Aðalfundur Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar verður haldinn fimmtudaginn 19. mars kl. 17 að Grettisgötu 89, 1. hæð.
Við undirbúning aðalfundar 2009, sem hafði verið ákveðinn fimmtudaginn 5. mars, kom í ljós að nýtt bókhaldskerfi, sem félög innan BSRB tóku í notkun á nýliðnu ári skilar ekki upplýsingum til ársuppgjörs fullkomlega.
Úrbætur eru í gangi hjá söluaðila kerfisins. Til að allrar varúðar sé gætt hefur stjórn St.Rv. ákveðið, í samráði við löggilta endurskoðendur, sem setja upp reikningana að fresta aðalfundi félagsins um tvær vikur.
Aðalfundur er opinn öllum félagsmönnum og eru þeir hvattir til þess að mæta. Á dagskrá fundar eru venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt 13 gr. laga og önnur mál.
![]() |
BSRB stendur fyrir opnum fundi um Evrópusambandið föstudaginn 20. febrúar kl. 14 - 16 í BSRB - húsinu Grettisgötu 89. Á fundinum verður fjallað um stöðu smáríkja innan ESB og afstöðu sambandsins til landbúnaðarmála. Framsögumenn eru Baldur Þórhallsson, Jean Monnet prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands og Sigurður Jóhannesson sérfræðingur við Hagfræðistofnun Háskóla Íslands. Fundarstjóri er Helga Jónsdóttir framkvæmdastjóri BSRB. Að loknum framsöguerindum verður opnað fyrir spurningar úr sal. Fundurinn er öllum opinn. |
|
Borgarstjóri Hanna Birna Kristjánsdóttir var gestur á fundi fulltrúaráðs Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar í dag, en hún mætti þar ásamt mannauðsstjóra borgarinnar Halli Páli Jónssyni og Magnúsi Þór Gylfasyni aðstoðarmanni sínum. Hanna Birna fór yfir þær ráðstafanir sem borgin hefur gripið til undanfarið til þess að mæta þeim aðstæðum sem blasa við vegna samdráttar á tekjum Reykjavíkurborgar. Fjölmennt var á fundinum og borgarstjóri sat lengi fyrir svörum frá fulltrúum félagsins á góðum fundi þar sem fram fór hreinskilin umræða. |