| Mikil gleði ríkti í Gullhömrum í gær á jólaballi félagsins sem var haldið í samvinnu við SFR stéttarfélag. Hátt í fjögur hundruð manns voru mætt prúðbúnir og skemmtu sér vel undir músík frá hljómsveit staðarins. Glæsilegar veitingar voru bornar fram. Jólasveinarnir Skyrgámur og Kjötkrókur heimsóttu gesti við mikinn fögnuð ungu kynslóðarinnar. |
Fram kemur á heimasíðu BSRB að stjórn BSRB hafi á fundi sínum í dag samþykkt áskorun til Alþingismanna vegna fjárlagafrumvarpsins. Þingmenn eru hvattir til þess að sjá til þess að niðurskurðartillögur frumvarpsins höggvi ekki að rótum velferðarkerfisins og til að verja velferðina. Í yfirferð hagfræðings BSRB, Hilmars Ögmundssonar, á frumvarpinu, kom fram að forsendur frumvarpsins eru mjög hæpnar, svo ekki sé meira sagt.
|
Í gær voru veitt verðlaun í Starfsmennaráði fyrir framúrskarandi verkefi í fræðslumálum og starfsmenntun. Reykjavíkurborg hlaut verðlaunin í flokki fyrirtækja fyrir Íslenskuskólann. Á heimasíðu BSRB er fjallað ítarlega um verðlaunaveitinguna. sjá nánar |
Fræðslunefnd BSRB ályktaði á fundi sínum í morgun þar sem hún lýsir áhyggjum af fyrirhuguðum niðurskurði á fjárframlögum til framhaldsskólans. Varað er við svo stórtækum niðurskurði á jafn viðkvæmum tímum og nú ríkja. Yfirlýst markmið Menntamálaráðuneytisins um að auka menntunarstig þjóðarinnar eru með þessu að engu gerð.
Hin árlega jólatrés skemmtun St.Rv. og SFR verður haldin í Gullhömrum, Þjóðhildarstíg 2, 113 Reykjavík, miðvikudaginn 29. desember, kl. 17-19. Hljómsveit mun spila jólalögin og jólasveinar dansa með börnunum. Gestum verður boðið upp á kökuhlaðborð og börnin fá nammipoka með heim. Miðinn kostar 600 kr. en þeir eru seldir á skrifstofu félagsins, Grettisgötu 89 (opið alla virka daga kl. 9-16) og í síma 525-8330.