Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

25.6.2009

Skrifað undir stöðugleikasáttmála

Skrifað var undir stöðugleikasáttmála aðila vinnumarkaðarins og ríkisstjórnarinnar í Þjóðmenningarhúsinu kl. 13:30. Markmið sáttmálans er að stuðla að endurreisn efnahagslífsins. Í framhaldi af undirskriftinni munu opinberir starfsmenn hefja samningaviðræður við ríki og sveitarfélög um nýja kjarasamninga en aðilar á almenna vinnumarkaðinum hafa náð samkomulagi um framlengingu kjarasamninga til haustsins 2010.

25.6.2009

Fréttatilkynning frá BHM, BSRB og KÍ vegna stöðugleikasáttmála

Fréttatilkynning  frá Bandalagi háskólamanna, BSRB og Kennarasambandi Íslands 25. júní 2009


Stöðugleikasáttmáli milli aðila vinnumarkaðarins og ríkisstjórnar Íslands
Samtök opinberra starfsmanna, BHM, KÍ og BSRB hafa tekið þátt í samráði aðila vinnumarkaðarins um kjarasamningagerð og forsendur hennar í ljósi efnahagsþrenginga í landinu. Myndin af umfangi fjárhagsvandans er fyrst nú að skýrast og er mun dekkri en lá fyrir við upphaf vinnunnar. Samtökin hafa  lagt áherslu á að verja störf og kjaraumhverfi félagsmanna. Stöðugleikasáttmáli er mikilvægur grundvöllur uppbyggingar og endurreisnar í landinu jafnframt því að mynda umgjörð fyrir vinnu við gerð kjarasamninga til ársloka 2010. Samtök opinberra starfsmanna telja  nauðsynlegt að mynda enn breiðari grundvöll undir áframhaldandi vinnu með stjórnvöldum við uppbyggingu efnahags, atvinnulífs og kjara í landinu og að í þeirri vinnu verði jafnræði allra aðila tryggt.

F.h. BHM, BSRB og KÍ
Guðlaug Kristjánsdóttir, Árni Stefán Jónsson, Eiríkur Jónsson

24.6.2009

Ólíkar áherslur aðila vinnumarkaðarins

„Það eru fleiri ljón í veginum en ég gerði ráð fyrir í byrjun vikunnar um að aðilar næðu saman," sagði Árni Stefán Jónsson varaformaður BSRB um hvernig þríhliða viðræðum aðila vinnumarkaðarins og ríkisstjórnarinnar um stöðugleikasáttmálann miðaði. Ágreiningurinn snýst fyrst og fremst um hvernig skuli fara með ríkisfjármálin.

22.6.2009

Stöðugleikasáttmálinn að fæðast

Fulltrúar BSRB og aðila vinnumarkaðarins áttu í gær fund með ríkis- stjórninni þar sem hug- myndir um stöðugleika sáttmála voru ræddar áfram. Þessir aðilar hittust svo aftur í morgun. Í dag kl. 14 ætlar stóra samn- inganefndin að hittast og í framhaldi af því er fyrir- hugaður nýr fundur með ríkisstjórninni þar sem stefnt er að því að ganga frá stöðugleikasáttmála.

9.6.2009

Viðræður um stöðugleikasáttmála halda enn áfram

Viðræður um þríhliða stöðugleikasáttmála aðila vinnumarkaðarins og ríkisins hafa haldið áfram og eru málefnahópar um ríkisfjármál, efnahags- og atvinnumál að skila áfangaskýrslum.

Viðræður um launalið samninga hafa legið niðri og er vonast til að þær viðræður hefjist aftur í næstu viku.

 

5.6.2009

Viðræðum um stöðugleikasáttmála haldið áfram

Á fundi fulltrúa heildarsamtaka launamanna, Samtaka atvinnulífsins, ríkisins og sveitarfélaga í morgun var ákveðið að halda áfram viðræðum um gerð stöðugleikasáttmála og kjarasamninga. Fulltrúar BSRB og annara samtaka launafólks á opinbera vinnumarkaðinum hittust síðan á fundi með fulltrúum samninganefndar ríkisins og Launanefndar sveitarfélaga til að ræða launalið kjarasamninga félaganna.

4.6.2009

Viðræður um launalið opinberra starfsmanna halda áfram

Viðræður um þríhliða samkomulag samtaka launafólks, atvinnurekenda og ríkisins eru í ákveðinni óvissu eftir að Seðlabankinn tilkynnti um 1% lækkun stýrivaxta. Vinna í efnahagsnefnd samningsaðila hélt þó áfram eftir hádegi í dag og á morgun hafa verið boðaðir fundir í viðræðunefndinni sem fjallar um launalið opinberra starfsmanna. Þótt viðræður ASÍ og SA séu í uppnámi halda viðræður um launalið kjarasamninga opinberra starfsmanna áfram.

4.6.2009

Dagsferð eftirlaunahóps

undefined

Þann 24. júní verður farin árleg ferð eftirlaunahóps innan St.Rv. Farið verður um uppsveitir Borgarfjarðar. Lagt verður af stað frá Grettisgötu 89 kl. 10 í rútu. Snæddur verður kvöldverður á Fossatúni. Heimkoma er áætluð um kl. 21. Verð í ferðina er 4.000 kr, innifalið er rútuferð, leiðsögn og kvöldverður. Áhugasamir hafi samband við skrifstofu félagsins í síma 525-8330 eða skráir sig hér á heimasíðunni. Frekari upplýsingar á skrifstofu.

 

Námskeið

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English