Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

26.8.2009

Suðræn stemning í Munaðarnesi

Nú er tækifæri til að skreppa úr bænum um helgina og leigja sér hús í Munaðarnesi. Spáin fyrir helgina á Vesturlandi er mjög góð og tilvalið að skreppa í berjamó enda berjaspretta með besta móti í ár. Í Kaffi Munaðarnesi verður suðræn stemming á laugardagskvöldið þar sem Delizie Italiane skemmta gestum auk þess sem tilvalið er að snæða góðan kvöldverð fyrir dansinn undefined

24.8.2009

Samkomulag við Strætó samþykkt

Samkomulag um breytingar og framlengingu á kjarasamningi milli St.Rv. og Strætó bs. var samþykkt með 68 atkvæðum eða 70,1%, 24 greiddu atkvæði á móti samkomulaginu eða 24,7%, auðir og ógildir voru 5 eða 5,2%. Atkvæði greiddu 97 eða 51,1% félagsmanna á kjarasamningi við Strætó bs.

17.8.2009

Samkomulag við Strætó bs undirritað

undefined

Á fundi samninganefnda Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og Strætó bs í dag var undirritað samkomulag um breytingar og framlengingu á fyrri kjarasamningi. Samkomulagið er að öllu leyti sambærilegt því samkomulagi sem félagið gerði við Reykjavíkurborg fyrr í sumar, þar sem verið er að tryggja hækkanir lægstu launa. Samningurinn gildir frá 31. ágúst 2009 til 30. nóvember 2010.

Kynningafundir verða haldnir miðvikudaginn 19. ágúst kl. 10 og 20 að Grettisgötu 89, 1. hæð.
Atkvæðagreiðsla um samninginn fer fram á fundunum og einnig  á Hlemmi og í Mjódd fram til 21. ágúst kl. 12.

14.8.2009

Kjarasamningar samþykktir

Atkvæðagreiðsla um breytingar og framlengingu á kjarasamningum við Reykjavíkurborg, Launanefnd sveitarfélaga vegna starfsmanna Akraneskaupstaðar og við ríkissjóð lauk klukkan 16 í gær. Niðurstöður urðu þær að allir samningarnir voru samþykktir. 
Niðurstaða vegna samkomulags við Reykjavíkurborg fór þannig að 60.54% þeirra sem greiddu atkvæði samþykktu en 34,78% voru á móti, 4.68% skiluðu auðu. 
Niðurstaða vegna samkomulags við LN, vegna bæjarstafsmanna á Akranesi,  fór þannig að 62.96% þeirra sem greiddu atkvæði samþykktu en 33.33% voru á móti, 3.7% skiluðu auðu. 
Niðurstaða vegna samkomulags við ríkissjóð fór þannig að 64.71% þeirra sem greiddu atkvæði samþykktu en 29.41% voru á móti, 5.88% skiluðu auðu.




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English