Iceland Express flugávísanir verða seldar á skirfstofu félagsins að Grettisgötu 89, 3 hæð eða í síma 525-8330 frá 4. maí 2009. Verð til félagsmanna er 12.500,- sem er að verðgildi kr. 20.000,-Hver félagsmaður getur keypt að hámarki tvær ávísanir. Gildistími flugávísananna er 2 ár frá útgáfudegi.
|
Á 1. maí verður safnast saman á Hlemmi frá kl. 13:00-13:30. Sigtryggur Baldursson og Parabólurnar verða með slagverkskonsert þar til gangan leggur af stað. Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur hefja göngu niður Laugarveginn kl. 13.30. Á leið göngunnar niður Laugarveginn verða örræður fluttar. Ræðumenn leggja út af ávarpi dagsins. Göngunni lýkur á Austurvelli þar sem baráttufundurinn verður haldinn. Að dagskrá lokinni verður síðan boðið upp á kaffi og meðlæti á Grettisgötunni að venju, þar mun nýi BSRB kórinn syngja nokkur lög undir stjórn Svövu Kristínar Ingólfsdóttur. |
Ákveðið hefur verið að stofna kór BSRB félaga. Um verður að ræða blandaðan kór (konur og karlar) og stjórnandi verður Svava Kristín Ingólfsdóttir. Fyrsta æfing nýja kórsins verður fimmtudaginn 16. apríl kl. 20:00, Grettisgötu 89, 1. hæð.