
Elín Björg Jónsdóttir formaður FOSS var kjörin formaður BSRB með 52,38% atkvæða rétt í þessu eða 132 atkvæði af 252. Hún náði kjöri í fyrstu umferð. Árni Stefán Jónsson formaður SFR fékk 82 atkvæði eða 32,54% og Arna Jakobína Björnsdóttir formaður Kjalar fékk 38 atkvæði eða 15,08%. Snorri Magnússon dormaður Landssambands lögreglumanna dró framboð sitt til baka skömmu áður en atkvæðagreiðsla hófst.

Ögmundur Jónasson formaður BSRB setti þingið sem sem stendur yfir á Grand hóteli frá 21. okt til 23. október 2009. Ögmundur hættir nú sem formaður BSRB eftir að hafa gegnt því starfi í 21 ár og var honum þökkuð vel unnin störf með dynjandi lófaklappi og reis þingheimur jafnframt úr sætum.
Fulltrúaráðsfundur Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar haldinn 14. október 2009 mótmælir harðalega þeim áformum ríkistjórnarinnar um að standa ekki við þau fyrirheit sem gefin voru í tengslum við kjarsamninga á árinu 2008.
Samkvæmt þeim átti persónuafsláttur að hækka um 7.000 kr. umfram verðlag á næstu þrem árum. Í samræmi við þessa yfirlýsingu hækkaði persónuafsláttur um síðustu áramót um 2.000 krónur. Þetta loforð var gefið í ljósi þess að undanfarin mörg ár hafa skattleysismörk ekki fylgt verðlagi og farið sílækkandi að raungildi.
Fulltrúráðsfundurinn mótmælir því harðlega að ríkisstjórnin taki til baka þær örfáu krónur sem lægstu laun fengu úr síðustu kjarasamningum og lögð var áhersla á í yfirlýsingu fyrri ríksisstjórnar.
Undanfarna vetur hefur BSRB staðið fyrir starfslokanámskeiðum á höfuðborgarsvæðinu og reynst mikill áhugi fyrir þessum námskeiðum. Mikill fjöldi fólks hefur sótt námskeiðin og er látið mjög vel af þeim. Nú hefur verið ákveðið að vera með starfslokanámskeið í BSRB húsinu dagana 30. nóvember til 2. desember. Námskeiðið hefst kl. 16.30 þessa daga og lýkur kl. 19.00. Námskeiðin eru ætluð félögum sem eru farnir að nálgast starfslok eða hafa nýlega lokið störfum. Þátttöku þarf að tilkynna á skrifstofu BSRB í síma 525 8300 fyrir 27. nóvember 2009. Einnig er hægt að tilkynna þátttöku í netfangið bsrb@bsrb.is
Stjórn BSRB mótmælir harðlega þeim áformum núverandi ríkisstjórnar að ætla sér ekki að standa við gefin fyrirheit frá árinu 2008 um að létta skattbyrði hinna tekjulægstu með hækkun persónuafsláttar. Vísast þar til sérstakrar yfirlýsingar ríkisstjórnar Geirs H. Haarde frá 17. febrúar 2008 en sú yfirlýsing var grundvallarforsenda kjarasamninga á almennum og opinberum vinnumarkaði á því ári.