Á fyrsta fundi Fulltrúaráðs á þessu hausti fjallaði formaður um stöðuna í dag, hvað hefur verið að gerast í kjarasamningsmálum og það sem framundan er. Gunnar Ingi Jónsson, kjörstjóri skýrði frá kosningum í fulltrúaráð. Árni Stefán Jónsson, starfandi formaður BSRB kom á fundinn og skýrið frá því samráði sem BSRB hefur verið í út af stöðugleikasáttmála aðila vinnumarkaðarins og ríkisstjórnarinnar. Í lok fundar ályktuðu fulltrúar um efnahagsmálin á eftirfarandi leið.
Fulltrúaráð Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar krefst þess að lánveitendur verði látnir taka ábyrgð til jafns við lántakendur á efnahagshruninu. Í ljósi þess verði endurskoðuð sú vísitala, sem verðtrygging lána byggir á.
Nú hefur verið opnað fyrir skráningu á námskeið félagsins "Gott að vita" sem eru félagsmönnum að kostnaðarlausu. Nánari lýsing á námskeiðum og fyrirlestrum koma í Fréttabréfi félagsins. Það eru mög áhugaverð námskeið í boði nú á haustönn og eru félagsmenn hvattir til þess að ská sig sem fyrst.
Framvegis og Verzlunarskóli Íslands er í samvinnu með nám fyrir Ritara og skrifstofustjóra. Þetta er blanda af staðbundnu námi og fjarnámi í WebCT kerfi. Námið er á framhaldskólastigi og er upp á 22 einingar. Námið dreifist á þrjár annir. Staðbundnar lotur eru 3x tveir virkir dagar á hverri önn og fjarnámið er stundað þess á milli. Umsóknarfrestur er til 10. september.
Nú er kórstarf BSRB að hefjast fyrir alvöru og fyrsta æfing vetrarins verður þriðjudaginn 1. september kl. 20:00 í BSRB húsinu, Grettisgötu 89, 1. hæð. Æft verður einu sinni í viku í vetur, á þriðjudagskvöldum, kl. 20:00. Vonandi geta sem flestir mætt á þessa fyrstu æfingu og ekki er verra ef þið bjóðið áhugasömum með ykkur. Kórinn er ætlaður BSRB félögum, vinum og velunnurum. Kórstjóri er Svava Kristín Ingólfsdóttir.