Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

29.5.2009

Breytingar hafa orðið á dagpeningum á ferðalögum innanlands

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins. Í kjarasamningum sem St.Rv gerir er tekið mð af ákvörðunum ferðakostnaðarnefndar.
Greiðslur verða þannig, gisting og fæði í einn sólarhring kr. 22.132, gisting í einn sólarhring kr. 14.182, fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag, kr. 7.950, fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag, kr. 3.975 .

Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. júní 2009. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 6/2008 dags. 26. september 2008.

12.5.2009

Styrkir í nám til atvinnulausra kvenna

Menningar-og minningarsjóður kvenna auglýsir eftir styrkumsóknum vegna ársins 2009. Að þessu sinni er sjóðurinn opinn fyrir umsóknir frá atvinnulausum  konum 30 ára og eldri sem hófu nám eða hyggja á  nám á árinu 2009.

Um getur verið að ræða háskólanám, nám í framhaldsskóla til stúdentsprófs eða nám á styttri starfsbrautum og verknámsbrautum. Styrkupphæð árið 2009 er ein milljón króna og áskilur stjórn sjóðsins sér rétt til að ákveða fjölda styrkþega. Styrkur verður greiddur út þegar staðfesting á skólavist liggur fyrir.

8.5.2009

Kynningarmyndbönd

Á fræðslusíðu Landsambands lífeyrissjóða eru þrjú ný kynningarmyndbönd sem leitast við að svara spurningum eins og hvers vegna við greiðum í lífeyrissjóð, hvers vegna viðbótarlífeyrissparnaður og hvort íslenska lífeyriskerfið sé eitt af bestu lífeyriskerfi í heimi. Leitið svara á www.gottadvita.is

4.5.2009

Fjölmenni á baráttufundinum á Austurvelli

undefined
Fjölmenni var í kröfugöngu sem fór frá Hlemmi niður á Austurvöll og svo í framhaldinu á útifundinum. Ræðumenn á fundinum voru Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ,  þórveig Þormóðsdóttir formaður Félags starfsmanna stjórnarráðsins og Stefán Rafn Sigurbjörnsson formaður Sambands íslenskra framhaldsskólanema. 200.000 Naglbítar, Lúðrasveit verkalýðsins og Sigtryggur Baldursson og Parabólurnar fluttu tónlist.

4.5.2009

Orlofsuppbót ríkisstarfsmanna

Þar sem starfsmenn ríkisins eru með lausa kjarasamninga hefðu þeir að óbreyttu ekki fengið orlofsuppbót í júní eins og annað launafólk. Fjármálaráðuneytið hefur nú ákveðið að greiða starfsmönnum ríkisins orlofsuppbót "til að stuðla að jafnri stöðu stéttarfélaga í aðdraganda þjóðarsáttar um launaþróun," eins og segir í tilkynningu frá ráðuneytinu.




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English