. Annað þrep verður haldið 25. - 27. janúar, þriðja þrep 1. - 3. febrúar, fjórða þrep 8. - 10. febrúar, fimmta þrep er kennt dagana 15. - 17. febrúar og sjötta þrep 1. og 2. mars. Námskeiðin eru í BSRB húsinu, Grettisgötu 89, og eru frá kl. 9 til 16 alla dagana.

26.11.2009

Skerðingu greiðslna í fæðingarorlofi mótmælt

"BSRB krefst þess að sparnaðarkrafa sem hefur verið lögð á fæðingarorlofssjóð verði endurskoðuð. Íslenska fæðingarorlofskerfið hefur vakið mikla athygli hjá öðrum þjóðum og hefur verið horft til þess sem fyrirmynd.  Ef sparnaðarkröfunni verður haldið til streitu er verið að hverfa áratugi aftur í tímann og vega að þeirri jafnréttishugsun sem í kerfinu felst," segir í ályktun stjórnar BSRB um skerðingu greiðslna í fæðingarorlofi.

9.11.2009

Hagsmunafélag faglærðra matreiðslumanna

Á fjölmennum fundi 5. nóv. s.l. var formlega stofnað hagsmunafélag faglærðra matreiðslumanna í grunnskólum Reykjavíkur.
Tilgangur félagsins er að efla samheldni félagsmanna auka færni og þekkingu og stuðla að bættum hag þeirra. Félagar geta þeir talist sem stýra mötuneytum í grunnskólum Reykjavíkur.

26.10.2009

Elín Björg Jónsdóttir formaður BSRB

undefined

Elín Björg Jónsdóttir formaður FOSS var kjörin formaður BSRB með 52,38% atkvæða rétt í þessu eða 132 atkvæði af 252. Hún náði kjöri í fyrstu umferð. Árni Stefán Jónsson formaður SFR fékk 82 atkvæði eða 32,54% og Arna Jakobína Björnsdóttir formaður Kjalar fékk 38 atkvæði eða 15,08%. Snorri Magnússon dormaður Landssambands lögreglumanna dró framboð sitt til baka skömmu áður en atkvæðagreiðsla hófst.

21.10.2009

42. þing BSRB sett

undefined
Ögmundur Jónasson formaður BSRB setti þingið sem sem stendur yfir á Grand hóteli frá 21. okt til 23. október 2009. Ögmundur hættir nú sem formaður BSRB eftir að hafa gegnt því starfi í 21 ár og var honum þökkuð vel unnin störf með dynjandi lófaklappi og reis þingheimur jafnframt úr sætum.

20.10.2009

Yfirlýsingar stjórnvalda þverbrotnar

Stjórn BSRB krefst þess að stjórnvöld virði yfirlýsingar sem þau hafa gefið um að verja störf og kjör láglauna- og meðaltekjufólks. Lítils samræmis virðist gæta milli stefnumörkunar stöðugleikasáttmálans sem ríki og sveitarfélög skrifuðu undir í júní og hvernig niðurskurður opinberra aðila birtist í framkvæmd, segir m.a. í ályktun sem stjórn BSRB sendi frá sér í dag.

19.10.2009

Laust á námskeið í október

Gott að vita námskeiðin eru í boði fyrir félagsmenn SFR og St.Rv. allan veturinn. Í október eru nokkur laus pláss á eftirfarandi námskeið; Hvort ég get - ekki málið, hefst 20. október. Um er að ræða mjög gagnlegt 4ra kvölda námskeiðið sem miðar að því að auka sjálfstraust einstaklinga, gera þá öruggari og ánægðari með sig. Þá er enn laust á Hláturjóga sem verður síðdegis þann 26. október. Þann  29. október hefst svo spennandi og vinsælt enskunámskeið sem hjálpar þátttakendum sem þurfa að tala opinberlega á ensku - en það köllum við Speaking up! Lesa má nánar um Gott að vita námskeiðin hér.

16.10.2009

Að staðið verði við loforð um hækkun persónuafsláttar

Fulltrúaráðsfundur Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar haldinn 14. október 2009 mótmælir harðalega þeim áformum ríkistjórnarinnar um að standa ekki við þau fyrirheit sem gefin voru í tengslum við kjarsamninga á árinu 2008.

Samkvæmt þeim átti persónuafsláttur að hækka um 7.000 kr. umfram verðlag á næstu þrem árum. Í samræmi við þessa yfirlýsingu hækkaði persónuafsláttur  um síðustu áramót  um 2.000 krónur.  Þetta loforð var gefið í ljósi þess að undanfarin mörg ár hafa skattleysismörk ekki fylgt verðlagi og farið sílækkandi að raungildi.

Fulltrúráðsfundurinn mótmælir því harðlega að ríkisstjórnin taki til baka þær örfáu krónur sem lægstu laun fengu úr síðustu kjarasamningum og lögð var áhersla á í yfirlýsingu fyrri ríksisstjórnar.

15.10.2009

Starfslokanámskeið BSRB

Undanfarna vetur hefur BSRB staðið fyrir starfslokanámskeiðum á höfuðborgarsvæðinu og reynst mikill áhugi fyrir þessum námskeiðum. Mikill fjöldi fólks hefur sótt námskeiðin og er látið mjög vel af þeim. Nú hefur verið ákveðið að vera með starfslokanámskeið í BSRB húsinu dagana 30. nóvember til 2. desember. Námskeiðið hefst kl. 16.30 þessa daga og lýkur kl. 19.00. Námskeiðin eru ætluð félögum sem eru farnir að nálgast starfslok eða hafa nýlega lokið störfum. Þátttöku þarf að tilkynna á skrifstofu BSRB í síma 525 8300 fyrir 27. nóvember 2009. Einnig er hægt að tilkynna þátttöku í netfangið bsrb@bsrb.is

13.10.2009

Svikin fyrirheit

Stjórn BSRB mótmælir harðlega þeim áformum núverandi ríkisstjórnar að ætla sér ekki að standa við gefin fyrirheit frá árinu 2008 um að létta skattbyrði hinna tekjulægstu með hækkun persónuafsláttar. Vísast þar til sérstakrar yfirlýsingar ríkisstjórnar Geirs H. Haarde frá 17. febrúar 2008 en sú yfirlýsing var grundvallarforsenda kjarasamninga á almennum og opinberum vinnumarkaði á því ári.

25.9.2009

Lánveitendur axli einnig ábyrgð

Á fyrsta fundi Fulltrúaráðs á þessu hausti fjallaði formaður um stöðuna í dag, hvað hefur verið að gerast í kjarasamningsmálum og það sem framundan er. Gunnar Ingi Jónsson, kjörstjóri skýrði frá kosningum í fulltrúaráð. Árni Stefán Jónsson, starfandi formaður BSRB kom á fundinn og skýrið frá því samráði sem BSRB hefur verið í út af stöðugleikasáttmála aðila vinnumarkaðarins og ríkisstjórnarinnar. Í lok fundar ályktuðu fulltrúar um efnahagsmálin á eftirfarandi leið.

Fulltrúaráð Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar krefst þess að lánveitendur verði látnir taka ábyrgð til jafns við lántakendur á efnahagshruninu. Í ljósi þess verði endurskoðuð sú vísitala, sem verðtrygging lána byggir á.

17.9.2009

Skráning á "Gott að vita" námskeiðin að hefjast

Nú hefur verið opnað fyrir skráningu á námskeið félagsins "Gott að vita" sem eru félagsmönnum að kostnaðarlausu. Nánari lýsing á námskeiðum og fyrirlestrum koma í Fréttabréfi félagsins. Það eru mög áhugaverð námskeið í boði nú á haustönn og eru félagsmenn hvattir til þess að ská sig sem fyrst.

2.9.2009

Ritara- og skrifstofunám

Framvegis og Verzlunarskóli Íslands er í samvinnu með nám fyrir Ritara og skrifstofustjóra. Þetta er blanda af staðbundnu námi og fjarnámi í WebCT kerfi. Námið er á framhaldskólastigi og er upp á 22 einingar. Námið dreifist á þrjár annir. Staðbundnar lotur eru 3x tveir virkir dagar á hverri önn og fjarnámið er stundað þess á milli.  Umsóknarfrestur er til 10. september.

1.9.2009

Kórstarf hefst 1. september

Nú er kórstarf BSRB að hefjast fyrir alvöru og fyrsta æfing vetrarins verður þriðjudaginn 1. september kl. 20:00 í BSRB húsinu, Grettisgötu 89, 1. hæð. Æft verður einu sinni í viku í vetur, á þriðjudagskvöldum, kl. 20:00. Vonandi geta sem flestir mætt á þessa fyrstu æfingu og ekki er verra ef þið bjóðið áhugasömum með ykkur. Kórinn er ætlaður BSRB félögum, vinum og velunnurum. Kórstjóri er Svava Kristín Ingólfsdóttir.

26.8.2009

Suðræn stemning í Munaðarnesi

Nú er tækifæri til að skreppa úr bænum um helgina og leigja sér hús í Munaðarnesi. Spáin fyrir helgina á Vesturlandi er mjög góð og tilvalið að skreppa í berjamó enda berjaspretta með besta móti í ár. Í Kaffi Munaðarnesi verður suðræn stemming á laugardagskvöldið þar sem Delizie Italiane skemmta gestum auk þess sem tilvalið er að snæða góðan kvöldverð fyrir dansinn undefined

24.8.2009

Samkomulag við Strætó samþykkt

Samkomulag um breytingar og framlengingu á kjarasamningi milli St.Rv. og Strætó bs. var samþykkt með 68 atkvæðum eða 70,1%, 24 greiddu atkvæði á móti samkomulaginu eða 24,7%, auðir og ógildir voru 5 eða 5,2%. Atkvæði greiddu 97 eða 51,1% félagsmanna á kjarasamningi við Strætó bs.

17.8.2009

Samkomulag við Strætó bs undirritað

undefined

Á fundi samninganefnda Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og Strætó bs í dag var undirritað samkomulag um breytingar og framlengingu á fyrri kjarasamningi. Samkomulagið er að öllu leyti sambærilegt því samkomulagi sem félagið gerði við Reykjavíkurborg fyrr í sumar, þar sem verið er að tryggja hækkanir lægstu launa. Samningurinn gildir frá 31. ágúst 2009 til 30. nóvember 2010.

Kynningafundir verða haldnir miðvikudaginn 19. ágúst kl. 10 og 20 að Grettisgötu 89, 1. hæð.
Atkvæðagreiðsla um samninginn fer fram á fundunum og einnig  á Hlemmi og í Mjódd fram til 21. ágúst kl. 12.

14.8.2009

Kjarasamningar samþykktir

Atkvæðagreiðsla um breytingar og framlengingu á kjarasamningum við Reykjavíkurborg, Launanefnd sveitarfélaga vegna starfsmanna Akraneskaupstaðar og við ríkissjóð lauk klukkan 16 í gær. Niðurstöður urðu þær að allir samningarnir voru samþykktir. 
Niðurstaða vegna samkomulags við Reykjavíkurborg fór þannig að 60.54% þeirra sem greiddu atkvæði samþykktu en 34,78% voru á móti, 4.68% skiluðu auðu. 
Niðurstaða vegna samkomulags við LN, vegna bæjarstafsmanna á Akranesi,  fór þannig að 62.96% þeirra sem greiddu atkvæði samþykktu en 33.33% voru á móti, 3.7% skiluðu auðu. 
Niðurstaða vegna samkomulags við ríkissjóð fór þannig að 64.71% þeirra sem greiddu atkvæði samþykktu en 29.41% voru á móti, 5.88% skiluðu auðu.

31.7.2009

Atkvæðagreiðsla um kjarasamninga

Nú er félagsmönnum sem eru á kjarasamningum félagsins hjá Reykjavíkurborg, Akraneskaupstaði og hjá ríkinu að fá bréf með kynningu á samkomulagi um framlengingu og breytingar á kjarasamningi við viðsemjendur.  Aðgangskóði að rafrænni atkvæðagreiðslu er fyrir hvern félagsmann. Hvetjum við félagsmenn til þess að greiða atkvæði eftir að þeir hafa kynnt sér samkomulagið.

31.7.2009

Mistök í útsendingu

Þau leiðu mistök urðu í útsendingu á kjörseðlum vegna atkvæðagreiðslu á kjarasamningi við Reykjavíkurborg, að félagsmenn sem starfa hjá Strætó bs fengu boð um að kjósa í rafrænni kosningu um kjarasamninginn sem þeir eiga eiga ekki aðild að. Biðjumst við velvirðingar á þessum mistökum en aðgangi fyrir félagsmenn á kjarasamningi við Strætó, hefur verið lokað.

13.7.2009

Kynningarfundir

Kynning á samkomulagi um breytingar og framlengingu á kjarasamningum verða haldnir mánudaginn 10. ágúst kl. 16:15 að Grettisgötu 89, 1. hæð og 11. ágúst á Akranesi á Suðurgötu 62. Einnig er hægt að kynna sér samningana hér á heimasíðu félagsins. Atkvæðagreiðsla um samkomulagið fer fram á netinu með rafrænum hætti og hefst 22. júlí
kl. 9.00 og lýkur 13. ágúst kl. 16.00.

7.7.2009

Samið við Launanefnd Sveitarfélaga

Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar skrifaði undir nýjan kjarasamning við Launanefnd sveitarfélaga. Samningurinn er mjög á svipuðum nótum og kjarasamningur Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar sem undirritaður var í 5. júlí og samningurinn við ríkið s.l.  föstudag. Megináhersla við gerð samninganna var lögð á að hækka launataxta sem eru undir 180.000 kr. og kemur sú hækkun í þremur áföngum, 1. júlí, 1. nóvember og 1. júní 2010.

6.7.2009

Kjarasamningur við Reykjavíkurborg undirritaður

undefined Á áttunda tímanum var undirritaður kjarasamningur milli Reykjavíkurborgar og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar.
Aðeins er um hækkun lægstu launa að ræða. Laun undir 180 þúsund krónum hækka um 6.750 1. júlí og 1. nóvember og um 6.500 1. júní 2010. Laun upp að 210.000 krónum hækka árið 2009 en launahækkanir fara stiglækkandi eftir því sem launatalan hækkar. Árið 2010 munu laun upp að 225 þúsund krónum hækka. Laun fyrir ofan það munu ekki breytast. Einnig var samið um lágmarkslaun. Kjarasamningurinn verður kynntur fljótlega. Atkvæðagreiðsla verður rafræn, en henni þarf að vera lokið fyrir 14. ágúst.

3.7.2009

Undirritaður kjarasamningur ríkisstarfsmanna innan BSRB

Í dag um klukkan 19 var undirritað samkomulag um framlengingu á kjarasamningum milli fjármálaráðuneytisins og flestra aðildarfélaga innan BSRB, sem semja fyrir ríkisstarfsmenn. Í samkomulaginu er kjarasamningur framlengdur til nóvember 2010. Lögð er áhersla á að hækka lægstu laun. Laun fyrir ofan 210.000 kr. hækka ekki. Viðræður við Reykjavíkurborg og Launanefnd sveitarfélaga heldur áfram.

3.7.2009

Viðræður í gangi

Samninganefndir Reykjavíkurborgar, ríkisstarfsmanna og Akraness eru að störfum hjá Sáttasemjara. Auk samninganefnda St.Rv. og Reykjavíkurborgar eru þar samninganefndir annarra  BSRB-félaga, Eflingar og Starfsgreinasambandsins, ríkisins og Launanefndar sveitarfélaga. Í samningaviðræðunum er nýlegur stöðugleikasáttmáli aðila vinnumarkaðarins, ríkisins og sveitarfélaga lagður til grundvallar, en í honum er gert ráð fyrir að sérstök áhersla verði lögð á að styrkja stöðu þeirra tekjulægstu.  

25.6.2009

Skrifað undir stöðugleikasáttmála

Skrifað var undir stöðugleikasáttmála aðila vinnumarkaðarins og ríkisstjórnarinnar í Þjóðmenningarhúsinu kl. 13:30. Markmið sáttmálans er að stuðla að endurreisn efnahagslífsins. Í framhaldi af undirskriftinni munu opinberir starfsmenn hefja samningaviðræður við ríki og sveitarfélög um nýja kjarasamninga en aðilar á almenna vinnumarkaðinum hafa náð samkomulagi um framlengingu kjarasamninga til haustsins 2010.

25.6.2009

Fréttatilkynning frá BHM, BSRB og KÍ vegna stöðugleikasáttmála

Fréttatilkynning  frá Bandalagi háskólamanna, BSRB og Kennarasambandi Íslands 25. júní 2009


Stöðugleikasáttmáli milli aðila vinnumarkaðarins og ríkisstjórnar Íslands
Samtök opinberra starfsmanna, BHM, KÍ og BSRB hafa tekið þátt í samráði aðila vinnumarkaðarins um kjarasamningagerð og forsendur hennar í ljósi efnahagsþrenginga í landinu. Myndin af umfangi fjárhagsvandans er fyrst nú að skýrast og er mun dekkri en lá fyrir við upphaf vinnunnar. Samtökin hafa  lagt áherslu á að verja störf og kjaraumhverfi félagsmanna. Stöðugleikasáttmáli er mikilvægur grundvöllur uppbyggingar og endurreisnar í landinu jafnframt því að mynda umgjörð fyrir vinnu við gerð kjarasamninga til ársloka 2010. Samtök opinberra starfsmanna telja  nauðsynlegt að mynda enn breiðari grundvöll undir áframhaldandi vinnu með stjórnvöldum við uppbyggingu efnahags, atvinnulífs og kjara í landinu og að í þeirri vinnu verði jafnræði allra aðila tryggt.

F.h. BHM, BSRB og KÍ
Guðlaug Kristjánsdóttir, Árni Stefán Jónsson, Eiríkur Jónsson

24.6.2009

Ólíkar áherslur aðila vinnumarkaðarins

„Það eru fleiri ljón í veginum en ég gerði ráð fyrir í byrjun vikunnar um að aðilar næðu saman," sagði Árni Stefán Jónsson varaformaður BSRB um hvernig þríhliða viðræðum aðila vinnumarkaðarins og ríkisstjórnarinnar um stöðugleikasáttmálann miðaði. Ágreiningurinn snýst fyrst og fremst um hvernig skuli fara með ríkisfjármálin.

22.6.2009

Stöðugleikasáttmálinn að fæðast

Fulltrúar BSRB og aðila vinnumarkaðarins áttu í gær fund með ríkis- stjórninni þar sem hug- myndir um stöðugleika sáttmála voru ræddar áfram. Þessir aðilar hittust svo aftur í morgun. Í dag kl. 14 ætlar stóra samn- inganefndin að hittast og í framhaldi af því er fyrir- hugaður nýr fundur með ríkisstjórninni þar sem stefnt er að því að ganga frá stöðugleikasáttmála.

9.6.2009

Viðræður um stöðugleikasáttmála halda enn áfram

Viðræður um þríhliða stöðugleikasáttmála aðila vinnumarkaðarins og ríkisins hafa haldið áfram og eru málefnahópar um ríkisfjármál, efnahags- og atvinnumál að skila áfangaskýrslum.

Viðræður um launalið samninga hafa legið niðri og er vonast til að þær viðræður hefjist aftur í næstu viku.

 

5.6.2009

Viðræðum um stöðugleikasáttmála haldið áfram

Á fundi fulltrúa heildarsamtaka launamanna, Samtaka atvinnulífsins, ríkisins og sveitarfélaga í morgun var ákveðið að halda áfram viðræðum um gerð stöðugleikasáttmála og kjarasamninga. Fulltrúar BSRB og annara samtaka launafólks á opinbera vinnumarkaðinum hittust síðan á fundi með fulltrúum samninganefndar ríkisins og Launanefndar sveitarfélaga til að ræða launalið kjarasamninga félaganna.

4.6.2009

Viðræður um launalið opinberra starfsmanna halda áfram

Viðræður um þríhliða samkomulag samtaka launafólks, atvinnurekenda og ríkisins eru í ákveðinni óvissu eftir að Seðlabankinn tilkynnti um 1% lækkun stýrivaxta. Vinna í efnahagsnefnd samningsaðila hélt þó áfram eftir hádegi í dag og á morgun hafa verið boðaðir fundir í viðræðunefndinni sem fjallar um launalið opinberra starfsmanna. Þótt viðræður ASÍ og SA séu í uppnámi halda viðræður um launalið kjarasamninga opinberra starfsmanna áfram.

4.6.2009

Dagsferð eftirlaunahóps

undefined

Þann 24. júní verður farin árleg ferð eftirlaunahóps innan St.Rv. Farið verður um uppsveitir Borgarfjarðar. Lagt verður af stað frá Grettisgötu 89 kl. 10 í rútu. Snæddur verður kvöldverður á Fossatúni. Heimkoma er áætluð um kl. 21. Verð í ferðina er 4.000 kr, innifalið er rútuferð, leiðsögn og kvöldverður. Áhugasamir hafi samband við skrifstofu félagsins í síma 525-8330 eða skráir sig hér á heimasíðunni. Frekari upplýsingar á skrifstofu.

 

29.5.2009

Breytingar hafa orðið á dagpeningum á ferðalögum innanlands

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins. Í kjarasamningum sem St.Rv gerir er tekið mð af ákvörðunum ferðakostnaðarnefndar.
Greiðslur verða þannig, gisting og fæði í einn sólarhring kr. 22.132, gisting í einn sólarhring kr. 14.182, fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag, kr. 7.950, fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag, kr. 3.975 .

Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. júní 2009. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 6/2008 dags. 26. september 2008.

12.5.2009

Styrkir í nám til atvinnulausra kvenna

Menningar-og minningarsjóður kvenna auglýsir eftir styrkumsóknum vegna ársins 2009. Að þessu sinni er sjóðurinn opinn fyrir umsóknir frá atvinnulausum  konum 30 ára og eldri sem hófu nám eða hyggja á  nám á árinu 2009.

Um getur verið að ræða háskólanám, nám í framhaldsskóla til stúdentsprófs eða nám á styttri starfsbrautum og verknámsbrautum. Styrkupphæð árið 2009 er ein milljón króna og áskilur stjórn sjóðsins sér rétt til að ákveða fjölda styrkþega. Styrkur verður greiddur út þegar staðfesting á skólavist liggur fyrir.

8.5.2009

Kynningarmyndbönd

Á fræðslusíðu Landsambands lífeyrissjóða eru þrjú ný kynningarmyndbönd sem leitast við að svara spurningum eins og hvers vegna við greiðum í lífeyrissjóð, hvers vegna viðbótarlífeyrissparnaður og hvort íslenska lífeyriskerfið sé eitt af bestu lífeyriskerfi í heimi. Leitið svara á www.gottadvita.is

4.5.2009

Fjölmenni á baráttufundinum á Austurvelli

undefined
Fjölmenni var í kröfugöngu sem fór frá Hlemmi niður á Austurvöll og svo í framhaldinu á útifundinum. Ræðumenn á fundinum voru Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ,  þórveig Þormóðsdóttir formaður Félags starfsmanna stjórnarráðsins og Stefán Rafn Sigurbjörnsson formaður Sambands íslenskra framhaldsskólanema. 200.000 Naglbítar, Lúðrasveit verkalýðsins og Sigtryggur Baldursson og Parabólurnar fluttu tónlist.

4.5.2009

Orlofsuppbót ríkisstarfsmanna

Þar sem starfsmenn ríkisins eru með lausa kjarasamninga hefðu þeir að óbreyttu ekki fengið orlofsuppbót í júní eins og annað launafólk. Fjármálaráðuneytið hefur nú ákveðið að greiða starfsmönnum ríkisins orlofsuppbót "til að stuðla að jafnri stöðu stéttarfélaga í aðdraganda þjóðarsáttar um launaþróun," eins og segir í tilkynningu frá ráðuneytinu.

28.4.2009

Sala hefst 4. maí

Iceland Express flugávísanir verða seldar á skirfstofu félagsins að Grettisgötu 89, 3 hæð eða í síma 525-8330 frá 4. maí 2009. Verð til félagsmanna er 12.500,- sem er að verðgildi kr. 20.000,-Hver félagsmaður getur keypt að hámarki tvær ávísanir. Gildistími flugávísananna er 2 ár frá útgáfudegi.

28.4.2009

Dagskrá 1. maí í Reykjavík

undefined

Á 1. maí verður safnast saman á Hlemmi frá kl. 13:00-13:30. Sigtryggur Baldursson og Parabólurnar verða með slagverkskonsert þar til gangan leggur af stað. Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur hefja göngu niður Laugarveginn kl. 13.30. Á leið göngunnar niður Laugarveginn verða örræður fluttar. Ræðumenn leggja út af ávarpi dagsins. Göngunni lýkur á Austurvelli þar sem baráttufundurinn verður haldinn. Að dagskrá lokinni verður síðan boðið upp á kaffi og meðlæti á Grettisgötunni að venju, þar mun nýi BSRB kórinn syngja nokkur lög undir stjórn Svövu Kristínar Ingólfsdóttur.

14.4.2009

Söngelsk í BSRB sameinumst!

Ákveðið hefur verið að stofna kór BSRB félaga. Um verður að ræða blandaðan kór (konur og karlar) og stjórnandi verður Svava Kristín Ingólfsdóttir. Fyrsta æfing nýja kórsins verður fimmtudaginn 16. apríl kl. 20:00, Grettisgötu 89, 1. hæð.

3.4.2009

Námskeið í vistakstri dagana 24. mars – 2. apríl.

 Námskeið í vistakstri fyrir bílstjóra sorphirðu Reykjavíkurborgar lauk í gær 2. apríl. Markmiðið með námskeiðinu er að draga úr losun mengandi efna við akstur, spara kostnað og auka umferðaröryggi. Vistakstur er einföld aðferð til að draga úr loftmengandi útblæstri úr bílum. Mengun andrúmsloftsins af mannavöldum er talin vera ein mesta umhverfisvá sem ógnar lífinu á jörðinni.

27.3.2009

Umsóknarfresti í orlofshús á sumarorlofstíma lokið.

Frestur til þess að sækja um orlofshús og íbúðir félagsins á sumarorlofstíma var til 3. apríl. Úthlutað verður fljólega eftir páska og niðurstöðu kynntar þá.

26.3.2009

Laun lækka hjá Orkuveitunni

Á starfmannafundi í gær greindi forstjóri, Hjörleifur B. Kvaran frá aðhaldsaðgerðum Orkuveitunnar. Þar kom meðal annars fram að laun yfir 300 þúsund krónum munu lækka. Frestað hefur verið þeim launahækkunum sem áttu að koma til félagsmanna 1. mars sl. en það verður endurskoðað í júní. Fram kom að þetta væri tímabundin ákvörðun.

20.3.2009

Aðalfundur St.Rv.

undefined

Aðalfundur Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar var haldinn í gær, fimmtudaginn 19. mars kl. 17,  óvenju fjölmennt var á fundinum.
Formaður fór yfir ákveðna þætti í ársskýrslu, sem hafði verið send öllum félagsmönnum í Fréttabréfi. Fjármálastjóri félagsins, Ása Clausen skýrði reikninga fyrir hönd gjaldkera Víglundar Rúnars Jónssonar. Tekin var ákvörðun um óbreytt árgjöld félagsmanna. Kjörstjóri kynnti kosningarúrslit til stjórnar. Aðalfundur ályktar um efnahagshrunið og kjaraskerðingar.

18.3.2009

Opinn fundur um Evrópusambandið

undefined

Opinn fundur verður um Evrópusambandið á vegum BSRB föstudaginn 20. mars kl. 14 - 16 í BSRB - húsinu Grettisgötu 89. Á fundinum verður fjallað um stefnu ESB í sjávarútvegi og iðnaði. Framsögu hafa Aðalsteinn Leifsson lektor við Háskólann í Reykjavík og Bjarni Már Gylfason hagfræðingur Samtaka iðnaðarins.


 

11.3.2009

Fréttabréf og félagsskírteini

Nú fer fréttabréf félagsins með ársskýrslu og öllum upplýsingum um orlofshúsin í sumar að berast félagsmönnum á næstu dögum. Meðfylgjandi verður félagsskírteini og upplýsingar um þá þjónustu og fyrirtæki sem veita félagsmönnum afslátt. undefined

5.3.2009

Með jafnrétti að leiðarljósi -uppbygging í allra þágu

Mánudaginn 9. mars verður hádegisfundur frá kl. 11:45- 13 á Grand hótel Reykjavík - Hvammi á vegum ASÍ, BSRB, BHM, KÍ, SSF, Jafnréttisráðs og Jafnréttissofu. Silja Bára Ómarsdóttir, Bryndís Ísfold Hlöðversóttir og Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir verða með erindi. Fundarstjóri verður Þorveig Þormóðsdóttir.  Sjá dagskrá. undefined

2.3.2009

Morgunverðarfundir

Í marsmánuði heldur Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar 5 morgunverðarfundi. Félagsmönnum verður boðið á fundina með þeim hætti, að annars vegar verður haft samband við félasmenn sem eru valdir af handahófi og þeim boðið á fundina. Hins vegar bjóðum við áhugasömum félagsmönnum að skrá sig hér. Markmiðið með fundunum er að auka samband við félagsmenn og stuðla að meiri samheldni og virkni innan félagsins.

2.3.2009

Spurt og svarað um uppsagnir o.fl.

Hvenær hefst uppsagnarfrestur? Hvað er hann langur? Hver er réttur starfsmanna varðandi launalækkun? Má segja upp fastri yfirvinnu? Þetta eru örfáar spurningar sem starfsmenn BSRB hafa þurft að svara ítrekað að undanförnu vegna aðhaldsaðgerða og niðurskurðar stofnana og fyrirtækja. Sonja Ýr Þorbergsdóttir lögfræðingur BSRB hefur tekið saman ýmsar upplýsingar um réttarstöðu starfsmanna á vinnumarkaði þar sem ofangreindum spurningum og fleirum er svarað.

Samantektin skiptist í eftirtalda kafla: Almennt um uppsagnir, aðilaskipti að fyrirtækjum, atvinnuleysistryggingar og Ábyrgðasjóður launa.

Sjá samantektina

24.2.2009

AÐALFUNDUR

Aðalfundur Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar verður haldinn fimmtudaginn 19. mars kl. 17 að Grettisgötu 89, 1. hæð.
Við undirbúning aðalfundar 2009, sem  hafði verið ákveðinn fimmtudaginn 5. mars, kom í ljós að nýtt bókhaldskerfi, sem félög innan BSRB tóku í notkun á nýliðnu ári skilar ekki upplýsingum til ársuppgjörs fullkomlega.
Úrbætur eru í gangi hjá söluaðila kerfisins. Til að allrar varúðar sé gætt hefur stjórn St.Rv. ákveðið, í samráði við löggilta endurskoðendur, sem setja upp reikningana  að fresta aðalfundi félagsins um tvær vikur.
Aðalfundur er opinn öllum félagsmönnum og eru þeir hvattir til þess að mæta. Á dagskrá fundar eru venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt 13 gr. laga og önnur mál.

18.2.2009

Ísland og Evrópusambandið

undefined BSRB stendur fyrir opnum fundi um Evrópusambandið föstudaginn 20. febrúar kl. 14 - 16 í BSRB - húsinu Grettisgötu 89. Á fundinum verður fjallað um stöðu smáríkja innan ESB og afstöðu sambandsins til landbúnaðarmála. Framsögumenn eru Baldur Þórhallsson, Jean Monnet prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands og Sigurður Jóhannesson sérfræðingur við Hagfræðistofnun Háskóla Íslands. Fundarstjóri er Helga Jónsdóttir framkvæmdastjóri BSRB. Að loknum framsöguerindum verður opnað fyrir spurningar úr sal. Fundurinn er öllum opinn.

2.2.2009

Borgarstjóri á fulltrúaráðsfundi St.Rv.

Borgarstjóri Hanna Birna Kristjánsdóttir var gestur á fundi fulltrúaráðs Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar í dag, en hún mætti þar ásamt mannauðsstjóra borgarinnar Halli Páli Jónssyni og Magnúsi Þór Gylfasyni aðstoðarmanni sínum. Hanna Birna fór yfir þær ráðstafanir sem borgin hefur gripið til undanfarið til þess að mæta þeim aðstæðum sem blasa við vegna samdráttar á tekjum Reykjavíkurborgar. Fjölmennt var á fundinum og borgarstjóri sat lengi fyrir svörum frá fulltrúum félagsins á góðum fundi þar sem fram fór hreinskilin umræða.   

undefined

30.1.2009

Formaður BSRB dregur sig tímabundið í hlé

Ögmundur Jónasson formaður BSRB skýrði frá því á stjórnarfundi bandalagsins að hann óskaði eftir heimild stjórnar til að draga sig í hlé frá störfum fyrir BSRB fram yfir næstu alþingiskosningar þar sem hann er í þann veginn að taka sæti í ríkisstjórn sem ráðherra.

Fyrsti varaformaður BSRB er Árni Stefán Jónsson og Elín Björg Jónsdóttir er annar varaformaður. Þau munu verða í forsvari fyrir BSRB í fjarveru Ögmundar.

undefined

29.1.2009

Gott að vita

St.Rv. og SFR munu nú sem fyrr bjóða sameiginlega upp á námskeið og fyrirlestra fyrir félagsmenn nú á vorönn 2009. Fræðslunefndir félaganna hafa sett niður dagskrá vorsins stefnan sett á að bjóða upp á fjölbreytta fræðslu, bæði stutta og lengri, á mismunandi tíma svo flestir finni eitthvað við sitt hæfi.

29.1.2009

Breytingar á yfirvinnu hjá Reykjavíkurborg

Vegna ákvarðana Reykjavíkurborgar um uppsögn á yfirvinnu hefur Garðar Hilmarson formaður St.Rv. sent borgarstjóra, mannauðsstjóra Reykjavíkurborgar, fulltrúum og trúnaðarmönnum félagsins eftirfarandi bréf.

28.1.2009

Orðsending til félaga Styrktarsjóðs BSRB

Frá og með 1. janúar 2009 mun Styrktarsjóður BSRB greiða styrk til félagsmanna vegna fæðingarorlofs. Umsækjendur þurfa sjálfir að sækja um styrkinn.

Með umsókn þarf að fylgja fæðingarvottorð frá Þjóðskrá, Borgartúni 24, 105 Reykjavík. Einnig þarf að skila inn vottorði launagreiðanda um ráðningarkjör sem útfyllist af vinnuveitanda. Styrkurinn er kr. 170.000,- miðað við fullt starf. Staðgreiðsla er dregin af styrknum.

Eyðublöðin er hægt að nálgast á heimasíðu sjóðsins www.styrktarsjodur.bsrb.is

 

27.1.2009

Ályktun

Fulltrúar og trúnaðarmenn á menningarstofnunum Reykjavíkurborgar innan Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar samþykktu ályktun á fundi sínum 23. janúar sl. þar sem þeir lýsa áhyggjum sínum á velferð og líðan samstarfsmanna ásamt atvinnuöryggi og launamálum þeirra. Þeir skora á yfirmenn Reykjavíkurborgar og stjórn St.Rv. Sjá nánar ályktun í heild sinni.

22.1.2009

Ályktun stjórnarfundar

Eftirfarandi ályktun var samþykkt á stjórnarfundi  Starfsmannafélags Reykjavíkuborgar 21. janúar 2009. Þar gagnrýnir hún harðlega áform Reykjavíkurborgar um að segja upp yfirvinnu sem bundin er í fastlauna- og ráðningarsamningum.

9.1.2009

Jafnréttisþing 16. janúar

Félags- og tryggingamálaráðuneytið og Jafnréttisráð boða til jafnréttisþings 16. janúar næstkomandi að Hótel Nordica klukkan 9 til 17. Þetta er gert í samræmi við nýsamþykkt lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Þingið er öllum opið en þáttakendur verða að skrá sig fyrirfram og lýkur skráningu 13. janúar.

Á jafnréttisþinginu verður fjallað um fjölmargar hliðar jafnréttisbaráttunnar, svo sem launajafnrétti kynjanna, kynbundið ofbeldi, jafnrétti í atvinnulífi, karla og jafnrétti og jafnréttisstarf í skólum. Auk þess verða drög að framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar í jafnréttismálum kynnt á þinginu, en tilgangur þess er meðal annars að gefa almenningi og fulltrúum stofnana, fyrirtækja og félagasamtaka kost á að skila inn hugmyndum og ábendingum vegna framkvæmdaáætlunarinnar.

Þingið verður öllum opið, en samkvæmt lögum skal sérstaklega boða til þess alþingismenn, fulltrúa stofnana ríkis og sveitarfélaga, aðila vinnumarkaðar og fulltrúa frjálsra félagasamtaka sem hafa jafnréttismál á stefnuskrá sinni.

Sjá dagskrá jafnréttisþings á heimasíðu ráðuneytisins.

8.1.2009

Líflegur fulltrúaráðsfundur

Í dag var haldinn fundur í fulltrúaráði Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Gestur á fundinum var Ögmundur Jónasson formaður BSRB sem fjallaði meðal annars um viðræður um þjóðarsátt og á hverju þær þyrftu að byggja. Einnig fjallaði hann um endurhæfingarsjóð sem verið er að setja á laggirnar. Fjölmargar spurningar og vangaveltur komu frá fulltrúum en óvenju margir tóku til máls og sköpuðust hinar fjörugstu umræður og ekki vantaði hugmyndirnar. Forusta félagsins var hvött til aðgerða og hugmyndir komu upp um að mynda hópa innan félagsins til þess að styðja við forystu og koma með hugmyndir að aðgerðum.

2.1.2009

Samningur vegna félagsmanna hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins

Kosið hefur verið um breytingar á kjarasamning vegna félagsmanna St.Rv. hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.

Kosningu er lokið og atkvæði hafa verið talin, á kjörskrá voru 6 og greiddu þeir allir atkvæði.

  • Já sögðu 6 eða 100%,
  • nei sagði enginn.
  • Auðir seðlar og ógildir voru engir.

Samningurinn telst því samþykktur af hálfu Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English