Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

30.1.2009

Formaður BSRB dregur sig tímabundið í hlé

Ögmundur Jónasson formaður BSRB skýrði frá því á stjórnarfundi bandalagsins að hann óskaði eftir heimild stjórnar til að draga sig í hlé frá störfum fyrir BSRB fram yfir næstu alþingiskosningar þar sem hann er í þann veginn að taka sæti í ríkisstjórn sem ráðherra.

Fyrsti varaformaður BSRB er Árni Stefán Jónsson og Elín Björg Jónsdóttir er annar varaformaður. Þau munu verða í forsvari fyrir BSRB í fjarveru Ögmundar.

undefined

29.1.2009

Gott að vita

St.Rv. og SFR munu nú sem fyrr bjóða sameiginlega upp á námskeið og fyrirlestra fyrir félagsmenn nú á vorönn 2009. Fræðslunefndir félaganna hafa sett niður dagskrá vorsins stefnan sett á að bjóða upp á fjölbreytta fræðslu, bæði stutta og lengri, á mismunandi tíma svo flestir finni eitthvað við sitt hæfi.

29.1.2009

Breytingar á yfirvinnu hjá Reykjavíkurborg

Vegna ákvarðana Reykjavíkurborgar um uppsögn á yfirvinnu hefur Garðar Hilmarson formaður St.Rv. sent borgarstjóra, mannauðsstjóra Reykjavíkurborgar, fulltrúum og trúnaðarmönnum félagsins eftirfarandi bréf.

28.1.2009

Orðsending til félaga Styrktarsjóðs BSRB

Frá og með 1. janúar 2009 mun Styrktarsjóður BSRB greiða styrk til félagsmanna vegna fæðingarorlofs. Umsækjendur þurfa sjálfir að sækja um styrkinn.

Með umsókn þarf að fylgja fæðingarvottorð frá Þjóðskrá, Borgartúni 24, 105 Reykjavík. Einnig þarf að skila inn vottorði launagreiðanda um ráðningarkjör sem útfyllist af vinnuveitanda. Styrkurinn er kr. 170.000,- miðað við fullt starf. Staðgreiðsla er dregin af styrknum.

Eyðublöðin er hægt að nálgast á heimasíðu sjóðsins www.styrktarsjodur.bsrb.is

 

27.1.2009

Ályktun

Fulltrúar og trúnaðarmenn á menningarstofnunum Reykjavíkurborgar innan Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar samþykktu ályktun á fundi sínum 23. janúar sl. þar sem þeir lýsa áhyggjum sínum á velferð og líðan samstarfsmanna ásamt atvinnuöryggi og launamálum þeirra. Þeir skora á yfirmenn Reykjavíkurborgar og stjórn St.Rv. Sjá nánar ályktun í heild sinni.

22.1.2009

Ályktun stjórnarfundar

Eftirfarandi ályktun var samþykkt á stjórnarfundi  Starfsmannafélags Reykjavíkuborgar 21. janúar 2009. Þar gagnrýnir hún harðlega áform Reykjavíkurborgar um að segja upp yfirvinnu sem bundin er í fastlauna- og ráðningarsamningum.

9.1.2009

Jafnréttisþing 16. janúar

Félags- og tryggingamálaráðuneytið og Jafnréttisráð boða til jafnréttisþings 16. janúar næstkomandi að Hótel Nordica klukkan 9 til 17. Þetta er gert í samræmi við nýsamþykkt lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Þingið er öllum opið en þáttakendur verða að skrá sig fyrirfram og lýkur skráningu 13. janúar.

Á jafnréttisþinginu verður fjallað um fjölmargar hliðar jafnréttisbaráttunnar, svo sem launajafnrétti kynjanna, kynbundið ofbeldi, jafnrétti í atvinnulífi, karla og jafnrétti og jafnréttisstarf í skólum. Auk þess verða drög að framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar í jafnréttismálum kynnt á þinginu, en tilgangur þess er meðal annars að gefa almenningi og fulltrúum stofnana, fyrirtækja og félagasamtaka kost á að skila inn hugmyndum og ábendingum vegna framkvæmdaáætlunarinnar.

Þingið verður öllum opið, en samkvæmt lögum skal sérstaklega boða til þess alþingismenn, fulltrúa stofnana ríkis og sveitarfélaga, aðila vinnumarkaðar og fulltrúa frjálsra félagasamtaka sem hafa jafnréttismál á stefnuskrá sinni.

Sjá dagskrá jafnréttisþings á heimasíðu ráðuneytisins.

8.1.2009

Líflegur fulltrúaráðsfundur

Í dag var haldinn fundur í fulltrúaráði Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Gestur á fundinum var Ögmundur Jónasson formaður BSRB sem fjallaði meðal annars um viðræður um þjóðarsátt og á hverju þær þyrftu að byggja. Einnig fjallaði hann um endurhæfingarsjóð sem verið er að setja á laggirnar. Fjölmargar spurningar og vangaveltur komu frá fulltrúum en óvenju margir tóku til máls og sköpuðust hinar fjörugstu umræður og ekki vantaði hugmyndirnar. Forusta félagsins var hvött til aðgerða og hugmyndir komu upp um að mynda hópa innan félagsins til þess að styðja við forystu og koma með hugmyndir að aðgerðum.

2.1.2009

Samningur vegna félagsmanna hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins

Kosið hefur verið um breytingar á kjarasamning vegna félagsmanna St.Rv. hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.

Kosningu er lokið og atkvæði hafa verið talin, á kjörskrá voru 6 og greiddu þeir allir atkvæði.

  • Já sögðu 6 eða 100%,
  • nei sagði enginn.
  • Auðir seðlar og ógildir voru engir.

Samningurinn telst því samþykktur af hálfu Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar

Námskeið

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English