Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

15.12.2004

Mikilvægur og langþráður áfangi í höfn

Sjöfn Ingólfsdóttir formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og varaformaður BSRB sagði í dag við undirritun samkomulags sem náðst hefur við Reykjavíkurborg um viðbótarframlag borgarinnar í lífeyrissjóði starfsmanna hennar, að þetta væri mikilvægur og langþráður áfangi.

Samkomulagið felur í sér að Reykjavíkurborg greiðir viðbótarframlag í lífeyrissjóð, allt að 2% framlag gegn jafnháu framlagi starfsmanns. Starfsmenn ríkisins hafa haft þetta ákvæði í samningum hjá sér en sveitarfélögin ekki.

Ögmundur Jónasson undirritaði samkomulagið fyrir hönd BSRB og Sjöfn Ingólfsdóttir fyrir hönd Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar í dag en Birgir Björn Sigurjónsson, Kristbjörg Stephensen, Snorri Jóelsson og Friðrik Friðriksson fyrir hönd Reykjavíkurborgar með fyrirvara um samþykki borgarráðs. Samkomulag BSRB og borgarinnar tekur til þeirra starfsmanna sem borgin semur beint við en ekki til þeirra sem launanefnd sveitarfélaga semur við fyrir hönd Reykjavíkurborgar. Ögmundur sagði við undirritunina að mikil áhersla yrði nú lögð á að ganga frá sambærilegu samkomulagi við Samband íslenskra sveitarfélaga.

Samkomulagið felur í sér að eftirfarandi grein verði felld inn í gildandi kjarasamninga við Reykjavíkurborg:

„Þegar starfsmaður leggur til viðbótarframlag í lífeyrissjóð (sameignar- eða séreignarsjóð), greiðir vinnuveitandi af heildarlaunum allt að 2% framlag gegn jafnháu framlagi starfsmanns. Samkomulagið tekur gildi 1. janúar 2005.”




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English