Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

9.9.2010

Fróðlegur fulltrúaráðsfundur

Fyrsti fulltrúaráðsfundur vetrarins  var haldinn í gær. Formaður félagsins fór yfir stöðu mála nú í upphafi vetrarstarfs, eftir nokkrar umræður um vetrarstarfið  mætti gestur fundarins Guðrún Pétursdóttir á fundinn og kynnti fyrir fulltrúum undirbúning fyrirhugaðs Stjórnlagaþings.

7.9.2010

Maíkórinn hefur upp raust sína að loknu sumarfríi

Maíkórinn er blandaður kór BSRB félaga sem tók formlega til starfa haustið 2009. Í vetur mun kórinn æfa á mánudögum kl. 19:30-21:30 á Grettisgötu 89. Lagaval er fjölbreytt og andinn góður. Kórinn getur bætt í allar raddir og þá sérstaklega karlaröddum, en í kórnum er bæði vant söngfólk og óvant. Allir velkomnir. Stjórnandi er Svava Kristín Ingólfsdóttir og undirleikari Hörður Bragason. Nánari upplýsingar hjá svavaki@simnet.is, s. 867 7882.

1.9.2010

Glæsileg dagskrá hjá Félagsmálaskólanum

Félagsmálaskóli alþýðu hefur nú kynningu á félagslegri fræðslu sem boðið er upp á nú í haust með útgáfu bæklings sem má nálgast á vefnum. Margt spennandi er á dagskrá sem er áhugavert bæði fyrir fulltrúa, trúnaðarmenn og talsmenn stéttarfélaga.

31.8.2010

Ályktun stjórnar BSRB

Á heimasíðu BSRB kemur fram eftirfarandi ályktun.  Stjórn BSRB mótmælir harðlega umfangsmiklum hækkunum á gjaldskrá Orkuveitu Reykjavíkur. Þær hafa áhrif til hækkunar vísitölu og þar með talið vísitölutengdra lána og koma því almenningi sérstaklega illa. Með þeim veikir stjórn OR þá tilraun til stöðugleika sem reynt hefur verið að koma á í samfélaginu og býður þeirri hættu heim að aðrir fylgi í kjölfarið með gjaldskrárhækkanir.

31.8.2010

Náms- og starfsráðgjöf,

Fræðslusetrið Starfsmennt býður félagsmönnum aðildarfélaga BSRB upp á náms- og starfsráðgjöf, þeim að kostnaðarlausu. Ráðgjöfin nýtist fólki á öllum aldri til að viðra hugmyndir sínar um nám og starfsþróun og er sérstaklega mikilvæg þeim sem nú takast á við breytingar á vinnumarkaði.  Ráðgjöfin nýtist einnig öllum þeim sem á einhvern hátt standa á tímamótum og eru að takast á við breytt hlutverk eða verkefni. 

23.8.2010

Fyrst og fremst launafólki að þakka

undefined

Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, skrifaði grein í Fréttablaðið  á föstudaginn, í tilefni stýrivaxtalækkunar. Hún svarar því til varðandi hverju má þakka þennan árangur. Að "Vissulega er hægt að tína margt til, en ég held að allir geti verið sammála um að fyrst og síðast sé það launafólk í landinu sem hefur borið byrðarnar. Ofan á öll persónuleg áföll hefur kaupmáttur þess rýrnað. Samið var um hækkun lágmarkstaxta í tengslum við stöðugleikasáttmálann, gegn efndum ríkisstjórnarinnar á mikilvægum sviðum, sem ekki hafa allar gengið eftir.

19.8.2010

Kynbundinn launaumunur minnkar hjá Reykjavíkurborg

Enn er kynbundinn launamunur til staðar hjá Reykjavíkurborg, þó úr honum hafi dregið á síðustu tíu árum. Konur eru að meðaltali með 98% af dagvinnulaunum karla meðal starfsfólks í fullu starfi. Munurinn er hins vegar mun meiri þegar heildarlaunin eru skoðuð, en konur eru aðeins með 87% af heildarlaunum karla í fullu starfi. Karlar fá hærri akstursgreiðslur og meiri yfirvinnu greidda. Þetta kemur fram í nýrri úttekt á kynbundnum launamun hjá Reykjavíkurborg segir á heimasíðu BSRB.

17.8.2010

Efla þarf leigumarkað

BSRB telur að efla þurfi almennan leigumarkað hér á landi og hefur komið þeim athugasemdum sínum á framfæri við félags- og tryggingamálanefnd Alþingis í umsögn við frumvap til laga um breytingu á lögum um húsnæðismál. Fram kemur á heimasíðu BSRB að Bandalagið styður eindregið framgang frumvarpsins og gerir engar efnislegar athugasemdir við það. sjá nánar

16.8.2010

BSRB gefur umsögn um búvörufrumarp

BSRB tekur ekki afstöðu til þess hvort rétt sé að viðhalda greiðslumarkskerfi í mjólkurframleiðslu hér á landi, en telur að á meðan það er við lýði sé rétt að fara eftir þeim reglum sem um það gilda. Þetta kemur fram í umsögn sem BSRB hefur sent sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 99/1993, um framleiðsu, verðlagningu og sölu á búvörum.

BSRB áréttar að umrætt frumvarp snýr ekki að því hvort viðhalda á greiðslumarkskerfinu eða ekki, eingöngu um innleiðingu sektarúrræða. sjá nánar

16.8.2010

Nýr starfsmaður hjá BSRB

undefined

Kolbeinn Óttarsson Proppé hefur hafið störf á skrifstofu BSRB og gegnir starfi kynningarfulltrúa og sér um kynningarmál bandalagsins. Hann sér því um öll samskipti við fjölmiðla og hefur umsjón með heimasíðu BSRB, auk annarra verkefna.

Kolbeinn er 37 ára gamall, með BA-próf í sagnfræði og íslensku. Hann var síðast blaðamaður á Fréttablaðinu, en hefur starfað við ýmiskonar textaskrif síðustu 12 árin.

Þeim sem vilja koma ábendingum á framfæri eða þarfnast upplýsinga varðandi BSRB er bent á netfangið kolbeinn@bsrb.is eða símanúmerin 525-8304/659-0860.

11.8.2010

Ályktað í tilefni kjaradeilu LSS

Ályktun stjórnar BSRB

Stjórn BSRB vill árétta að verkfallsréttur stéttarfélaga er neyðarréttur þeirra og því mikilvægt að hann sé virtur af öllum sem hlut eiga að máli. Þennan rétt ber verkalýðshreyfingunni að verja og fara með af skynsemi og samkvæmt lögum. 

Í tilefni kjaradeilu Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna áréttar stjórn BSRB að um löglega boðaðar aðgerðir er að ræða og öll inngrip þar í eru ólíðandi. Stjórn BSRB hvetur öll stéttarfélög til að vera á varðbergi og dragast ekki inn í deiluna.

Verkfallsréttur skiptir sköpum í kjarabaráttu. Þann rétt  ber að virða og minnir BSRB aðila á að öll verkfallsbrot vinna gegn verkalýðshreyfingunni í heild sinni. BSRB hvetur deiluaðila til að setjast aftur að samningaborði og leysa málin, því það er eina færa leiðin fyrir samningsaðila.

23.7.2010

Frá trúnaðarmönnum starfsmanna Strætó bs.

Trúnaðarmannaráð starfsmanna Strætó bs. sendir slökkviliðs- og sjúkraflutningamönnum stuðnings- og  baráttukveðjur. Það er löngu tímabært að þeir sem vinna ábyrgðamikil og óregluleg vaktavinnustörf fái störf sín metin að verðleikum.

19.7.2010

Skráning á trúnaðarmannanámskeið hafin fyrir haustið

Skráning á trúnaðarmannanámskeið BSRB og Félagsmálaskóla alþýðu í haust er hafin. Námskeiðið er í 6 þrepum eins og verið hefur og stendur hvert þrep í þrjá daga. Hægt er að taka eitt þrep eða fleiri, allt eftir því hvað hentar hverjum og einum. 1. þrep er dagana 14. til 16. september. 2. þrepið er dagana 20. til 22. september og síðan koll af kolli vikulega þar til 6. þrepið sem stendur einungis í tvo daga er 18. og 19. október. Skráning fer fram í gegnum heimasíðu BSRB hér . Trúnaðarmenn skrái sig í samráði við sitt stéttarfélag.

9.6.2010

Hugmyndir um frystingu launa fráleitar

Helga Jónsdóttir framkvæmdastjóri BSRB sagði í fréttum Ríkissjónvarpsins í gærkvöldi að hugmyndir félagsmálaráðherra um frystingu launa opinberra starfsmanna til ársins 2013 væru fráleitar. Þá sagði Árni Stefán Jónsson varaformaður BSRB að tillaga félagsmálaráðherra væri stríðsyfirlýsing.

26.5.2010

Ársfundur LSS

undefined

Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga heldur ársfund miðvikudaginn 2. júní 2010, kl. 17.00 í fundarsal BSRB á 1. hæð að Grettisgötu 89, 105 Reykjavík. Á dagskrá eru venjuleg ársfundarstörf s.k.v. samþykktum sjóðsins og önnur mál löglega uppborin. Allir sjóðfélagar sem og fulltrúar aðildarfélaga BSRB, BHM, KÍ og launagreiðendur eiga rétt til fundarsetu með málfrelsi og tillögurétti og eru þeir hvattir til að mæta. Fundargögn verða afhent á fundarstað fyrir setningu fundarins.

20.5.2010

Fundað með frambjóðendum

Fundur með félagsmönnum Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og fulltrúum frambjóðenda í Reykjavík til borgarstjórnarkosninga funduðu í gær á Grettisgötunni. Frambjóðendur héldu stuttar kynningar í upphafi og svo fengu fundarmenn tækifæri til þess að bera fram spurningar og ekki var skortur á þeim. Fulltrúar framboðanna voru þau Jón Gnarr fyrir Besta flokkinn,  Þórarinn Gunnarsson og Haraldur Baldurson fyrir Frjálslynda flokkinn, Ólafur F. Magnússon fyrir H- listann, Baldur Jónsson fyrir Reykjavíkurframboð, Dagur B. Eggertsson fyrir Samfylkinginu, Júlíus Vífill fyrir Sjálfstæðisflokk og Sóley Tómasdóttir fyrir VG.

undefined

18.5.2010

Bankahrun og lærdómar

undefined

Bankahrun og lærdómar nefnist erindi sem Salvör Nordal forstöðumaður Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands verður með á opnum fundi í BSRB húsinu föstudaginn 21. maí kl. 10.30. Salvör var ein af þremur sérfræðingum í vinnuhópi um siðferði og starfshætti sem vann siðfræðihluta rannsóknarskýrslu Alþingis.

17.5.2010

Lífeyrisrétturinn órjúfanlegur hluti af heildarkjörum

Haukur Hafsteinsson framkvæmdastjóri LSR (Lífeyrissjóðs ríkisstarfsmanna) segir meðal annars í grein sinni um lífeyrissmál "Þegar rætt er um skuldbindingar ríkisins vegna B-deildar LSR má  ekki gleyma því að þá er einnig verið að tala um réttindi þess fólks sem starfað hefur í opinberri þjónustu á undanförnum áratugum. Lífeyrisrétturinn hefur verið órjúfanlegur hluti af heildarkjörum þeirra og launin hafa oft á tíðum verið lægri en ella vegna góðra lífeyrisréttinda. Skuldbindingar eða skuld ríkisins eru því áunnin réttindi tugþúsunda einstaklinga og þær eiga að koma til greiðslu á næstu áratugum. Að bera þetta saman við Icesave skuldina er vart sæmandi,"

Sjá greinina á heimasíðu LSR  

7.5.2010

BSRB aðili að Fræðslumiðstö atvinnulífsins

BSRB varð í gær aðili að Fræðslumiðstöð atvinnulífsins. Samningur um það var undirritaður á aðalfundi Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins í dag. Samninginn undirrituðu Elín Björg Jónsdóttir formaður BSRB, Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ, Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra, Inga Rún Ólafsdóttir frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Guðrún Eyjólfsdóttir frá Samtökum atvinnulífsins.

undefined

 

7.5.2010

Ársfundur LSRb

Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkur­borgar verður haldinn þriðjudaginn 18. maí nk., kl. 11:00 í fundarsal BSRB á 1. hæð að Grettisgötu 89, 101 Reykjavík.  Allir sjóðfélagar sem og fulltrúar aðildarfélaga BSRB, BHM og KÍ svo og launagreiðendur eiga rétt til fundarsetu með málfrelsi og tillögurétti og eru þeir hvattir til að mæta.

3.5.2010

Formaður BSRB á 1. maí

undefined

"Öflug opinber almannaþjónusta er aldrei eins mikilvæg eins og í því ástandi sem nú ríkir. Veiking velferðarkerfisins býður heim háskalegum félagslegum áhrifum umfram það sem kreppan  gefur tilefni til.  BSRB krefst þess að tryggt verði  að aðgerðir til að mæta fjárlagahalla næstu ára komi ekki niður á grunnþjónustu samfélagsins. Frá þeirri kröfu verður ekki hvikað," sagði Elín Björg Jónsdóttir formaður BSRB m.a. í ræðu sinni á mjög fjölmennum baráttufundi á Austurvelli í dag 1. maí.

3.5.2010

Sinubruni í Munaðarnesi

undefined

Á Laugardaginn 1. maí kviknaði í sinu í nágrenni við orlofshúsin í Munaðarnesi. Ekki er ljóst hver eru upptök eldsins en ljóst er að aldrei er of varlega farið með eld. Slökkvilið var kallað út og gestir í húsunum tóku virkann þátt í að hefta eldinn.

30.4.2010

Stöndum vörð um samningsbundin réttindi

BSRB, BHM og KÍ gáfu út sameiginleg yfirlýsing um Lífeyrisréttindi opinberra starfsmanna. Í yfirlýsingunni leggja þeir meðal annars áherslu á að lífeyrisréttindin séu hluti af starfskjörum opinberra starfsmanna og það er ólíðandi að samtök launafólks eins og ASÍ skuli ráðast á kjarasamningsbundin kjör annarra launamanna.

30.4.2010

Mætum öll á baráttufundinn

"Eldar loga á Íslandi, jafnt í náttúrunni sem hjá almenningi. Niðurstöður skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um aðdraganda og orsakir falls íslensku bankanna kynda nýja elda hjá þjóðinni. Þar er skjalfest hvernig þröngur hópur siðblindra einstaklinga fór ránshendi um þjóðarbúið án þess að stjórnvöld og eftirlitsaðilar gerðu neitt til að koma í veg fyrir það, þrátt fyrir viðvaranir. Þjóðin stendur frammi fyrir afleiðingum þeirrar hömlulausu trúar á einkaframtakið sem byrjað var að predika á tíunda áratug síðustu aldar og náði hámarki með einkavinavæðingu bankanna í byrjun þessarar aldar." Þannig hefst 1. maí ávarp Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í Reykjavík, BSRB, BHM, KÍ og Sambands íslenskra framhaldsskólanema.

undefined

28.4.2010

Hátíðarhöld á 1. maí í Reykjavík

Safnast verður saman á Snorrabraut fyrir neðan Hlemm kl. 13.00.  Gangan leggur af stað kl. 13.30. Gengið verður niður Laugaveg inn á Austurvöll. Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur leika fyrir göngu. Ræðumenn flytja örræður meðan gangan stendur yfir. Útifundur á Austurvelli hefst kl. 14.10. Kakó í boði og leiktæki fyrir börn. Útifundi lýkur kl. 15.00.

26.4.2010

Ánægðir þátttakendur í stafagöngu

undefined
Stafgönughópur

St.Rv. og SFR hafa staðið fyrir stafgöngunámskeiðum fyrir félagsmenn í mörg ár. Einn hópur útskrifaðist á síðasta vetrardag og stefnir á að þjálfa stafgöngutæknina stíft í sumar, en rannsóknir hafa leitt í ljós að brennslan í stafgöngu er 20% meiri en í venjulegri göngu og auk þess styrkir stafgangan líkamann 40% meira en venjuleg ganga.

19.4.2010

Starfsendurhæfing

Starfsendurhæfingarsjóður stendur fyrir morgunverðarfundi fimmtudaginn 29. apríl 2010 frá kl. 8:15 – 10:00 á Grand hótel Reykjavík.  Á fundinum mun Vigdís Jónsdóttir gera grein fyrir starfsemi sjóðsins undanfarið ár og Jain Holmes sérfræðingur og ráðgjafi í starfsendurhæfingu í Bretlandi flytur fróðlegt erindi um starfsendurhæfingu í atvinnulífinu.  Erindi hennar nefnist “Cooperation with the Labor Market for Effective Vocational Rehabilitation”.  Fundurinn er öllum opinn og er hann í boði Starfsendurhæfingarsjóðs. Skráning er á heimasíðu www.virk.is eða senda póst á virk@virk.is

16.4.2010

Fundurinn lýsir vanþóknun á bónusgreiðslum sem hafa viðgengist

Fundur fulltrúaráðs St.Rv. lýsti vanþóknun sinni á þeim miklu launa og bónusgreiðslum sem hafa viðgengist innan fjármálakerfisins, fyrirtækja og stofnana íslenska samfélags. Fulltrúaráð St.Rv. kallar eftir að launagreiðslur til stjórnenda fyrirtækja og stofnana íslensks samfélags verði hógværar og í samhengi við almenn launakjör.

14.4.2010

Fulltrúaráð hafnar því að öll þjóðin hafi spilað með

undefined

Harpa Þórðardóttir frá Námsflokkunum var með kynningu á verkefni með ungmennum á fundinum.

Um leið og fulltrúaráð St.Rv. fagnar því að skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis sé komin út þá hafnar fundurinn þeim hugmyndum að öll þjóðin hafi spilað með og að þrátt fyrir að mikilvægt sé að að þjóðin standi saman þá séu slíkar kenningar til þess fallnar að breiða yfir ábyrgð þeirra sem beri hana í raun. 

6.4.2010

Fundarboð

Félag stuðningsfulltrúa í Reykjavík og á Akranesi heldur aðalfund sinn að Grettisgötu 89 (hús Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar). þann 20. apríl kl. 17:00. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf, kosningar og önnur mál. Kaffi og meðlæti í boði St.Rv. auk þess óvæntur glaðningur fyrir skráða félaga.

23.3.2010

Álit BSRB á umræðu um kjör opinberra starfsmanna

BSRB heldur eftirfarandi fram í yfirlýsingu sinn "Þrátt fyrir þrotlausa baráttu stéttarfélaga hafa laun opinberra starfsmanna ávallt verið lakari en kjör sambærilegra stétta á almennum vinnumarkaði. Það er fráleitt að tala um að einhver grundvallarbreyting hafi orðið á þessum launamun nú þegar einkageirinn gengur í gegnum tímabundna leiðréttingu á rekstrarumhverfi sínu," segir m.a. í yfirlýsingu frá BSRB um villandi fjölmiðlaumfjöllun um kjör opinberra starfsmanna.

22.3.2010

Fulltrúaráð fundar

undefined

Fundur var haldinn í fulltrúaráði Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar 18. mars sl. Elín Björg Jónsdóttir formaður BSRB var gestur fundarinns og fór hún yfir glóðvolgar uppslýsingar um tillögur ríkisstjórnarinnar við greiðsluvanda heimilinna ásamt Ragnari Ingimundarsyni hagfræðingi BSRB. Miklar umræður voru á fundinum og þó nokkur hiti í fundarmönnum.

17.3.2010

Aðgerðir ríkisstjórnarinnar spor í rétta átt

Formaður BSRB segir að aðgerðir ríkisstjórarinnar vegna erfiðrar stöðu heimilanna séu spor í rétta átt. Það liggi á að aðstoða skuldsett heimili þannig að fólk geti komið undir sig fótunum á ný.

Þó að frysting lána og frestun uppboða hafi verið nauðsynlegt skref á sínum tíma þá þarf að finna framtíðarlausnir fyrir fólk. Horfast verður í augu við stöðuna í samfélaginu. Það er nauðsynlegt að tryggja að fólk lendi ekki á götunni ef það missir húsnæði sitt. Þá er það jákvætt að efla eigi félagslega húsnæðiskerfið. Það er er algjörlega nauðsynlegt að til staðar sé öflugt öryggisnet sem tryggi að fólk hafi þak yfir höfuðið hverjar svo sem aðstæður þess eru að öðru leyti.

Þó að aðgerðirnar séu jákvæðar er einnig mikilvægt að árangurinn af þeim verði metinn með reglubundnum hætti og brugðist við svo ekki skapist aftur uppsafnaður vandi sem rýri stoðir samfélagsins

undefined
 

17.3.2010

Nýjar aðgerðir vegna skuldavanda heimilanna

Ríkisstjórnin kynnti í dag nýjar aðgerðir vegna skuldavanda heimilanna. Meðal þess helsta sem nú er lagt til af hálfu ríkisstjórnarinnar skv. frétt á heimasíðu forsætisráðuneytisins er annars vegar stórbætt greiðsluaðlögunarfrumvarp, sem eftirleiðis verður félagslegt úrræði en ekki „vægara" form gjaldþrots. Fleiri munu hafa rétt á greiðsluaðlögun og verður nú eitt kerfi fyrir allar kröfur. Með þessu er samningsstaða lántakenda gagnvart sínum lánadrottnum bætt.

15.3.2010

Ályktanir af aðalfundi

Á aðalfundi Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar 8. mars sl. var ályktað um atvinnumál, kjaramál, samfélgsmál og jafnréttismál. Viljum við vekja athygli á þessum ályktunum og hvetja félagsmenn til þess að skoða þær hér á síðunni.

8.3.2010

Líflegur aðalfundur

undefined
Aðalfundur Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar var haldinn í kvöld. Byrjað var á því að snæða saman súpu kl. 18:30. Hófust svo aðalfundarstörf stundvíslega kl. 19. Á dagskrá voru lögbundin verkefni aðalfundar, skýrsla stjórnar, farið yfir reikninga og kynnt fjárhagsáætlun fyrir árið 2010. Markús Bjarnason trúabador flutti tónlist fyrir fundargesti. Fjörugar umræður voru um ályktanir og sendir fundurinn fimm ályktanir frá sér.

1.3.2010

Alþjóðlegur baráttudagur kvenna VIÐ GETUM BETUR!

Í tilefni Alþjóðlega baráttudagi kvenna fyrir friði og jafnrétti

er blásið til fundar í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur mánudaginn 8. mars 2010 kl.17  undir kjörorðinu Við getum betur!
Fundarstjóri verður Kolbrún Halldórsdóttir og ávörp flytja María S. Gunnarsdóttir "Framlag okkar til friðvænlegri heims".  Þórdís Elva Þorvaldsdóttir Bachmann fjallar um Kynbundið ofbeldi. Helga Sif Friðjónsdóttir fjallar um heilsugæslu fyrir jaðarhópa. Barbara Kristinsson flytur erindi sem hún kallar Við getum betur. Andrés Ingi Jónsson um framtíð ófæddra barna. Guðrún Hallgrímsdóttir fjallar um hælisleitendur og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir mun fjalla um fjölmiðla og

Kvennakór Háskóla Íslands syngur undir stjórn Margrétar Bóasdóttur.

12.2.2010

Stjórnarkjör

Uppstillingarnefnd auglýsti eftir mótframboðum til sjórnar,  engin  mótframboð bárust fyrir auglýstan framboðstíma sem var 8. febrúar síðastliðinn. Þannig að uppstilling uppstillingarnefndar er sjálfkjörinn listi.

5.2.2010

Uppstilling til stjórnar

Uppstillingarnefnd hefur stillt upp til stjórnar en nú er auglýst eftir mótframboðum. Auglýsing hefur verið send út á vinnustaði þar sem félagsmenn starfa. Uppstillinganefnd Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar hefur gert eftirfarandi tillögur um félagsstjórn: Formaður næstu tvö ár: Garðar Hilmarsson, Engjaseli 31, Reykjavík. Í stjórn til tveggja ára: Guðríður Sigurbjörnsdóttir, Álfaskeiði 48 Hafn.Guðrún Árnadóttir, Bollagötu 16 Reykjavík. Ingveldur Jónsdóttir, Grenigrund 10 Akranesi. Jónas Engilbertsson, Hólabergi 2 Reykjavík. Sigrún Helga Jónsdóttir, Salthömrum 2 Rvk.
Önnur framboð, ásamt meðmælum 75 lögmætra félagsmanna hið minnsta (með nafni, kennitölu og vinnustað), þurfa að berast til kjörstjórnar St.Rv. Gunnars Inga Jónssonar, skrifstofu St.Rv. Grettisgötu 89, 105 Reykjavík eigi síðar en kl. 16.00 mánudaginn 8. febrúar 2010. auglýsing

27.1.2010

Andleg sjálfsvörn

Sigursteinn Másson formaður Geðhjálpar  flytur fyrirlestur í BSRB húsinu sem nefnist “Andleg sjálfsvörn”  fimmtudaginn, 4. febrúar kl. 16. Fyrirlesturinn  er í boði BSRB og tekur um 35 mínútur. fundurinn er opinn öllum félagsmönnum og hvetjum við þá til þess að mæta.

Fyrirlesturinn er hugsaður sem andsvar við tvíhyggju þ.e.a.s. aðgreiningu líkama og sálar. Fjallað er um leiðir til að vernda geðheilbrigði og varnir gegn neikvæðum hugsunum og áreiti í samskiptum fólks. Einnig er farið yfir hugrænar leiðir til að ná utan um eigið hlutverk og tilgang á mismunandi tímabilum í lífi fólks. Fjallað er um óttann og það sem raunverulega skiptir máli í lífinu. Fyrirlesturinn er afar athyglisverður og uppbyggjandi á erfiðum tímum.
undefined

21.1.2010

Smásögusamkeppni

undefined Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar stóð fyrir smásagnasamkeppni nýlega. Það bárust 11 sögur í keppnina. Dómnefnd var skipuð þeim Davíði Stefánssyni, Dagnýju Guðmundsdóttur og Stefáni Pálssyni. Niðurstaða dómnefndar var að sagan „Grafið í sand“ varð í fyrsta sæti, höfundur hennar er Jónína Óskarsdóttir sem starfar á Ársafni. Sagan „Hjá ömmu“ eftir Ingibjörgu Hafliðadóttir sem starfar á aðalsafni Borgarbókasafns var í öðru sæti. Í þriðja sæti var sagan „Fiskur á þurru“ eftir Helga M. Sigurðsson sem starfar á Sjóminjasafninu. Fyrir stuttu fór fram verðlaunaafhending til sigurvegara í samkeppninni og óskum við vinningshöfum innilega til hamingju.

18.1.2010

Nýr námsvísir Starfsmenntar

undefined Námsvísir Fræðslusetursins Starfsmenntar fyrir vorönn 2010 er kominn út. Í honum er kynnt fjölbreytt námsframboð fræðslusetursins. Í boði eru fjölmörg þverfagleg námskeið sem efla starfshæfni á sviði tungumála, stjórnunar, samskipta og leiðtogafræða. Finna má bæði stutt námskeið og lengri námsleiðir sem dýpka þá þekkingu og hæfni sem fyrir er og styrkja stöðu starfsmanna.

Starfsmennt setur líka upp símenntunarkerfi með stofnunum og faghópum. Einnig er í námsvísinum fjallað um þá fjölmörgu skóla og sérhannaðar námsleiðir sem í boði eru á vorönn. Að venju er öll þjónusta Starfsmenntar félagsmönnum aðildarfélaga að kostnaðarlausu en einnig aðgengileg öðrum gegn gjaldi.

Námskeið

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English