Fulltrúaráð Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar fundaði í gær, 8. desember. Góð mæting var á fundinn sem hófst með kynningu á félaginu fyrir nýja fulltrúa og síðan var fundur með öllu fulltrúaráðinu þar sem Garðar Hilmarsson formaður fór yfir starfið í haust og starfið framundan. Haukur Ingi Jónasson flutti mjög áhugavert erindi um þjóðfundinn og merkingu hans fyrir stéttarfélög.
Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar býður félagsmönnum og vinum þeirra upp á kvöldstund með upplestur úr jólabókum og söng BSRB kórsins fimmtudagskvöldið 10. desember kl. 20 að Grettisgötu 89, 1. hæð. Þórarinn Eldjárn les upp úr bók sinni Alltaf sama sagan og Hlín Agnarsdóttir les upp úr bók sinni Blómin frá Maó. Kór BSRB mun syngja. Boðið verður upp á kakó og smákökur.
Trúnaðarmannafræðsla BSRB og Félagsmálaskóla alþýðu hefst aftur í janúar. Fyrsta þrep verður haldið 18. - 20 janúar. Annað þrep verður haldið 25. - 27. janúar, þriðja þrep 1. - 3. febrúar, fjórða þrep 8. - 10. febrúar, fimmta þrep er kennt dagana 15. - 17. febrúar og sjötta þrep 1. og 2. mars. Námskeiðin eru í BSRB húsinu, Grettisgötu 89, og eru frá kl. 9 til 16 alla dagana.