Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

31.7.2009

Atkvæðagreiðsla um kjarasamninga

Nú er félagsmönnum sem eru á kjarasamningum félagsins hjá Reykjavíkurborg, Akraneskaupstaði og hjá ríkinu að fá bréf með kynningu á samkomulagi um framlengingu og breytingar á kjarasamningi við viðsemjendur.  Aðgangskóði að rafrænni atkvæðagreiðslu er fyrir hvern félagsmann. Hvetjum við félagsmenn til þess að greiða atkvæði eftir að þeir hafa kynnt sér samkomulagið.

31.7.2009

Mistök í útsendingu

Þau leiðu mistök urðu í útsendingu á kjörseðlum vegna atkvæðagreiðslu á kjarasamningi við Reykjavíkurborg, að félagsmenn sem starfa hjá Strætó bs fengu boð um að kjósa í rafrænni kosningu um kjarasamninginn sem þeir eiga eiga ekki aðild að. Biðjumst við velvirðingar á þessum mistökum en aðgangi fyrir félagsmenn á kjarasamningi við Strætó, hefur verið lokað.

13.7.2009

Kynningarfundir

Kynning á samkomulagi um breytingar og framlengingu á kjarasamningum verða haldnir mánudaginn 10. ágúst kl. 16:15 að Grettisgötu 89, 1. hæð og 11. ágúst á Akranesi á Suðurgötu 62. Einnig er hægt að kynna sér samningana hér á heimasíðu félagsins. Atkvæðagreiðsla um samkomulagið fer fram á netinu með rafrænum hætti og hefst 22. júlí
kl. 9.00 og lýkur 13. ágúst kl. 16.00.

7.7.2009

Samið við Launanefnd Sveitarfélaga

Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar skrifaði undir nýjan kjarasamning við Launanefnd sveitarfélaga. Samningurinn er mjög á svipuðum nótum og kjarasamningur Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar sem undirritaður var í 5. júlí og samningurinn við ríkið s.l.  föstudag. Megináhersla við gerð samninganna var lögð á að hækka launataxta sem eru undir 180.000 kr. og kemur sú hækkun í þremur áföngum, 1. júlí, 1. nóvember og 1. júní 2010.

6.7.2009

Kjarasamningur við Reykjavíkurborg undirritaður

undefined Á áttunda tímanum var undirritaður kjarasamningur milli Reykjavíkurborgar og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar.
Aðeins er um hækkun lægstu launa að ræða. Laun undir 180 þúsund krónum hækka um 6.750 1. júlí og 1. nóvember og um 6.500 1. júní 2010. Laun upp að 210.000 krónum hækka árið 2009 en launahækkanir fara stiglækkandi eftir því sem launatalan hækkar. Árið 2010 munu laun upp að 225 þúsund krónum hækka. Laun fyrir ofan það munu ekki breytast. Einnig var samið um lágmarkslaun. Kjarasamningurinn verður kynntur fljótlega. Atkvæðagreiðsla verður rafræn, en henni þarf að vera lokið fyrir 14. ágúst.

3.7.2009

Undirritaður kjarasamningur ríkisstarfsmanna innan BSRB

Í dag um klukkan 19 var undirritað samkomulag um framlengingu á kjarasamningum milli fjármálaráðuneytisins og flestra aðildarfélaga innan BSRB, sem semja fyrir ríkisstarfsmenn. Í samkomulaginu er kjarasamningur framlengdur til nóvember 2010. Lögð er áhersla á að hækka lægstu laun. Laun fyrir ofan 210.000 kr. hækka ekki. Viðræður við Reykjavíkurborg og Launanefnd sveitarfélaga heldur áfram.

3.7.2009

Viðræður í gangi

Samninganefndir Reykjavíkurborgar, ríkisstarfsmanna og Akraness eru að störfum hjá Sáttasemjara. Auk samninganefnda St.Rv. og Reykjavíkurborgar eru þar samninganefndir annarra  BSRB-félaga, Eflingar og Starfsgreinasambandsins, ríkisins og Launanefndar sveitarfélaga. Í samningaviðræðunum er nýlegur stöðugleikasáttmáli aðila vinnumarkaðarins, ríkisins og sveitarfélaga lagður til grundvallar, en í honum er gert ráð fyrir að sérstök áhersla verði lögð á að styrkja stöðu þeirra tekjulægstu.  




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English