Frestur til þess að sækja um orlofshús og íbúðir félagsins á sumarorlofstíma var til 3. apríl. Úthlutað verður fljólega eftir páska og niðurstöðu kynntar þá.
Á starfmannafundi í gær greindi forstjóri, Hjörleifur B. Kvaran frá aðhaldsaðgerðum Orkuveitunnar. Þar kom meðal annars fram að laun yfir 300 þúsund krónum munu lækka. Frestað hefur verið þeim launahækkunum sem áttu að koma til félagsmanna 1. mars sl. en það verður endurskoðað í júní. Fram kom að þetta væri tímabundin ákvörðun.
|
|
Aðalfundur Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar var haldinn í gær, fimmtudaginn 19. mars kl. 17, óvenju fjölmennt var á fundinum. Formaður fór yfir ákveðna þætti í ársskýrslu, sem hafði verið send öllum félagsmönnum í Fréttabréfi. Fjármálastjóri félagsins, Ása Clausen skýrði reikninga fyrir hönd gjaldkera Víglundar Rúnars Jónssonar. Tekin var ákvörðun um óbreytt árgjöld félagsmanna. Kjörstjóri kynnti kosningarúrslit til stjórnar. Aðalfundur ályktar um efnahagshrunið og kjaraskerðingar. |
|
|
Opinn fundur verður um Evrópusambandið á vegum BSRB föstudaginn 20. mars kl. 14 - 16 í BSRB - húsinu Grettisgötu 89. Á fundinum verður fjallað um stefnu ESB í sjávarútvegi og iðnaði. Framsögu hafa Aðalsteinn Leifsson lektor við Háskólann í Reykjavík og Bjarni Már Gylfason hagfræðingur Samtaka iðnaðarins. |
| Mánudaginn 9. mars verður hádegisfundur frá kl. 11:45- 13 á Grand hótel Reykjavík - Hvammi á vegum ASÍ, BSRB, BHM, KÍ, SSF, Jafnréttisráðs og Jafnréttissofu. Silja Bára Ómarsdóttir, Bryndís Ísfold Hlöðversóttir og Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir verða með erindi. Fundarstjóri verður Þorveig Þormóðsdóttir. Sjá dagskrá. | ![]() |
Í marsmánuði heldur Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar 5 morgunverðarfundi. Félagsmönnum verður boðið á fundina með þeim hætti, að annars vegar verður haft samband við félasmenn sem eru valdir af handahófi og þeim boðið á fundina. Hins vegar bjóðum við áhugasömum félagsmönnum að skrá sig hér. Markmiðið með fundunum er að auka samband við félagsmenn og stuðla að meiri samheldni og virkni innan félagsins.
Hvenær hefst uppsagnarfrestur? Hvað er hann langur? Hver er réttur starfsmanna varðandi launalækkun? Má segja upp fastri yfirvinnu? Þetta eru örfáar spurningar sem starfsmenn BSRB hafa þurft að svara ítrekað að undanförnu vegna aðhaldsaðgerða og niðurskurðar stofnana og fyrirtækja. Sonja Ýr Þorbergsdóttir lögfræðingur BSRB hefur tekið saman ýmsar upplýsingar um réttarstöðu starfsmanna á vinnumarkaði þar sem ofangreindum spurningum og fleirum er svarað.
Samantektin skiptist í eftirtalda kafla: Almennt um uppsagnir, aðilaskipti að fyrirtækjum, atvinnuleysistryggingar og Ábyrgðasjóður launa.