BSRB, BHM og KÍ undirrituðu 22.desember sl. samkomulag við Reykjavíkurborg,ríki, og launanefnd sveitarfélaga um ýmis réttindamál. Ákveðið var að semja sameiginlega um réttindamálin en samningsrétturinn varðandi kaup og kjör er hjá einstökum aðildarfélögum þessara bandalaga og er ljóst að þau munu ekki semja í heildarsamfloti að þessu sinni.

Í samkomulaginu sem undirritað var í morgun er kveðið á um hækkun bóta vegna örorku og slysa í starfi. Auk þess var samið um hækkun iðgjalda í Fjölskyldu- og styrktarsjóð og verður gjaldið nú 0,55% af heildarlaunum en var áður 0,41%. Stjórn FOS hefur ákveðið að helmingur þessarar hækkunar, eða 0,07%, fari í fæðingarorlofshluta sjóðsins en hinn helmingurinn í styrktarsjóði. Þessi skipting verður síðan tekin til endurskoðunar.