Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

23.12.2011

BSRB krefst sambærilega leiðréttinga á launum

Fram kemur á á vef BSRB að bandalagið telur þá ákvörðun kjararáðs að draga til baka launalækkanir hjá ráðherrum, þingmönnum og embættismönnum einnig hljóta að vera fordæmisgefandi fyrir félagsmenn BSRB. Í kjölfar efnahagshrunsins missti fjöldi félagsmanna bandalagsins vinnuna og aðrir þurftu að taka á sig tímabundnar launalækkanir og skert starfshlutfall. Nú hefur kjararáð riðið á vaðið og leiðrétt þessar tímabundnu launalækkanir hjá ákveðnum hópi opinberra starfsmanna og krefst BSRB þess að leiðréttingar á kjörum félagsmanna bandalagsins muni einnig koma til framkvæmda hið fyrsta. Mun BSRB í kjölfarið fara fram á viðræður við fjármálaráðherra um hvernig staðið verði að þeim leiðréttingum. Sjá nánar

http://www.bsrb.is/um-bsrb/frettir/nr/2079/

15.12.2011

Ályktað um Úlfljótsvatn


Fundur fulltrúaráðs St.Rv. haldinn 15. desember 2011 leggur áherslu á mikilvægi þess afnotaréttar að landsvæði við Úlfljótsvatn, sem borgarráð gaf félaginu árið 1969, og stendur heilshugar að baki stjórn félagsins við að verja hann.

15.12.2011

Fundað í fulltrúaráði

Stór hópur fulltrúa mætti á fund félagsins í dag. Meðal efnis sem farið var yfir á fundinum voru viðræður sem Orkuveitan og Reykjavíkurborg eiga í núna vegna fyrirhugaðrar sölu Orkuveitunnar á landi því við Úlfljótsvatn sem félagin var gefið til afnota á 40 ára afmæli félagsins árið 1966. Formaður upplýsti fulltrúaráðið um gang mála og áhyggjur félagsins af málinu og var samþykkt einróma ályktun fulltrúaráðs. Í lok fundar las Hallgrímur Helgason upp úr bók sinni Kona við 1000° og gerði mikla lukku.

15.12.2011

Jólablað í prentun

forsida-blad-des-2011Blað stéttarfélaganna sem gefið er út af St.Rv. og SFR er nú í prentun og ætti að berast félagsmönnum fyrir jól. Efni blaðsins er fjölbreytt að venju. Þar má m.a. finna viðtal við Gissur Pétursson forstjóra Vinnumálastofnunar, grein um nýsköpun í opinberum rekstri, jólabókahugleiðing eftir Úlfhildi Dagsdóttur, heimsókn til trúnaðarmanna á Landspítalanum, frásögn nokkurra matreiðslumanna um ferð þeirra til Finnlands og margt fleira. Með blaðinu fylgir vinnutímadagbók félagsins sem vonandi mun nýtist vel.

6.12.2011

Miðar á jólaballið komnir í sölu

undefined

Jólaball félagsins verður haldið að Gullhömrum fimmtudaginn 29. desember kl. 17. Sala miða hefst í dag 6. desember, en miðinn kostar 700 kr fyrir bæði börn og fullorðna.

5.12.2011

Fulltrúar og trúnaðarmenn á námskeiði

trunadarmannafr-nov2011Þriggja daga trúnaðarmannanámskeið St.Rv. og SFR var haldið í síðustu viku. Hópur nýrra og eldri trúnaðarmanna beggja félaga  tóku þátt og gerðu að námskeiðinu góðan róm.  Meðal þess sem farið var yfir á námskeiðinu var kynning á félögunum og lífeyrissjóðunum, þjálfun í kjarasamningum og leiðtogaþjálfun sem þau Þórkatla Aðalsteinsdóttir og Einar Gylfi Jónsson sáu um. Að öðru leyti er kennsla í höndum starfsmanna félaganna.

29.11.2011

Desemberuppbót og sérstakar eingreiðslur

Desemberuppbót 2011 greiðist 1. desember. Þeir sem eru á kjarasamningum félagsins við Reykjavíkurborg, Strætó bs og Faxaflóahafnir eru 54.000 kr miðað við fullt starf. Sérstök eingreiðsla verður 1. febrúar fyrir þessa aðila og einnig fyrir þá sem eru á kjarasamningi við Samband íslenskra sveitarfélaga. Ríkisstarfsmenn innan félagsins eru með 48.800 kr desemberuppbót  og sérstakt álag 15.000 kr. Félagsmenn hjá Akraneskaupstað fá 75.500 kr í desemberuppbót

21.11.2011

Nýtt fulltrúaráð tekur við

Miðvikudaginn 23. nóvember er fyrsti fundur nýs fulltrúaráðs og fráfarandi fulltrúar kveðja. Fundurinn hefst kl. 14 að Grettisgötu 89, 1 hæð, á kynningarfundi fyrir nýja fulltrúa endurkjörnir fulltrúar mæta til fundar kl. 15 og fráfarandi fulltrúar kl. 16. Finna má lista yfir nýja fulltrúa og trúnaðarmenn hér

21.11.2011

Opinn fundur um verðtryggingu

BSRB efnir til opins fundar um verðtryggingu,  miðvikudaginn 23. nóvember kl. 12:00 - 13:20, í BSRB-húsinu Grettisgötu 89. Á fundinum verður fjallað um verðtryggð og óverðtryggð lán, kosti og galla verðtryggingarinnar og hvort raunhæft sé að afnema hana í náinni framtíð.

16.11.2011

Aðventukvöld

undefined undefined

Menningar- og skemmtinefndir St.Rv. og SFR standa fyrir aðventukvöldi 30. nóvember næstkomandi kl. 20 að Grettisgötu 89, 1 hæð þar sem lesið verður upp úr tveimur nýjum bókum. Boðið verður upp á smákökur og heitt súkkulaði og rithöfundarnir Sigríður Víðis Jónsdóttir og Jón Kalman Stefánsson koma og lesa upp úr bókum sínum.

11.11.2011

Jólahlaðborð eftirlaunadeildar

Skráning stendur yfir í jólahlaðborð á Hótel Örk fyrir félaga í Lífeyrisþegadeild St.Rv. þann 30. nóvember nk. Jólahlaðborð, gisting og morgunverður kostar kr. 8.500 á mann í tveggja manna herbergi. Aukagjald í einbýli kr. 4.000.

Gestir eru velkomnir á hótelið eftir kl. 14. Tilvalið er að fara í sund og gufu eða skoða sig um í Hveragerði. Borðhald hefst kl. 19:30. Góð skemmtiatriði og dans við undirleik Páls Sigurðssonar til kl. 1 eftir miðnætti.

10.11.2011

Formaður BSRB skrifar í Fréttablaðið

Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRBFram kemur á heimasíðu BSRB að Elín Björg Jónsdóttir formaður BSRB skrifar grein í Fréttablaðið í dag undir yfirskriftinni „Félagsleg samheldni skilar meiru en einstaklingshyggja". Þar fjallar hún m.a. um velferðarkerfið og skatta með hliðsjón af því sem Torben M. Andersen, sérstakur gestur á aðalfundi BSRB sagði í erindi sínu þar.

„Jafnræði meðal íbúa Norðurlanda er jafnframt mikið og munar þar mestu um jafna möguleika til menntunar. Menntun leiðir til betri launa og jafnari tækifæra sem um leið fela í sér meiri skatttekjur. Menntun er því grundvallarforsenda fyrir sjálfbærum hagvexti" er meðal þess sem segir í greininni en hana má nálgast í heild sinni hér.

9.11.2011

Ljósmyndarar verðlaunaðir

Nokkrir vinningshafar í ljósmyndasamkeppni Blaðs stéttarfélaganna komu á skrifstofur félaganna í gær og tóku við verðlaunum sínum. Félögin óska þeim innilega til hamingju með árangurinn. Um 100 ljósmyndir bárust í keppnina og er öllum þeim sem sendu inn myndir þökkuð þátttakan. Á myndinni má sjá þau; Árna Stefán Jónsson, formann SFR, Mary Þorsteinsdóttur, Berglindi Hansen og með henni er Sebastian Tumi, Joanna M. Szczepankiewicz, Anna Gunnhildur Ólafsdóttir og Garðar Hilmarsson, formaður St.Rv. ljosmyndaverðlaunahafar

8.11.2011

Dagur gegn einelti

Verkefnisstjórn í aðgerðum gegn einelti hefur ákveðið að standa að sérstökum degi gegn einelti 8. nóvember 2011. Í tilefni dagsins verður undirritaður þjóðarsáttmáli um jákvæð samskipti. Forsætisráðherra er verndari átaksins. Munu velferðarráðherra, fjármálaráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra undirrita sáttmálann fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Á heimasíðu BSRB er einng fjallað um daginn.

1.11.2011

Hagfræðingur BSRB varar við að taka upp neysluskatta

undefined Fram kemur á heimasíðu BSRB að í kjölfar nýrrar skýrslu, þar sem m.a. kemur fram að Íslendingar eru næst feitasta þjóð í heimi, hefur velferðarráðherra boðað þjóðarátak í heilsu. Í framhaldinu gaf ráðherrann í skyn að til greina komi að beita skattkerfinu til að breyta neyslumynstri Íslendinga. Hafa sérstakir skattar á óhollari matvæli, til dæmis svokallaðir sykurskattar, verið nefndir í því samhengi og með slíkum sköttum eigi að reyna að stýra vali neytenda.

27.10.2011

Launamunur og ljósmyndir

Blaðið-Rafræn-utgafa-okt-20Þess er senn að vænta að Blað stéttarfélaganna detti inn um lúgur félagsmanna. Blaðið er að venju sneisafullt af efni, þar er m.a. farið ítarlegar í launamun kynjanna sem birtist í launakönnun SFR og St.Rv. í haust, viðtal við Elínu Björgu Jónsdóttur, nýjan formann Virk, fjallað er um símenntun eldri starfsmenna þ.e. 45 ára og eldri og  síðast en ekki síst má skoða verðlaunamyndirnar úr ljósmyndasamkeppni Blaðsins, en alls bárust um 100 myndir í keppnina.

26.10.2011

Formaður BSRB í Fréttablaðinu

Fréttablaðið birti í dag grein Elínar Bjargar Jónsdóttur, formanns BSRB, segir á vef BSRB, þar sem hún fjallar um stöðu Fæðingarorlofssjóðs og skatta á inngreiðslur séreignarlífeyrissparnaðar. Grein Elínar Bjargar fylgir þannig eftir ályktunum nýafstaðins aðalfundar BSRB þar sem fjallað var um báða málaflokkana. Sjá nánar

http://www.bsrb.is/um-bsrb/frettir/nr/2037/

25.10.2011

Eldhús og mötuneyti – hættuleg störf

Vinnueftirlitið heldur námskeiðið: Eldhús og mötuneyti – hættuleg störf. Námskeiðið verður fimmtudaginn 3. nóvember kl. 13 – 16 og er haldið að Bíldshöfða 18, (2 hæð) húsnæði Ferðamálaskóla Íslands. Megináhersla námskeiðsins lýtur að vinnu í eldhúsum, þær hættur sem geta skapast og mikilvægi réttra forvarna og viðbragðsáætlana við óhöppum.

25.10.2011

„Félagsleg samheldni skilar samfélaginu meiru en einstaklingshyggja"

undefined Á heimasíður BSRB kemur fram að Torben M. Andersen, prófessor við hagfræðideild Árósarháskóla, hélt erindi á aðalfundi BSRB á föstudag . Fjallaði Torben um velferðarkerfi Norðurlandanna í víðu samhengi og leiðrétti um leið margar rangfærslur sem haldið hefur verið fram um velferðarkerfið í íslenskri umræðu síðustu misseri. Sjá nánar

http://www.bsrb.is/malefni/adalfundur/nr/2036/

 

20.10.2011

Matreiðslumenn í grunnskólum

Í Fréttabréfinu í dag og á fréttavefnum Vísi er fjallað um yfirlýsingu sem matreiðslumenn í grunnskólum sendu frá sér varandi starfsumhverfi starfsmanna í mötuneytum grunnskóla í Reykjavík. Þar tala þeir um fækkun aðstoðarfólks í mötuneytum skólanna. Sjá nánar

20.10.2011

OPNAÐ FYRIR BÓKANIR Í ORLOFSHÚS OG ÍBÚÐ

Opnað verður fyrir bókanir í orlofshús Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar fyrir janúar til maí 2012, að undanskildum páskum, þriðjudaginn 1. nóvember næstkomandi.  Félagið hefur til útleigu 23 sumarhús og  íbúð á Akureyri yfir vetratímann. Kynnið ykkur framboðið á orlofsvefnum.

11.10.2011

BINGÓ -BINGÓ

Laugardaginn 15. október kl. 14 verður Bingó fyrir alla félagsmenn Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og SFR að Grettisgötu 89 á 1 hæð. Glæsilegir vinningar - allir geta spilað. Öll fjölskyldan velkomin. Spjaldið kostar 250 krónur.

30.9.2011

Akstursgreiðslur og dagpeningar taka breytingum

Ferðakostnaður breytist frá 1. október 2011. Vakin er athygli á því að auglýsingar ferðakostnaðarnefndar eru birtar á vefsíðu fjármálaráðuneytisins. Þar er auk þess að finna reglur nefndarinnar um greiðslu dagpeninga erlendis og greinargerð um forsendur útreikninga akstursgjalds og dagpeninga. Hér er hægt að finna hvað á að greiða frá 1. október fyrir akstur og dagpeninga.

22.9.2011

Framboð í fulltrúaráð St.Rv.

Auglýst er eftir áhugasömum félagsmönnum í framboð til fulltrúaráðs Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Fulltrúar eru jafnframt trúnaðarmenn í sinni starfsdeild. Kosningar í fulltrúaráð til næstu 2ja ára fer fram á tímabilinu 15. - 30. október. Skrá hér

20.9.2011

Skáning á námskeið hafin

Starfsmannafélag Reykjavíkurborgra býður félagsmönnum upp á fjölmörg námskeið nú á haustönn undir heitinu "Gott að vita". Dagskránna er að finna hér á síðunni en auk þess er Blað stéttarfélaganna STRV og SFR í dreifingu til félgsmanna. Opnað hefur verið fyrir skráningu og eru félagsmenn hvattir til þess að skrá sig sem fyrist til þess að tryggja sér pláss.

19.9.2011

Launakönnun Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar

Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar hefur nú birt helstu niðurstöður nýrrar launakönnunar sem unnin er samhliða launakönnun SFR stéttarfélags í almannaþjónustu og VR.  Hér á eftir eru nokkur atriði sem vöktu hvað mesta eftirtekt.
Þar má nefna samanburð á launum opinberra starfsmanna og á almennum markaði og fjárhagsleg staða. Meðallaun, mat félagsmanna á sanngjörn laun, launamunur kynjana og aukning á álagi í starfi.
Niðurstöður könnunarinnar má sjá hér á heimasíðunni auk þess sem þær eru birtar í nýju blaði Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og SFR sem nú er verið að dreifa til félagsmanna. Þar má sjá ítarlegri niðurstöður þessarar nýju launakönnunar.

19.9.2011

Skrifstofuskólinn -nýtt

Framvegis kynnir Skrifstofuskólann nýja námsleið í boði fyrir fólk á vinnumarkaði sem hefur hug á að styrkja stöðu sína í almennum skrifstofustörfum. Námið hentar fyrir þá sem hafa starfað við skrifstofustörf og sækjast eftir fjölbreyttari þjálfun og auknu sjálfsöryggi í starfi, sem og þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í skrifstofustörfum. Kennsla hefst laugardaginn 24. september, en kennt verður tvö kvöld í viku og nokkra heila laugardaga yfir námstímabilið. Námið telur 240 kennslustundir og er metið til allt að 18 einingum á framhaldsskólastigi. Hægt er að sitja námið i heild sinni í fjarkennslu, eða eftir þvi sem hentar í hvert sinn. Skráning er hafin á www.framvegis.is.   

16.9.2011

Launakönnun Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar

Opnað hefur verið fyrir síðu þar sem launakönnun félagsins er kynnt. Könnunin fór fram í febrúar og mars síðstliðinn. Capacent vann könnunina og hefur nú lokið úrvinnslu á henni. Við þökkum þeim fjölmörgu félagsmönnum sem lögðu okkur lið með þátttöku sinni. Könnunin mun nýtast félaginu í kjarabaráttunni inn í framtíðina.

Sjá nánar

16.9.2011

Launakönnun - Gott að vita

undefined

Blað stéttarfélaganna er nú í prentun og verður dreift til félagsmanna St.Rv. og SFR strax eftir helgi. Í blaðinu er að finna niðurstöður glænýrrar launakönnunar félaganna og ítarlegum upplýsingum um hana. Þá er þar einnig dagskrá Gott að vita námskeiðanna ásamt spennandi greinum um jafnréttis- og símenntunarmál svo eitthvað sé nefnt. Blaðinu er dreift í yfir 13 þúsund eintökum til félagsmanna SFR og St.Rv. um land allt ásamt og til fjölda stofnana og fyrirtækja.

14.9.2011

Námskeið fyrir fulltrúa og trúnaðarmenn BSRB

undefined Fyrsta trúnaðarmannanámskeið vetrarins verður haldið í næstu viku, dagana 21. - 23. september. Námskeiðið er haldið af Félagsmálaskóla alþýðu fyrir alla talsmenn stéttarfélaga og hvetur BSRB sem flesta til að nýta sér námskeiðið.

25.8.2011

Nýr kynningarfulltrúi hjá BSRB

undefined Starfsmannafélag Reykjavíkur býður nýráðinn kynningarfulltrúa BSRB velkominn til starfa. Það er Ágúst Bogason, hann hóf störf um miðjann ágúst. Ágúst hefur lokið BA námi í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands og hefur undanfarin ár starfað sem dagskrárgerðarmaður á Rás 2. Þar áður starfaði hann sem blaða- og fréttamaður, m.a. hjá 365 og DV.

25.8.2011

Trúnaðarmannanámskeið BSRB

Fyrsta trúnaðarmannanámskeið vetrarins verður haldið dagana 21. - 23. september. Námskeiðið er haldið af Félagsmálaskóla alþýðu. Á hverri önn eru sérhæfð námskeið í boði fyrir alla talsmenn stéttarfélaga. Á þeim er lögð áhersla á hefðbundna félagslega fræðslu. Jafnframt er boðið upp á námskeið sem taka á málefnum sem eru í brennidepli hverju sinni. Stéttarfélög geta pantað námskeið til að móta starf og stefnu og styrkja talsmenn sína.

25.8.2011

Tókst þú ljósmyndir í sumar?

Ákveðið hefur verið að framlengja skilafrest ljósmyndasamkeppni Blaðs stéttarfélaganna sem hrint var af stað í vor til að gefa fleirum kost á að senda inn myndir. Allir félagsmenn St.Rv. og SFR geta sent inn myndir í keppnina.

24.8.2011

Hagfræðingur BSRB fjallar um leigumarkaðinn

Hilmar Ögmundsson

Fram kemur á heimasíðu BSRB að Hilmar Ögmundsson, hagfræðingur BSRB, hafi skrifað grein í Fréttablaðið. Þar lýsir hann stuttlega þeirri erfiðu stöðu sem ríkir á leigumarkaðnum í landinu í dag. Einnig hvernig Íbúðarlánasjóður reynir að koma til móts við hina miklu eftirspurn á leiguhúsnæði og dempa hátt leiguverð. Í greininni ítrekar Hilmar einnig mikilvægi þess að hægt sé að velja á milli búsetuforma sem og þær tillögur sem bandalagið hefur áður lagt fram og miða að því að efla almennan markað með langtímaleiguíbúðum.

27.7.2011

Samningur samþykktur

Atkvæðagreiðslu um kjarasamning Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og Sambands ísl. Sveitarfélaga f.h. Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 11. Júlí s.l. er lokið. 

Á kjörskrá voru 7, atkvæði greiddu 6 eða 85%.

Já sögðu 5 eða 84%, nei sagði enginn. Auðir voru 1 eða 16%

19.7.2011

Samningur Akraness og Dvalarheimilisins Höfða samþykktur

Atkvæðagreiðslu um kjarasamning Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og Sambands ísl. Sveitarfélaga f.h. Akraneskaupstaðar og Dvalarheimilisins Höfða frá 5. Júlí 2011 er lokið.

Á kjörskrá voru alls 211 Atkvæði greiddu 50 eða 23.7 %.  Já sögðu 40 eða 80 % Nei sögðu 8 eða 16 %. Auðir voru 2 eða 4 %

13.7.2011

Samningur Innheimtustofnunar Sveitarfélaga samþykktur

Atkvæðagreiðslu um kjarasamning Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og Sambands ísl. Sveitarfélaga f.h. Innheimtustofnunar sveitarfélaga frá 6. Júlí 2011 er lokið.

Á kjörskrá voru alls 17. Allir greiddu atkvæði eða alls  17. Já sögðu 17 en nei sögðu 0.

11.7.2011

Undirritun kjarasamninga

Úm hádegi mánudaginn 11. júli var undirritaður kjarasamningur vegna félagsmanna St.Rv. hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Kjarasamningurinn er á svipuðum nótum og þeir samningar sem hafa verið gerðir. í framhaldi af því var undirritaður kjarasamningur vegna félaga í St.Rv. hjá Tónlistarskólanum á Akranesi.

6.7.2011

Samningur undirritaður

undefined Upp úr hádeginu miðvikudaginn 6. júlí, voru undirritaðir kjarasamningar við SNS vegna félagsmanna hjá Innheimtustofnunar sveitarfélaga.

Samningurinn var kynntur á skrifstofu Innheimtustofnunar í hádeginu fimmtudaginn 7. júlí og atkvæðgreiðsla fer fram í kjölfarið og mun standa fram yfir í næstu viku.

 

 

Hluti starfsmanna Innheimtustofnunar eftir kynningarfundinn ásamt Garðari formanni St.Rv.

6.7.2011

Blað stéttarfélaganna kemur út i dag

undefined

Þriðja tölublað Blaðs stéttarfélaganna kemur út í dag og verður dreift til félagsmanna SFR og St.Rv. í dag og á morgun. Blaðið er venju samkvæmt sneisafullt af efni. Þar er m.a. að finna ítarlegt viðtal við Skúla Eggert Þórðarson ríkisskattstjóra um starfsmannastjórnun og skattamál, kjarasamningar félaganna eru kynntir ásamt niðurstöðum könnunarinnar um Stofnun ársins. Þá er í blaðinu að finna grein um starf Blátt áfram samtakanna auk þess sem fjallað er um uppsagnir í grunnskólum Reykjavíkur og birt viðtöl við félagsmenn St.Rv. sem starfa þar.

5.7.2011

Samið við Samband Ísl. Sveitarfélaga

Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar undirritaði nýjan kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga, vegna félagsmanna hjá Akraneskaupstað og dvalarheimilinu Höfða, í dag. Samningurinn verður kynntur 12. júlí á skrifstofunni á  Akranesi og atkvæðagreiðsla fer fram með rafrænni kosningu. Samningurinn er á líkum nótum og gerður hefur verið við önnur félög starfsmanna sveitarfélaga.  Samninginn í heild sinni má finna hér.

30.6.2011

Uppsögn trúnaðarmanns dæmd ólögleg

Bandalag starfsmanna ríkis og bæjar fyrir hönd Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar höfðaði má gegn Orkuveitunni í kjölfar uppsagnar á trúnaðarmanni í október 2010.Dómur féll í málinu 27. júni sl. Uppsögnin var dæmd ólögleg og dæmda gert að greiða stefnanda bætur vegna málkostnaðs. Dómur

29.6.2011

Kjarasamningaviðræður í gangi

Nú eru loksins að fara í gang kjaraviðræður við Samband íslenskra sveitarfélaga vegna félagsmanna hjá Akraneskaupstað og Höfða. Félagið átti fund með sambandinu í  lok maí en hlé verið á viðræðum. Samninganefnd félagsins fundaði í gær þriðjudaginn 28. Júni með samninganefnd Sambandsins og var farið yfir texta og réttindamál. Gekk sú vinna vel. Næsti fundur verður á föstudaginn 1. júlí. Í framhaldinu verða samningaviðræður við SNS vegna félagsmanna hjá Innheimtustofnun sveitarfélaga og hjá Slökkvilið höfuðborgarsvæðisns.

24.6.2011

Tveir samningar samþykktir.

Akvæðagreiðslu  um  kjarasamningi milli félagsins og Orkuveitu Reykjavíkur  er lokið.   Á kjörskrá voru 183. Atkvæði greiddu 61  eða 33%, já sögðu 50 eða 82%.Nei sögðu 9 eða 15%, 2 tóku ekki afstöðu eða 3%.

Þá lauk atkvæðagreiðslu um nýgerðan kjarasamning  félagsins og Félagsbústaða hf.  Á kjörskrá voru 16 og greiddu 13 atkvæði eða 81% . Samningurinn var samþykktur einróma. 

24.6.2011

Samið við Félagsbústaði hf.

Í gær gerði félagið samning við Félagsbústaði hf. Samningurinn er á svipuðum nótum og gert var við Reykjavíkurborg, Strætó bs.  og Faxaflóahafnir.

23.6.2011

Samningur við ríkið samþykktur.

Akvæðagreiðslu og talningu atkvæða um  kjarasamningi milli Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og Fjármálaráðherra fyrir hönd Ríkissjóðs er lokið.  
Á kjörskrá voru 120, atkvæði greiddu 41  eða 34,2%, 36  greiddu atkvæði með samningnum eða 87,8 % en  3 greiddu atkvæði á móti samningnum eða 7,3%.
2 tóku ekki afstöðu eða 4,9%
 

21.6.2011

Kjarasamnigur við Strætó samþykktur

Akvæðagreiðslu og talningu atkvæða um  kjarasamning  félagsins og Strætó er lokið. Á kjörskrá voru 191. Atkvæði greiddu 104  eða 54,5%
 75 greiddu atkvæði með samningnum eða 72,1 %
 26 greiddu atkvæði á móti samningnum eða 25%
Auðir/ógildir voru 3 eða 2,9%



21.6.2011

Kjarasamningur við Faxaflóahafnir samþykktur

Akvæðagreiðslu og talningu atkvæða um  kjarasamning  félagsins og Faxaflóahafna er lokið. Á kjörskrá voru 28. Atkvæði greiddu 20 eða 71,4%
10 greiddu atkvæði með samningnum eða 50 % , 8 greiddu atkvæði á móti samningnum eða 40%. Auðir voru 2 eða 10%

Kjarasamningurinn telst því samþykktur.

16.6.2011

Samið við Strætó bs.

undefined

Nýr kjarasamningur var undirritaður við Strætó bs. í gær. Samningur felur í sér sömu hækkanir og gerðar voru við Reykjavíkurborg.

Kynningar á kjarasamning verða tvær mánudaginn 20 júní í BSRB húsinu á Grettisgötu, önnur kl 14:00 og hin kl. 20:00. Atkvæðagreiðsla hefst sama dag og verður í tvo daga.

15.6.2011

Kjarasamningur við Reykjavíkurborg samþykktur

Atkvæðagreiðslu um kjarasamning Reykjavíkurborgar og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar lauk um miðnætti í gær. Atkvæði hafa verið talin. Þátttaka í atkvæðisgreiðslu um kjarasamninginn voru 13,2%. Já sögðu 346 eða 84%, nei sögðu 57 eða 14%, 9 eða 2% tóku ekki afstöðu.  Greitt verður út eftir nýjum kjarasamningi um næstu mánaðarmót.

14.6.2011

Atkvæðagreiðsla stendur yfir

Nú er í gangi rafræn atkvæðagreiðsla um kjarasamning St.Rv. við Reykjavíkurborg. Félagsmenn eiga að hafa fengið bréf með aðgangsorði til þess að greiða samningnum atkvæði. Ef þeir hafa ekki fengið bréf eru þeir vinsamlega beðnir um að leita til skrifstofu í síma 525-8330. Atkvæðaggreiðsla stendur til kl. 24 í dag 14. júní. Sjá eldri frétt

10.6.2011

Samið við Orkuveitu Reykjavíkur

undefined Um kl. 19:00 undirrituðu Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar og Orkuveita Reykjavíkur nýjan kjarasamning.

 

Nýi kjarasamningurinn inniber í flestum meginatriðum það sama og samið var um á almenna markaðnum.

Samninginn má sjá hér.

 

9.6.2011

Undirritaður kjarasamningur við Faxaflóahafnir

undefined

Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar og Faxafóahafnir undirrituðu kjarasamning klukkan 15.30 í dag.

Kjarasamningurinn er á sömu nótum og kjarasamningur félagsins við Reykjavíkurborg.

8.6.2011

Samið við ríkið

Laust upp úr kl. 15 í dag var undirritaður nýr kjarasamningur af hálfu Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar við samninganefnd ríkisins fyrir hönd fjármálaráðherra. Samningurinn er til þriggja ára og er á svipuðum nótum og aðrir kjarasamningar sem gerðir hafa verið að undanförnu. Samkomulag undirritað og viðauki vegna háskólamanna.

31.5.2011

Samið við Reykjavíkurborg

Samninganefnd Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og samninganefnd Reykjavíkurborgar skifuðu undir kjarasamninga klukkan 23. í kvöld. Samningurinn er á svipuðum nótum og aðrir hafa verið að gera. Kynning er fyrirhuguð í næstu viku og verður í framhaldinu kosning um samninginn.

29.5.2011

Samninganefnd í Karphúsinu

Samninganefnd félagsins vegna kjarasamninga við Reykjavíkurborg hefur verið í Karphúsinu alla helgina, viðræður ganga hægt en samt örugglega. Ekki er ljóst á þessari stundi hvenær aðilar ná saman.

27.5.2011

Viðræður við Reykjavíkurborg

Viðræður voru í gangi í gær fimmtudag við Reykjavíkurborg. Ákveðið var í nótt að frestað áframhaldandi viðræðum fram í næstu viku. Samninganefnd félagsins mun fara yfir tilboð Reykjavíkurborgar. Ekki hefur verið ákveðinn næstu fundur nefndanna.

24.5.2011

FYRSTIR KOMA FYRSTIR FÁ!

 

Vekjum athygli á því að nú geta allir félagsmenn, sem ekki hafa nú þegar tryggt sér orlofshús eða íbúð í sumar, leigt sér hús eða íbúð á orlofsvef félagsins.

Leigja hús

24.5.2011

Samningaviðræður

Enn bíður samninganefnd St.Rv eftir tilboði Reykjavíkurborgar um launalið samningsins, en umræður um réttindamál hafa verið til umfjöllunar fram að þessu. Næsti fundur með Reykjavíkurborg er fyrirhugaður miðvikudaginn 25. maí. Samninganefnd Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar átti sinn fyrsta fund með samninganefnd Orkuveitunnar í gær og er fyrirhugað að halda næsta fund fljótlega. Félagið mun funda með samninganefnd ríkisins í eftirmiðdaginn á morgun.

19.5.2011

Orlofsuppbót 1. júní

Þar sem samningar hafa ekki náðst við viðsemjendur okkar og samningar eru lausir hafa Reykjavíkurborg, Akaneskaupstaður og fjármálaráðuneytið f.h. ríkissjóðs staðfest að þeir muni taka mið af orlofsuppbót á síðasta ári. En orlofsuppbót var á árinu 2010 kr. 25.800.

18.5.2011

Viðræður í gangi

Samninganefndir Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar hafa verið að funda með viðsemjendum. Tveir fundir hafa verið með samninganefnd Reykjavíkurborgar í vikunni. Fjallað hefur verið um réttindamál. Samninganefnd Reykjavíkurborgar mun svo væntanlega leggja fram tilboð í lok viku varðandi launaliði samningsins. Fundað hefur verið með SNS (samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga) vegna kjarasamnings fyrir félagsmenn á Akranesi.

17.5.2011

Síðasti sjens

Þeir sem sóttu um orlofshús á auglýstum tíma þ.e. fyrir 15. apríl s.l., og fengu ekki orlofhús eða íbúð, hafa forgang á að sækja um sumarhús til og með 18. maí næstkomandi. Eftir 20. maí verður opnað á það sem eftir stendur fyrir alla félagsmenn og gildir þá fyrstur kemur fyrstur fær.

17.5.2011

Aðalfundur stuðningsfulltrúa í grunnskólum

Félag stuðningsfulltrúa í Reykjavík og á Akranesi heldur aðalfund sinn að Grettisgötu 89, 25. maí kl. 17:00. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf, Stéttarfélagsmálin  þar sem fulltrúi frá St.Rv. mætir og önnur mál. Boði verðu upp á kaffi og meðlæti.                         

9.5.2011

Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar

Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar 2011, verður haldinn þriðjudaginn 31. maí kl. 16.00 í húsakynnum BSRB að Grettisgötu 89, Reykjavík. Á dagskrá eru venjuleg ársfundarstörf samkvæmt samþykktum sjóðsins.

Allir sjóðfélagar sem og launagreiðendur og viðkomandi stéttarfélög eiga rétt til fundarsetu með málfrelsi og tillögurétti og eru þeir hvattir til að mæta. Sjá nánar

9.5.2011

Ársfundur LSS

Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga  verður haldinn fimmtudaginn 26. maí kl.16.00, í sal BHM að Borgartúni 6, Reykjavík. Á dagskrá eru venjuleg ársfundarstörf samkvæmt samþykktum sjóðsins
Allir sjóðfélagar sem og launagreiðendur og viðkomandi stéttarfélög eiga rétt til fundarsetu með málfrelsi og tillögurétti og eru þeir hvattir til að mæta. Sjá nánar

9.5.2011

Nám er vinnandi vegur - opin námskynning í Laugardalshöll

Fimmtudaginn 12. maí frá kl. 11-16 verður opin námskynning í Laugardalshöll. Þar gefst tækifæri til að kynna sér nýja námsmöguleika í framhaldsskólum, frumgreinadeildum, háskólum og fullorðinsfræðslu. Ráðgjafar frá Vinnumálastofnun og skólunum munu aðstoða við að finna heppilegustu leiðirnar til að bæta menntun, auka hæfni og fjölga atvinnumöguleikum. Kynningin er opin öllum.

Með átakin Nám er vinnandi vegur verður mun auðveldara en áður að komast að í framhaldsskóla eftir námshlé en markmiðið er að veita 1000 atvinnuleitendum aðgang að skólakerfinu með óskertum atvinnuleysisbótum í eina önn. Haustið 2011 munu skólarnir taka inn alla umsækjendur undir 25 ára aldri sem uppfylla skilyrði, ásamt eldri umsækjendum sem hafa lokið raunfærnimati vorið 2011. Sjá nánar hér.

undefined

9.5.2011

Fjölmenningardagur Reykjavíkurborgar og fjölmenningarganga

undefined Fjölmenningardagur Reykjavíkurborgar verður laugardaginn 14. maí 2011
Fjölmenningargangan leggur af stað frá Hallgrímskirkju kl. 13. Þá verða ýmsar uppákomur og markaður í ráðhúsinu og í Iðnó. Hér má sjá myndband frá fyrstu Fjölþjóðagöngunni í maí 2009 en gangan hefur einkennst af gleði og jákvæðum anda með litríkum þjóðbúningum og fánum þar sem dans, söngur og hljóðfæraleikur hefur ráðið ríkjum.

6.5.2011

Samninganefnd fundar með Reykjavíkurborg

Samninganefnd Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar fundaði með samninganefnd Reykjavíkurborgar á fimmtudaginn 5. maí. Sameiginlegt markmið er að ljúka gerð kjarasamningar fyrir lok maí. Tveir fundir hafa verið settir niður í næstu viku.

6.5.2011

Aðildarfélög BSRB hefja kjarasamningsviðræður

Í fréttum frá BSRB kemur fram að BSRB fundaði með forsætisráðherra og fjármálaráðherra mánudaginn 2. maí og afhenti þeim minnisblað um sameiginleg málefni aðildarfélaga sem hafa verið falin bandalaginu til úrlausnar við komandi kjarasamninga. Voru aðilar sammála um mikilvægi þess að ljúka skyldi við kjarasamninga við opinbera starfsmenn sem fyrst. Þá átti framkvæmdanefnd BSRB fund með samninganefnd ríkisins í gær þar sem afhent var sama minnisblað og áhersluatriðin rædd.

Í kjölfar kjarasamninga ASÍ við SA sem gerðir voru 5. maí voru aðildarfélög BSRB boðuð á fundi með viðsemjendum sínum. Ástæða þess að aðildarfélög BSRB hafa ekki fengið viðræður um launalið sinna kjarasamninga er sú að viðsemjendur þeirra hafa viljað bíða eftir niðurstöðu kjarasamninga á almennum vinnumarkaði. Félögin eru að hefja samningsviðræður og munu þær taka mið af launahækkunum nýrra kjarasamninga á almenna vinnumarkaðnum.

3.5.2011

Úthlutun til þeirra sem ekki fengu hús

Þeir sem sóttu um orlofshús á auglýstum tíma þ.e. fyrir 15. apríl s.l., og fengu ekki orlofhús eða íbúð, hafa forgang á að sækja um sumarhús til og með 18. maí næstkomandi. Eftir 20. maí verður opnað á það sem eftir stendur fyrir alla félagsmenn og gildir þá fyrstur kemur fyrstur fær.

2.5.2011

Vinnuframlag í takt við starfshlutfall

undefined Töluvert hefur verið um það að undanförnu að  félagsmönnum hefur verið sagt upp en verið boðið starf áfram í lægra starfshlutfalli. Félagið hefur haft áhyggjur af því og varað við að fólk sé endalaust fengið til þess að "hlaupa hraðar" í vinnunni. Í tilefni þess lét félagið útbúa plaggat og póstkort til þess að minna bæði stjórnendur og starfsmenn á að ef fólk er ráðið í minna starfshlutfall þá er ekki hægt að krefjast að öll þau verkefni sem áður voru unnin sé leyst af hendi.

2.5.2011

1. maí hátíðarhöldin í Reykjavík

Hátíðahöldin á 1. maí fóru fram með göngu niður á Austurvöll. Þar voru ræður haldnar af vara forseta ASÍ Signýju Jóhannesdóttur og Garðari Hilmarssyni öðrum varaformanni BSRB og formanni St.Rv. Var gerður góður rómur af ræðu Garðars og birtum við hana hér í heild sinni hér. undefined

28.4.2011

1. maí - baráttudagur!

Félagsmenn eru hvattir til þess að taka þátt í baráttudegi verkalýðsins 1. maí. Launafólk þarf að standa saman á þessum tímum. Garðar Hilmarsson formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar er einn af ræðumönnum á fundinum í Reykjavík. Safnast verður saman á horni Snorrabrautar og Laugavegar kl. 13.00
Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur leika nokkur lög. Gangan leggur af stað kl. 13.30. Gengið verður niður á Austurvöll. Signý Jóhannesdóttir, varaforseti ASÍ og Garðar Hilmarsson, 2. varaformaður BSRB flytja ræður. Heiða Karen Sæbergsdóttir, formaður Sambands íslenskra framhaldsskólanema flytur ávarp.
Hljómsveitin Dikta spilar. Fundi lýkur með því að ,,Internationalen” verður sunginn. Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur leika undir. Borði er upp á kaffi í Félagamiðstö í BSRB húsinu, að Grettisgötu 89, eftir fundinn.
undefined

26.4.2011

1. maí Blað stéttarfélaganna er komið út

SFR-StRv-PASKAR-2011-forsidAnnað tölublað Blaðs stéttarfélaganna er komið út og mun berast til félagsmanna nú í vikunni fyrir 1. maí.

Efni blaðsins er fjölbreytt, þar má m.a. lesa um lífeyrissjóðsmál og samanburð á ævitekjum opinberra starfsmanna og almennra, kíkt er í heimsókn á vinnustaði og starfsfólk tekið talið auk þess sem í blaðinu auk þess má finna þar stutt viðtal við þær Sigríði Kristinsdóttur og Sjöfn Ingólfsdóttur fyrrverandi formenn SFR og St.Rv. og dagskrá 1. maí.

26.4.2011

Skýrsla um húsnæðisstefnu tilbúin

Á heimasíðu BSRB kemur fram að samráðshópur um húsnæðisstefnu sem skipaður var í nóvember 2010 hefur skilað velferðarráðherra skýrslu með tillögum um aðgerðir á sviði húsnæðismála. Fulltrúi BSRB í hópnum var Hilmar Ögmundsson hagfræðingur. Í skýrslunni eru markmið húsnæðisstefnu skilgreind og lagðar fram tillögur um hvernig stjórnvöld geti náð þeim. Áhersla er lögð á að húsnæðisstefna skuli hafa það meginmarkmið að tryggja húsnæðisöryggi fjölskyldna í landinu og stuðla að félagslegri samheldni og efnahagslegum stöðugleika.

Sjá nánar

19.4.2011

Úthlutun orlofshúsa

Nú er frestu til þess að sækja um orlofshús liðinn. Verið er að vinna úr umsóknum og mun úthlutun fara fram fljótlega eftir páska. Send verða bréf til allra umsækjenda um úthlutun annað hvort með tölvupósti eða í pósti.

14.4.2011

Happadrætti fyrir þátttakendur í Launakönnun

Nú hefur verið dregin út númer í Launakönnunar happadrættinu. Þeir félgsmenn sem tóku þátt í launakönnun fengu happadrættisnúmer í könnuninni og eftirtalin númer voru dregin út: 3355, 5543, 9232, 13778, 13780, 32551, 52082, 64379, 64666 og 69496. Vinningshafar eru vinsamlega berðnir um að hafa samband við skrifstofu félagsins.
Við óskum þeim sem unnu innilega til hamingju um leið og við þökkum öllum sem tóku þátt kærlega fyrir þátttökuna, það mun hjálpa okkur í kjarabaráttunni.
 

13.4.2011

BLAÐ STÉTTARFÉLAGANNA ER KOMIÐ ÚT

Forsida_net_litil

Fyrsta tölublað Blaðs stéttarfélaganna sem gefið er út af SFR stéttarfélagi í almannaþjónustu og Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar  hefur nú litið dagsins ljós.

Um er að ræða sameiginlega útgáfu þessara tveggja stærstu félaga innan BSRB, en félagsmenn þeirra telja samtals um 11 þúsund. Nýju blaði stéttarfélaganna er ætlað að vera leiðandi í umræðunni um hagsmunamál opinberra starfsmanna og í sameinuðu málgagni verður rödd félagsmanna sterkari og öflugri.

Í þessu fyrsta tölublaði m.a. að finna viðtal við Guðbjart Hannesson, velferðarráðherra og  úttekt á tillögum um breytingar á skóla- og frístundamálum í Reykjavík og viðtöl við foreldra og  starfsfólk grunn- og leikskóla auk frístundaheimila.

8.4.2011

Sameiginleg útgáfa St.Rv. og SFR - Blað stéttarfélaganna

Í byrjun ársins var ákveðið að gefa út sameiginlegt blað með SFR stéttarfélagi, sem tilraunaverkefni í eitt ár. Fyrsta sameiginlega blaðið, sem gengur undir nafninu Blað stéttarfélaganna, er nú í prentun og mun berast heim til félagsmanna um miðja næstu viku.  Í blaðinu er meðal annars viðtal við Guðbjart Hannesson velferðarráðherra, rætt við starfsfólk og foreldra um tillögur að breyttum rekstri og fyrirkomulagi grunnskóla, leikskóla og frístundaheimila. Að sjálfsögðu er krossgátan á sínum stað.

undefined

7.4.2011

Fundur með starfsmönnum á frístundaheimilum

Á fjölmennum fundi fyrir starfsmenn frístundaheimila sem haldinn var miðvikudaginn 30. mars sl. voru Eva Einarsdóttir formaður íþrótta og tómstundaráðs og Oddný Sturludóttir formaður menntaráðs og þess starfshóps sem leggur fram tillögur að breyttu starfi í grunn- leikskólum og frístundaheimilum. Miklar umræður hafa verið í skóla og leikskólaumhverfinu og haldnir fundir fyrir starfsmenn á þeim sviðum. Minna hefur aftur á móti farið fyrir umræðu um frístundaheimilin, þrátt fyrir að segja megi að þar séu fyrirhugaðar stórtækustu breytingarnar, með því að færa starfssemina undir annað svið.

undefined

7.4.2011

Fréttir af viðræðum

Samninganefnd St.Rv. við Reykjavíkurborg hittist síðast mánudaginn 28. mars, fundað verður í minni hóp í byrjun næstu viku. Fjallað hefur verið um ýmis réttindamál, en ljóst er að launaliður verður ekki ræddur af alvöru fyrr en samningar á almennum markaði verða frágengnir.

30.3.2011

Áunnin lífeyrisréttindi ekki skert

Fram kemur í frétt frá BSRB að í svari frá fjármálaráðherra að "aldrei hefur staðið til að skerða áunnin lífeyrisréttindi opinberra stafsmanna, eða breyta á nokkurn hátt, nema viðhaft verði fullt samráð við heildarsamtök opinberra starfsmanna. Þetta kemur fram í bréfi frá Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra til BSRB, BHM og KÍ. Samtökin fóru fram á skýr svör ráðherra vegna minnisblaðs SA og ASÍ um lífeyrisréttindi opinberra starfsmanna, en frá því var sagt hér.

18.3.2011

Minnisblaði ASÍ og SA hafnað

Fram kemur á heimasíðu BSRB að stjórn BSRB mótmælir harðlega innihaldi minnisblaðs ASÍ og SA um stöðu lífeyrismála, dagsettu 25. febrúar 2011. Þar koma fram hugmyndir um skerðingu lífeyrisréttinda opinberra starfsmanna. Stjórnin samþykkti rétt í þessu ályktun þar sem þessum áherslum er hafnað og ASÍ átalið fyrir að einbeita sér ekki að hagsmunabaráttu fyrir eigin félaga frekar en að berjast fyrir réttindaskerðingu hjá félögum annarra launþegasamtaka. Það er umhugsunarefni á hvaða vegferð launabaráttan er þegar slík vinnubrögð eru viðhöfð. Nánar

18.3.2011

Mikil ánægja með bridgenámskeið

Undir hatti Gott að vita námskeiðanna læra St.Rv. og SFR félagar þessa dagana að spila Bridge. Þátttakendur mæta í fimm skipti og fara hægt og rólega yfir grunnsagnirnar í Standard-kerfinu og æfa sig í góðum félagsskap. Fyrsta kvöldið var í gærkvöldi og var mikil ánægja með það. Leiðbeinandi er Guðmunudur Páll Arnarson en samkvæmt honum eiga allir að geta lært Bridge. Nú bíðum við bara eftir að félögin eignist Íslandsmeistara í Bridge á næstu árum.  

undefined

14.3.2011

BINGÓ BINGÓ BINGÓ fyrir alla!

Menningar- og skemmtinefnd St.Rv. og SFR bjóða félagsmönnum að koma og spila BINGÓ 16. mars kl. 20-22 á Grettisgötu 89, 1. hæð. Bingóið er opið öllum félagsmönnum og er velkomið að taka með gesti. Í boði eru glæsilegir alvöru vinningar. Spila má með eitt spjald eða fleiri, en hvert spjald kostar kr. 150. Auglýsing

14.3.2011

Fundur skólafólks felldur niður

Fundur fyrir starfsmenn í grunnskólum Reykjavíkur fellur niður. Fundurinn átti að vera í dag mánudaginn 14. mars kl. 17, þar sem allir frummælendur afboðuðu sig á fundinn vegna funda út í skólahverfum með starfsmönnum og foreldrum. Þar sem sömu aðilar eru frummælendur. Félagið hefur fullann hug á að halda fundinn síðar.

9.3.2011

Aðalfundur St.Rv.

Aðalfundur Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar var haldinn í gær þriðjudaginn 8. mars. Garða Hilmarsson formaður félagsins flutti stiklaði á stóru úr skýrslu stjórnar sem var send, í fréttabréfi til allra félagsmanna.  Ása Clausen fjármálstjóri skýrði reikninga félagssjóðs og annarra sjóða. Kjörnir voru félagslegir skoðunarmenn reikninga, fulltrúa í stjórn styrktarsjóðs, vinnudeilusjóð og orlofsheimilasjóðs. Fundurinn gefur frá sér ályktanir sem má finna hér í heild sinni.

undefined

1.3.2011

Grein Þórveigar í Fréttablaðinu

undefined Á vef BSRB kemur fram að Þórveig Þormóðsdóttir, formaður jafnréttisnefndar BSRB, segir að niðurskurður í velferðarkerfinu gangi þvert gegn yfirlýsingum ríkisstjórnarinnar um kynjaða hagstjórn og fjárlagagerð. Jafnréttisnefnd BSRB hafi varað við þessu og hafnað atvinnustefnu á kostnað kvenna, í ályktun sem samþykkt var í júní 2009. Nýlegt svar velferðarráðherra við fyrirspurn á Alþingi sýni að 92 konur muni missa störf sín alfarið vegna niðurskurðar í fjárlögum 2011 og 15 karlar. Þá muni 75,6 stöðugildi kvenna sæta skerðingu á starfshlutfalli á móti 11,1 stöðugildi karla.

25.2.2011

Niðurstöður í stjórnarkjöri

Atkvæðagreiðslu í stjórnarkjöri St.Rv. lauk á miðnætti á fimmtudagskvöld. Niðurstöðu kosninga eru eftirfarandi. Á kjörskrá  voru 4467. Atkvæði  greiddu  558 eða 12.5 %. Eftirtaldir náðu kjöri  Ása Hauksdóttir, Gunnar Rúnar Matthíasson, Jón Bergvinsson, Eiríkur Brynjólfur Finnsson og Þórdís Björk Sigurgestsdóttir. Ingjaldur Eiðsson hlaut ekki kosningu.

24.2.2011

Fulltrúaráð fundar

Á fundi fulltrúaráðs St.Rv. í dag fjallaði Garðar Hilmarsson formaður um gang mála í kjarasamningviðræðum við viðsemjendur auk þeirra mála sem eru á döfinni hjá félagagin s.s. launakönnun, sameiginlegt fréttabréf og hluta af niðurstöðum síðasta fundar fulltrúaráðs. Árni Stefán Jónsson 1. varaformaður BSRB var gestur á fundinum og fjallaði hann um starf nefndar sem skipuð er fulltrúum aðila vinnumarkaðsins um lífeyrissjóðsmál.

24.2.2011

Kaupmáttarrýrnun mest hjá opinberum starfsmönnum

Á heimasíðu BSRB er frétt um að kaupmáttur opinberra starfsmanna hefur lækkað mest frá því 2006 samkvæmt niðurstöðu vinnuhóps sem kannað hefur þróun kaupmáttar í undirbúningi kjarasamninga. Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, sagði í samtali við Eyjuna að þetta kæmi félagsmönnum BSRB ekki á óvart. Þeir hefðu fundið fyrir þessu á eigin skinni. „Með allt of hógværum launahækkunum og mikilli verðbólgu rýrnar kaupmátturinn óhjákvæmilega. Opinberir starfsmenn hafa búið við það að vera með lægri laun en gengur og gerist á almenna markaðnum og þessi úttekt sýnir að þau hafa skerðst enn frekar hjá okkur."

Þá segir Elín Björg að staðan sé í raun dekkri en rannsóknin sýnir. Í henni sé kaupmáttur launa skoðaður, en kaupmáttur ráðstöfunartekna hefði rýrnað mun meira. Hún segir að BSRB muni taka mið af rannsókninni í komandi kjarasamningum.

Frétt Eyjunnar má sjá hér.

Skýrslu starfshópsins má nálgast hér.

22.2.2011

Einar Ólafsson í Smugunni

Einn af fulltrúum í samninganefnd St.Rv. skrifar áhugaverða grein á vefritinu Smugunni fyrir helgi þar sem hann fjallar um umræðuna í samfélaginu um laun. Einar talar um að Vilhjálmi Egilssyni SA finnist krafan um 200.000 kr lágmarkslaun út úr kortinu en þyggur sjálfur ofurtekjur....sjá grein af Smugunni undefined

22.2.2011

Samninganefnd fundar með Reykjavíkurborg

Samninganefndir St.Rv. og  Reykjavíkurborgar funduðu í dag. Þetta er þriðji formlegi fundur nefndanna. Unnið hefur verið í litlum málefnahópum þar sem fulltrúar frá báðum hliðum hafa fjallað um, réttindamál, starfsmat, fræðslumál og unnið í textavinnu. Fundað verður aftur í næstu viku.

21.2.2011

Orlofshús í Stóruskógum til sölu

BSRB auglýsir til sölu 17 orlofshús í Stóruskógum í Borgarbyggð. Svæðið er staðsett vestan við Þjóðveg 1, á móts við Munaðarnes sem Norðurá rennur austan við. Gljúfurá liggur vestan við svæðið. Orlofssvæðið er að stórum hluta vaxið birkikjarri og er þekkt fyrir heita sumardaga og mikla veðursæld. Að auki eru til leigu tvær auðar lóðir á svæðinu, sem reisa á orlofshús á. sjá

21.2.2011

Opinn fundur um neysluviðmið

undefined BSRB stendur fyrir opnum fundi um nýkynnt neysluviðmið með Guðbjarti Hannessyni velferðarráðherra. Fundurinn verður haldinn á fyrstu hæð BSRB-hússins að Grettisgötu 89, fimmtudaginn 24. febrúar og hefst klukkan 16.30.

18.2.2011

Stjórnarfundur BSRB

Á vef BSRB kemur fram að á stjórnarfundi BSRB í dag var samþykkt ályktun um ákvörðun kjararáðs um tímabundin laun dómara.
BSRB átelur ákvörðun kjararáðs um sérstakt tímabundið álag á laun til hæstaréttardómara og dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur. Starf dómara er mikilvægt og engum vafa er undirorpið að mikið álag hefur verið á þeim í kjölfar efnahagshrunsins. Það á hins vegar við um fjölmargar aðrar stéttir. Við mikinn niðurskurð til almannaþjónustunnar hefur álagið á starfsmenn hennar aukist verulega, jafnhliða auknum verkefnum með brýnni þörf og færri starfsmönnum. Ákvörðunin hlýtur að slá tóninn í yfirstandandi kjaraviðræðum og þær stéttir sem búa við mikið álag hljóta að vænta sömu uppbótar. Það er ólíðandi að á meðan ríkisvaldið fæst ekki til að ganga frá kjarasamningum við starfsmenn sína skuli kjararáð hækka laun dómara.

10.2.2011

Samvinna á milli félaga

undefined

Á sameiginlegum fundi Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og SFR með fulltrúum og trúnaðarmönnum var fjallað um það hvort áhugavert og æskilegt væri að auka samvinnuna milli félaganna. Allir vinklar voru til skoðunar í því máli og verða niðurstöður fundarins notaðar í áframhaldandi vinnu um þetta verkefni.

10.2.2011

Framboð til stjórnar

Frestur til framboðs í stjórn Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar rann út kl. 16 miðvikudaginn 9. febrúar. Eitt framboð hafði þá borist auk þeirra fimm sem uppstillingarnefnd hafð lagt til. Það er Eiríkur Finnson matreiðslumeistari í Breiðholtsskóla. Verður því efnt til kosninga fljótlega.

26.1.2011

Uppsilling til stjórnar

Uppstillingarnefnd félagsins hefur lokið störfum og gert eftirfarandi tillögu til uppstillingar í stjórnar Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar.  Í stjórn til tveggja ára: Ása I. Hauksdóttir, Skólavörðustíg 4 C, Reykjavík, Gunnar Rúnar Matthíasson, Bræðratungu 32, Kópavogi, Ingjaldur Eiðsson, Logafold 178, Reykjavík, Jón Bergvinsson, Sautjándajúnítorgi 3, Garðabæ og Þórdís Björk Sigurgestsdóttir, Kársnesbraut 105, Kópavogi. Fyrir í stjórn eru: Garðar Hilmarsson formaður, Engjaseli 31, Reykjavík. Aðrir í stjórn: Guðríður Sigurbjörnsdóttir, Norðurbakka 23, Hafnarfirði, Guðrún Árnadóttir, Bollagötu 16, Reykjavík, Ingveldur Jónsdóttir, Grenigrund 10, Akranesi, Jónas Engilbertsson, Hólabergi 2, Reykjavík, Sigrún Helga Jónsdóttir, Salthömrum 3, Reykjavík. Önnur framboð, ásamt meðmælum 75 lögmætra félagsmanna hið minnsta (með nafni, kennitölu og vinnustað), þurfa að berast til undirritaðs eigi síðar en kl. 16.00 miðvikudaginn 9. febrúar 2011. Auglýsing

26.1.2011

Launakönnun Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar

Ákvörðun var tekin í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar að taka þátt í launakönnun nú á vorönn.  Capasent framkvæmir könnunina  sem er unnin með sama hætti og í samvinnu við SFR –stéttarfélag og VR. Úrtakið í könnuninni eru allir félagsmenn sem eru í  50% starfi eða meira.  Þannig að félagsmenn mega eiga von á því að fá símtal frá Capasent á næstunni. Það verður áhugavert að fá viðmiðun við launasetningi þessarra  tveggja félaga sem eru með félagsmenn sem sinna í mörgum tilfellum sambærilegum störfum og félagsmenn eru í innan Starfsmannafélgs Reykjavíkurborgar.

13.1.2011

BSRB vill fjöskylduvænna samfélag

Í frétt á heimasíðu BSRB kemur fram að  BSRB berst fyrir styttingu vinnuvikunnar í 36 stundir í dagvinnu til að skapa fjölskylduvænna vinnuumhverfi. Þetta er á meðal þeirra verkefna sem aðildarfélögin hafa falið bandalaginu að berjast fyrir, ásamt með lífeyrismálum, því að tryggja framlög í Mannauðspott og að réttur til hlutveikinda verði viðurkenndur, svo eitthvað sé nefnt. Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, segir í samtali við Fréttablaðið að með styttri vinnuviku skapist fjölskylduvænna samfélag. Sjá nánar

13.1.2011

Nýr orlofsvefur opnaður

Nú hefur nýr orlofsvefur verið tekinn í gagnið og er það von okkar að það muni auðvelda félgasmönnum að bóka sér orlofshús og íbúðir félagsins.
Þeir félagsmenn sem ekki nota kreditkort þurfa að hafa samband við skrifstofu til þess að ganga frá pöntun. Við minnum á að þú finnur félaganúmer/lykilorð á félagsskírteini sem sent var félagsmönnum með Fréttabréfi í desember sl.

11.1.2011

Góð skráning á starfslokanámskeið

Félagsmálaskóli BSRB stendur fyrir starfslokanámskeiði á höfuðborgarsvæðinu dagana 31. janúar til 2. febrúar 2011. Námskeiðið verður frá kl. 16.30 til kl. 19.00 hvert kvöld og er haldið í húsnæði BSRB Grettisgötu 89, 1. hæð. Námskeiðið er opið öllum félagsmönnum í aðildarfélögum BSRB sem búsettir eru á höfuðborgarsvæðinu og mökum þeirra. Námskeiðið er einkum ætlað þeim sem eru að nálgast starfslok eða eru nýlega hættir störfum. Þátttöku þarf að tilkynna fyrir 26. janúar á skrifstofu BSRB, í síma 525-8300, eða á netfangið bsrb@bsrb.is Námskeiðið er frítt fyrir alla félaga í aðildarfélögum BSRB og maka þeirra.




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English