BSRB, BHM og KÍ gáfu út sameiginleg yfirlýsing um Lífeyrisréttindi opinberra starfsmanna. Í yfirlýsingunni leggja þeir meðal annars áherslu á að lífeyrisréttindin séu hluti af starfskjörum opinberra starfsmanna og það er ólíðandi að samtök launafólks eins og ASÍ skuli ráðast á kjarasamningsbundin kjör annarra launamanna.
|
"Eldar loga á Íslandi, jafnt í náttúrunni sem hjá almenningi. Niðurstöður skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um aðdraganda og orsakir falls íslensku bankanna kynda nýja elda hjá þjóðinni. Þar er skjalfest hvernig þröngur hópur siðblindra einstaklinga fór ránshendi um þjóðarbúið án þess að stjórnvöld og eftirlitsaðilar gerðu neitt til að koma í veg fyrir það, þrátt fyrir viðvaranir. Þjóðin stendur frammi fyrir afleiðingum þeirrar hömlulausu trúar á einkaframtakið sem byrjað var að predika á tíunda áratug síðustu aldar og náði hámarki með einkavinavæðingu bankanna í byrjun þessarar aldar." Þannig hefst 1. maí ávarp Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í Reykjavík, BSRB, BHM, KÍ og Sambands íslenskra framhaldsskólanema. |
Safnast verður saman á Snorrabraut fyrir neðan Hlemm kl. 13.00. Gangan leggur af stað kl. 13.30. Gengið verður niður Laugaveg inn á Austurvöll. Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur leika fyrir göngu. Ræðumenn flytja örræður meðan gangan stendur yfir. Útifundur á Austurvelli hefst kl. 14.10. Kakó í boði og leiktæki fyrir börn. Útifundi lýkur kl. 15.00.
|
|
St.Rv. og SFR hafa staðið fyrir stafgöngunámskeiðum fyrir félagsmenn í mörg ár. Einn hópur útskrifaðist á síðasta vetrardag og stefnir á að þjálfa stafgöngutæknina stíft í sumar, en rannsóknir hafa leitt í ljós að brennslan í stafgöngu er 20% meiri en í venjulegri göngu og auk þess styrkir stafgangan líkamann 40% meira en venjuleg ganga. |
Starfsendurhæfingarsjóður stendur fyrir morgunverðarfundi fimmtudaginn 29. apríl 2010 frá kl. 8:15 – 10:00 á Grand hótel Reykjavík. Á fundinum mun Vigdís Jónsdóttir gera grein fyrir starfsemi sjóðsins undanfarið ár og Jain Holmes sérfræðingur og ráðgjafi í starfsendurhæfingu í Bretlandi flytur fróðlegt erindi um starfsendurhæfingu í atvinnulífinu. Erindi hennar nefnist “Cooperation with the Labor Market for Effective Vocational Rehabilitation”. Fundurinn er öllum opinn og er hann í boði Starfsendurhæfingarsjóðs. Skráning er á heimasíðu www.virk.is eða senda póst á virk@virk.is
Fundur fulltrúaráðs St.Rv. lýsti vanþóknun sinni á þeim miklu launa og bónusgreiðslum sem hafa viðgengist innan fjármálakerfisins, fyrirtækja og stofnana íslenska samfélags. Fulltrúaráð St.Rv. kallar eftir að launagreiðslur til stjórnenda fyrirtækja og stofnana íslensks samfélags verði hógværar og í samhengi við almenn launakjör.
|
Harpa Þórðardóttir frá Námsflokkunum var með kynningu á verkefni með ungmennum á fundinum. |
Um leið og fulltrúaráð St.Rv. fagnar því að skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis sé komin út þá hafnar fundurinn þeim hugmyndum að öll þjóðin hafi spilað með og að þrátt fyrir að mikilvægt sé að að þjóðin standi saman þá séu slíkar kenningar til þess fallnar að breiða yfir ábyrgð þeirra sem beri hana í raun. |
Félag stuðningsfulltrúa í Reykjavík og á Akranesi heldur aðalfund sinn að Grettisgötu 89 (hús Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar). þann 20. apríl kl. 17:00. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf, kosningar og önnur mál. Kaffi og meðlæti í boði St.Rv. auk þess óvæntur glaðningur fyrir skráða félaga.