Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

12.5.2012

Akranes kom, sá og sigraði

Veitt voru verðlaun við hátíðlega athöfn í gær, föstudaginn 11. maí á Hilton Nordica hótel. Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar var í fyrsta skipti með í stærstu vinnustaðakönnun í samvinnu við VR og SFR stéttarfélag. Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar veitti verðlaun í tveimur flokkum, Stofnunum ársins Borg og bær, í stærri flokki (50 starsmenn eða fleiri) og minni stofnanir (49 starfsmenn eða færri). fyrst til þriðja sæti.  Það er skemmst frá því að segja að  af sex verðlaunum fóru fjögur til vinnustaða á Akranesi, Grundaskóla og Leikskólans Garðasels og svo skemmtilega vill til að það eru systurnar Ingunn og Hrönn Ríkarðsdætur sem stjórna þessum tveimur skólum.

11.5.2012

Grundaskóli og Garðasel - Stofnanir ársins, Borg og bær

Könnunin náði til allra félagsmanna St.Rv. sem voru í 50% starfi eða meira og höfðu verið félagsmenn í a.m.k. fjóra mánuði. Alls voru um 3.000 manns í þýði St.Rv., en af þeim voru um 266 sem fundust ekki, voru veikir, eða áttu ekki að tilheyra þýðinu.  Alls voru því ríflega 2.700 manns í þýði. Svör bárust frá 1.172

10.5.2012

Stofnun Ársins - Borg og bær

Niðurstöður úr könnuninni um valið á Stofnun ársins - Borg og bær 2012 verða kynntar, föstudaginn 11. maí. St.Rv. velur nú „Stofnun ársins – Borg og Bær“ í fyrsta sinn.  Stærsti hópur félagsmanna St.Rv. starfar hjá Reykjavíkurborg en auk þess starfa félagsmenn hjá fyrirtækjum Reykjavíkurborgar, Akraneskaupstað, ríki og fleirum. Nánar hér.

undefined

2.5.2012

Gengið í veðurblíðunni

undefined

Fjölmenni var í kröfugöngunni í Reykjavík í ár, enda blíðskaparveður og fínasta stemming. Þuríður Einarsdóttir formaður Póstmannafélagsins og Kristján Þórður Snæbjarnarson formaður Rafiðnaðarsambandsins héldu ræður. Yndislegur kórsöngur setti svip á útifundinn.

Eftir göngu og útifund fjölmennti fólk í kaffi í boði BSRB og var haft orð á því að það hafi sjaldan verði jafn margir gestir.

27.4.2012

Ársfundir lífeyrissjóðanna

Vekjum athygli félagsmanna á að nú fer að líða að ársfundum lífeyrissjóðanna sem við eigum aðild að. LSS lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga verður með ársfund 8. maí kl. 16 að Borgartúni 30 í húsakynnum Sambands íslenskra sveitarfélaga og LSRb lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkurborgar verður með ársfund 16. maí kl. 15 að Grettisgötu 89.

26.4.2012

Blað stéttarfélaganna 1. maí

undefined

Blað stéttarfélaganna sem gefið er út af  Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar og SFR kemur út í dag. Efni blaðsins tengist 1. maí, en í blaðinu er m.a að finna dagskrá 1. maí í Reykjavík og saga dagsins og stærstu sigrar verkalýðshreyfingarinnar eru raktir.

13.4.2012

Dregið í happadrætti

Launakönnun Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar er nú lokið og viljum við þakka þeim félagsmönnum sem gáfu sér tíma til þess að svara henni. Dregið hefur verið úr númer í happadrættinu þar sem veittir eru glæsilegir ferðavinningar.   
Happadrættisnúmer var í könnuninni, ef númer hefur tapast er hægt að fá upplýsinar hjá: 
tomas.bjarnason@capacent.is .

4.4.2012

Hvatningaverðlaun velferðarráðs Reykjavíkur

undefined Í síðustu viku voru hvatningarverðlaun velferðarráðs Reykjavíkur veitt í fyrsta sinn. Markmið með hvatningarverðlaunum er að örva og vekja athygli á því mannbætandi og  gróskumikla starfi sem fer fram í velferðarþónustu borgarinnar. Starfsmenn  Velferðarsviðs og annarra sviða Reykjvíkurborgar, notendur velferðarþjónustu og samstarfsaðilar var gefinn kostur á að tilnefna. Hægt var að tilnefna einstaklinga, starfsstað, hóp eða verkefni til til verðlauna fyrir eftirtektarverða alúð, þróun og/eða nýbreytni varðandi velferðarmál á árinu 2011.

2.4.2012

Fulltrúar og trúnaðarmenn mennta sig

Í síðustu viku lauk námskeiði hjá fulltrúum og trúnaðarmönnum Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og SFR. En félögin hafa um langt skeið verið með samstarf um þessi námskeið. undefined

19.3.2012

Mikil gleði

undefined

Það var fjör síðastliðinn laugardag þegar félagsmenn í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar og SFR spiluðu bingó og vinningshafar fengu páskaegg í röðum. Yfir hundrað manns mætti. Margir fóru út með hin girnilegustu páskaegg, en ekkert barn fór þó tómhent heim því bingóstjórarnir gáfu lítil egg til þeirra sem ekki höfðu dottið í lukkupottinn.

16.3.2012

Launakönnun frestur framlengdur

Nú fer fram launakönnun félagsins sem Capacent sér um framkvæmd á. Frestur til þess að skila könnun hefur verið framlengdur til þriðjudagsins 20. mars. Við hvetjum félagsmenn til þess að taka þátt, það hjálpar okkur í baráttunni fyrir bættum kjörum.

15.3.2012

PÁSKAEGGJA BINGÓ

Laugardaginn 17. mars kl. 14 standa Menningar- og skemmtinefndir St.Rv. og SFR fyrir páskaeggjabingói. Bingóið er að Grettisgötu 89, 1 hæð. Fjöldi páskaeggja eru í verðlaun. Hvetjum félagsmenn til þess að mæta með börnin sín.

undefined

9.3.2012

Góð mæting á atvinnumessu

undefined

Mikið fjölmenni var á Atvinnumessu sem haldin var í Laugardalshöll 8. mars s.l. Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar var mætt á staðinn og tók á móti fólki með upplýsingar um félagið og þjónustu þess. Rúmlega 1000 störf voru í boði og kynnt þarna.

Það voru pallborðsumræður allann daginn. Þar var meðal annars Elín Björg Jónsdóttir formaður BSRB.

9.3.2012

Laun opinberra starfsmanna dragast aftur úr

Fjallað eru um launamun á launum á almennum og opinberum markaði á heimasíðu BSRB þar kemur fram að umsamin launakjör í kjarasamningum opinberra starfsmanna árið 2011 voru sambærileg og í kjara­samningum á almennum vinnumarkaði. Þrátt fyrir þetta hafa laun starfsmanna á almennum vinnu­markaði hækkað að meðaltali umfram laun opinberra starfsmanna. Það bendir til þess að umsvif á almennum vinnumarkaði séu að aukast, þar sem þessar launahækkanir eru langt umfram kjara­samnings­bundnar hækkanir.  

8.3.2012

Opinn sjóðsfélagafundur

Haldinn verður opinn fundur á Grand Hóteli við Sigtún, 13. mars nk. kl. 17.00. Farið verður yfir rekstur og afkomu Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga og lífeyrissjóða í hans rekstri í ljósi nýútkominnar skýrslu Landssamtaka lífeyrissjóða um úttekt á fjárfestingastefnu, ákvarðanatöku og lagalegu umhverfi lífeyrissjóðanna í aðdraganda bankahrunsins 2008. Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta á fundinn. sjá dagskrá

 

8.3.2012

Aðalfundur

Aðalfundur Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar var haldinn í gær, miðvikudaginn 7. mars. Garðar Hilmarsson formaður fór yfir helstu atriði úr skýrslu stjórnar sem lá frammi fyrir fundinum og hafði verið send öllum félagsmönnum í Fréttabréfi félagsins.

6.3.2012

Alþjóðlegur baráttudagur kvenna

Áttundi mars er alþjóðlegur baráttudagur kvenna fyrir friði og jafnrétti. Boðið er til glæsilegrar dagskrár í Iðnó 8. mars kl. 17 undir heitinu "Vorið kallar". Ávörp halda Védís Guðjónsdóttir, Sigríður Rut Hilmarsdóttir, Steinunn Þóra Árnadóttir, Suomia Islami, Claudia Ashonie og Guðrún Hannesdóttir. Magga Stína syngur við undirleik Kristins Árnasonar. Fundarsjóri verður Kolbrún Halldórsdóttir. dagskrá

1.3.2012

Fundur með atvinnuleitendum

undefined

Þriðjudaginn 28. febrúar hélt  Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar í samvinnu við SFR stéttarfélag sameiginlegan fund fyrir atvinnuleitendur innan félaganna. Atvinnleitaendur innan þessara tveggja félaga eru rúmlega 300 manns. Kynnt voru réttindi innan félagsins

13.2.2012

Atvinnumessa 8. mars í Laugardalshöll

undefined Verkefnið vinnandi vegur sem er á vegum samráðshóps stjórnvalda, stjórnmálaflokka og aðila vinnumarkaðarins um menntun og vinnumarkaðsúrræði er nú lögð af stað með að hrinda í framkvæmd aðgerðum sem eiga að tryggja allt að 1.500 atvinnuleitendum störf og starfstengd úrræði. Sérstök áhersla er lögð á hvata og úrræði fyrir langtíma atvinnulausa. Átakið hefur hlotið nafnið VINNANDI VEGUR. Atvinnuleitendur eru hvattir til þess að mæta í Laugardalshöllina 8. mars nk.

13.2.2012

Engin mótframboð

Frestur til þess að koma með framboð til stjórnarkjörs í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar rann út sl. föstudag, 10. febrúar. Engin mótframboð bárust, þannig að tillaga uppstillingarnefndar að skipan í stjórn félagsins stendur. Sjá auglýsingu

7.2.2012

Framboð til stjórnarkjörs

Uppstillinganefnd Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar hefur gert eftirfarandi tillögur um félagsstjórn fyrir næstu tvö árin, Formaður: Garðar Hilmarsson, Engjaseli 31, Reykjavík.
Í stjórn til tveggja ára: Guðríður Sigurbjörnsdóttir, Norðurbakka 23 Hafn., Herdís Jóhannsdóttir, Veghúsum 13 Rvk., Ingveldur Jónsdóttir, Grenigrund 10 Akranesi, Jónas Engilbertsson, Hólabergi 2 Reykjavík og Sigrún Helga Jónsdóttir, Salthömrum 3 Rvk. Önnur framboð, ásamt meðmælum 75 lögmætra félagsmanna hið minnsta (með nafni, kennitölu og vinnustað), þurfa að berast til félagsins eigi síðar  en kl. 16.00 föstudaginn 10. febrúar n.k.  sjá auglýsingu

27.1.2012

Launakönnun og Stofnun ársins – munið að svara

St.Rv. leggur nú, annað árið í röð, af stað með launakönnun fyrir félagsmenn og verður könnunin send félagsmönnum nú í febrúar. Einnig verður lögð fyrir félagsmenn könnunin „Stofnun ársins“ og verður valin fyrirmyndarstofnun úr stofnunum og fyrirtækjum borgarinnar og Akranesskaupstaðar. 

17.1.2012

Samspil lífeyris og almannatrygginga - þín framtíð

Málþing BHM, BSRB og KÍ um samspil lífeyris og almannatrygginga verður haldið á Grand hótel Reykjavík 19. janúar nk. frá kl.13.00-16.00. Benedikt Jóhannesson frá Talnakönnun kynnir niðurstöður skýrslu sem hann vann að beiðni BHM, BSRB og KÍ um samspil lífeyrisgreiðslna frá lífeyrissjóðum og Tryggingastofnun. Málþingið er öllum opið og aðgangur er ókeypis. Þótt svo sé er fólk beðið um að skrá sig til þátttöku og er það gert hér eða í gegnum hnapp til hægri á forsíðu BSRB.

13.1.2012

BSRB, KÍ og BHM vara við tilfærslu á málefnum atvinnuleitenda

Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRBÁ heimasíðu BSRB kemur fram að stjórnvöld undirbúa nú tilraunaverkefni sem felur í sér að stéttarfélög taka að sér hluta af þjónustu atvinnuleitenda. BSRB, KÍ og BHM vara eindregið við því að þessi leið verði farin og óttast að fyrirkomulagið verði til að skerða bolmagn Vinnumálastofnunar til að sinna starfi sínu.

10.1.2012

Krafist leiðréttingar á kjörum

Fulltrúaráðsfundur Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar, haldinn 10. janúar 2012, krefst leiðréttingar á launum. Í febrúar 2009 var Reykjavíkurborg fyrsti opinberi vinnuveitandinn til þess að skerða kjör starfsmanna sinna. Uppsögn var ýmist á fastlaunasamningum eða

4.1.2012

Starfslokanámskeið BSRB

BSRB stendur fyrir starfslokanámskeiði fyrir félagsmenn aðildarfélaga innan BSRB. Námskeiðið verður haldið dagana 31. janúar og 2. febrúar 2012 frá kl. 16.30 til kl. 19.00 báða dagana og er haldið í húsnæði BSRB Grettisgötu 89, 1. hæð. Námskeiðið er frítt og er einkum ætlað þeim sem eru að nálgast starfslok eða eru nýlega hættir störfum og er opið öllum félagmönnum aðildarfélaga innan BSRB og mökum þeirra. Skráning hefst 5. janúar 2012 á vef BSRB www.bsrb.is og í síma 525 8306. Sjá dagskrá undir nánar.

undefined

2.1.2012

Jólaballið vel sótt

undefined

Jólaball St.Rv. og SFR sem haldið var 29. desember síðast liðinn var þrátt fyrir slæma færð vel sótt. Rúmlega 200 manns sungu og dönsuðu í kringum jólatré að Gullhömrum svo undir tók í sköflunum. Auðvitað kíktu jólasveinarnir við og skemmtu börnum og fullorðnum eins og meðfylgjandi myndir sýna.




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English