Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

10.3.2005

Aðalfundur

Úr stjórn gengu: Guðrún Valdemarsdóttir á Mælingadeild Borgarverkfræðings og Björn Arnórsson vélsmiður á LSH.  Áður hafði Ása Clausen, áður starfsmaður Innkaupastofnunar Reykjavíkur og gjaldkeri félagsins, gengið úr stjórn, í september s.l. en hún tók við starfi fjármálastjóra á skrifstofu félagsins, þegar Birna Stefánsdóttir starfsmaður okkar til margra ára, lét af störfum.

Stjórnin hefur þegar skipt með sér verkum: Varaformaður Jakobína Þórðardóttir, jafnframt Upplýsinga og fræðslufulltrúi félagsins. Gjaldkeri Víglundur Rúnar Jónsson starfsmaður á Orkuveitu Reykjavíkur og ritari er starfsmaður félagsins Garðar Hilmarsson, sem jafnframt er formaður B-hluta félagsins.

Fyrir í stjórn eru Sjöfn Ingólfsdóttir formaður, Guðrún Árnadóttir starfsmaður hjá Félagsþjónustunni, Pétur Frantsson starfsmaður Fræðslumiðstöðvar, Jónas Engilbertsson starfsmaður Strætó bs. Þórdís Sigurðardóttir starfsmaður Íþrótta og tómstundaráðs og Sverrir Axelsson áheyrnarfulltrúi Eftirlaunafólks áður velstjóri hán Orkuveitu Rekjavíkur.

 

Myndir af aðalfundi 5. mars 2005


Nýir og gamlir stjórnarmenn St.Rv. samankomnir,
Hafdís Sigurðardóttir fyrrverandi stjórnarmaður, Þóra
Sigurðardóttir ný í stjórn og starfsmaður Fasteignastofu
Reykjavíkur, Guðrún Valdimarsd. fráfarandi stjórnarmaður
og Laufey Jónsdóttir 1. fulltrúi í 12. deild.

 


Fundinum stjórnað af röggsemi af Gísla Árna Eggertssyni.

 


Fjármálastjóri Ása Clausen, formaður Sjöfn Ingólfsdóttir og
Gísli Árni Eggertsson fundarstjóri.

 


Nýr stjórnarmaður Jón Ingi Hilmarsson starfsmaður
Landspítala háskólasjúkrahúss. Úlfur starfsmaður Strætó bs.
og í Fulltrúaráði félagsins, Bryndís af LSH

 


Þorsteinn Gunnarsson starfandi hjá Strætó bs. tók til máls
undir liðnum Önnur mál. Hann fjallaði um þátttöku BSRB í
samráðsnefnd um verðlagningu landbúnaðarafurða. 

 


Eiríkur félagsmaður starfandi á leikskólanum Grandaborg tók
til máls undir liðnum Önnur mál. Hann ræddi um skattamál
og lífeyrismál.

 

 

 




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English