|
Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga heldur ársfund miðvikudaginn 2. júní 2010, kl. 17.00 í fundarsal BSRB á 1. hæð að Grettisgötu 89, 105 Reykjavík. Á dagskrá eru venjuleg ársfundarstörf s.k.v. samþykktum sjóðsins og önnur mál löglega uppborin. Allir sjóðfélagar sem og fulltrúar aðildarfélaga BSRB, BHM, KÍ og launagreiðendur eiga rétt til fundarsetu með málfrelsi og tillögurétti og eru þeir hvattir til að mæta. Fundargögn verða afhent á fundarstað fyrir setningu fundarins. |
|
Fundur með félagsmönnum Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og fulltrúum frambjóðenda í Reykjavík til borgarstjórnarkosninga funduðu í gær á Grettisgötunni. Frambjóðendur héldu stuttar kynningar í upphafi og svo fengu fundarmenn tækifæri til þess að bera fram spurningar og ekki var skortur á þeim. Fulltrúar framboðanna voru þau Jón Gnarr fyrir Besta flokkinn, Þórarinn Gunnarsson og Haraldur Baldurson fyrir Frjálslynda flokkinn, Ólafur F. Magnússon fyrir H- listann, Baldur Jónsson fyrir Reykjavíkurframboð, Dagur B. Eggertsson fyrir Samfylkinginu, Júlíus Vífill fyrir Sjálfstæðisflokk og Sóley Tómasdóttir fyrir VG. |
|
Bankahrun og lærdómar nefnist erindi sem Salvör Nordal forstöðumaður Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands verður með á opnum fundi í BSRB húsinu föstudaginn 21. maí kl. 10.30. Salvör var ein af þremur sérfræðingum í vinnuhópi um siðferði og starfshætti sem vann siðfræðihluta rannsóknarskýrslu Alþingis. |
Haukur Hafsteinsson framkvæmdastjóri LSR (Lífeyrissjóðs ríkisstarfsmanna) segir meðal annars í grein sinni um lífeyrissmál "Þegar rætt er um skuldbindingar ríkisins vegna B-deildar LSR má ekki gleyma því að þá er einnig verið að tala um réttindi þess fólks sem starfað hefur í opinberri þjónustu á undanförnum áratugum. Lífeyrisrétturinn hefur verið órjúfanlegur hluti af heildarkjörum þeirra og launin hafa oft á tíðum verið lægri en ella vegna góðra lífeyrisréttinda. Skuldbindingar eða skuld ríkisins eru því áunnin réttindi tugþúsunda einstaklinga og þær eiga að koma til greiðslu á næstu áratugum. Að bera þetta saman við Icesave skuldina er vart sæmandi,"
|
BSRB varð í gær aðili að Fræðslumiðstöð atvinnulífsins. Samningur um það var undirritaður á aðalfundi Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins í dag. Samninginn undirrituðu Elín Björg Jónsdóttir formaður BSRB, Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ, Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra, Inga Rún Ólafsdóttir frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Guðrún Eyjólfsdóttir frá Samtökum atvinnulífsins. |
![]() |
Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar verður haldinn þriðjudaginn 18. maí nk., kl. 11:00 í fundarsal BSRB á 1. hæð að Grettisgötu 89, 101 Reykjavík. Allir sjóðfélagar sem og fulltrúar aðildarfélaga BSRB, BHM og KÍ svo og launagreiðendur eiga rétt til fundarsetu með málfrelsi og tillögurétti og eru þeir hvattir til að mæta.
![]() |
"Öflug opinber almannaþjónusta er aldrei eins mikilvæg eins og í því ástandi sem nú ríkir. Veiking velferðarkerfisins býður heim háskalegum félagslegum áhrifum umfram það sem kreppan gefur tilefni til. BSRB krefst þess að tryggt verði að aðgerðir til að mæta fjárlagahalla næstu ára komi ekki niður á grunnþjónustu samfélagsins. Frá þeirri kröfu verður ekki hvikað," sagði Elín Björg Jónsdóttir formaður BSRB m.a. í ræðu sinni á mjög fjölmennum baráttufundi á Austurvelli í dag 1. maí. |
|
|
Á Laugardaginn 1. maí kviknaði í sinu í nágrenni við orlofshúsin í Munaðarnesi. Ekki er ljóst hver eru upptök eldsins en ljóst er að aldrei er of varlega farið með eld. Slökkvilið var kallað út og gestir í húsunum tóku virkann þátt í að hefta eldinn. |