Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

30.8.2004

Stór stund fyrir félagsmálafræðsluna

Félagsmálaskóli alþýðu og Háskólinn á Akureyri hafa í sameiningu mótað nám á háskólastigi fyrir stjórnarmenn, starfsmenn og trúnaðarmenn verkalýðsfélaga. Námið nær yfir fjórar annir og er mótað með það fyrir augum að það sé hægt að stunda með vinnu. Samningur milli aðila var undirritaður í dag.

Íslenskt þjóðfélag hefur gengið í gegnum miklar breytingar á síðustu árum. Það gildir um öll svið samfélagsins, þar með talið samskipti á vinnumarkaði. Sífellt meiri kröfur eru gerðar til þeirra sem standa í forsvari fyrir hagsmunasamtök, hvað varðar þekkingu á t.d. hagfræðilegum málefnum, vinnurétti og vinnumarkaðsmálum almennt. Verkalýðshreyfingin hefur í gegnum tíðina brugðist við þessum breytingum með markvissum hætti og byggt þá þjálfun og fræðslu sem hún stendur fyrir upp með það fyrir augum að mæta þessum auknu kröfum.

Með samstarfi Félagsmálaskólans og Háskólans á Akureyri er verið að stíga nýtt – en rökrétt skref í þessari uppbyggingu. Til að byrja með verður boðið upp á fjórar sjálfstæðar annir, sem hægt er að taka í hvaða röð sem er. Það gerir það að verkum að hægt er að hefja námið hvenær sem er. Kennslan fer að mestu leyti fram í gegnum fjarfundabúnað, en Háskólinn á Akureyri hefur verið í farabroddi hvað varðar þróun nýrra kennsluaðferða.

Meðal viðfangsefna í náminu verða vinnuréttur og -löggjöf, hagfræði, opinber stjórnsýsla, alþjóðaþróun, stjórnun, stefnumótun, fjármál fyrirtækja, fjárfestingar og mat á valkostum og upplýsingatækni.

Nú þegar hefur á sjötta tug starfsmanna verkalýðsfélaga og forystumanna í verkalýðshreyfingunni skráð sig í námið.

Félagsmálaskóli alþýðu eru í eigu Alþýðusambands Íslands og Bandalags starfsmanna ríkis og bæja. Undir samninginn rituðu Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, fyrir hönd Alþýðusambandsins, Sjöfn Ingólfsdóttir, formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar, fyrir hönd BSRB og Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á Akureyri.




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English