Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

13.3.2005

Samningar við ríkið í höfn

Samningnum svipar í öllum meginatriðum til samnings SFR við ríkið og vegna háskólamenntaða félagsmanna er tekið mið af kjarasamningi BHM við ríkið. Samningurinn mun verða kynntur félagsmönnum á næstu dögum og í framhaldi af því verða greidd um hann atkvæði.

Helstu atriði í  kjarasamning fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs og Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar vegna félagsmanna á LSH sem undirritaður var laugardaginn 12. mars s.l. (ath. gildir ekki að öllu leyti fyrir háskólahóp).

Samningstíminn:
Kjarasamningurinn er afturvirkur um einn mánuð,  gildir frá 1. febrúar 2005 og til  30. apríl 2008 og fellur þá úr gildi án sérstakrar uppsagnar.

Eingreiðsla kr. 20.000  fyrir fullt starf í desember og janúar sl. Starfsfólk í hlutastarfi eða þeir sem hafa starfað skemur fá hlutfallslega greiðslu.(Sjá bókun 3)

Laun

1. febrúar 2005 hækka öll laun um 3,25% 

1. janúar 2006 hækka öll laun um 2,50%

1. janúar 2007 hækka öll laun um 2,25%

1. janúar 2008  hækka öll laun um 2,00%

Þannig hækkar launataflan um 10.4% að lágmarki , en við bætast sérstakar hækkanir vegna stofnanasamnings.

Almennt verða launahækkanir á á bilinu 10.5 - 15.% á samningstímanum með hækkun launatöflu, með fjármagni til stofnanasamnings og launatöflubreytingu.

Ný launatafla verður tekin upp 1. maí 2006
Rammarnir hverfa en í staðinn verða 45 launaflokkar með 6 lífaldursþrepum. (Þau sömu og eru í B-ramma í dag.) frá sama tíma tekir gildi ný launatafla háskólamenntaðra félagsmanna og verða launaflokkarnir 18. 
Tryggja skal að enginn lækki í mánaðarlaunum fyrir dagvinnu við yfirfærslu í  nýja launatöflu.  

Endurskoðun stofnanasamninga og styrking lauankerfisins. Stofnanasamningar verða endurskoðaðir og aðlagaðir nýrri launatöflu fyrir 1. maí 2006 og fylgja því 2.4.%. Og 1. maí 2007 verða stofnanasamningar aftur endurskoðaðir og fylgja því 2%.

Tímakaup í dagvinnu
Tímakaup í dagvinnu er 0,615% af mánaðarkaupi í hverjum launaflokki og þrepi.

Desemberuppbót hækkar og verður:

Á árinu 2005 kr. 39.700
Á árinu 2006 kr. 40.700
Á árinu 2007 kr. 41.800

Orlofsuppbót hækkar og  verður:

Á árinu 2005 kr. 21.800
Á árinu 2006 kr. 22.400
Á árinu 2007 kr. 23.000
Á árinu 2008 kr. 23.600


Fræðslumál
Iðgjald vinnuveitanda í fræðslusjóði hækkar í  0,72% af heildarlaunum félaga í St.Rv., og skiptist það sem hér segir: Í Starfsmenntunarsjóð  er greitt 0,22% af heildarlaunum og í Þróunar- og símenntunarsjóð  0,50% af heildarlaunum félagsmanna.

Tryggingar 
Bætur vegna slysa í starfi eða utan starfs hækka, sbr. samkomulag við heildarsamtök opinberra starfsmanna.

Fjölskyldu - og styrktarsjóður
Iðgjald hækkar, var 0.41% en fer í í 0,55%

Uppsagnarfrestur lengist og tekur mið af starfs-og lífaldri starfsmanns. Sé starfsmanni sagt upp, eftir a.m.k. 10 ára samfellt starf hjá sömu stofnun, er uppsagnarfrestur sem hér segir:

4 mánuðir ef starfsmaður er orðinn 55 ára
5 mánuðir ef hann er orðin 60 ára
6 mánuðir þegar hann er orðinn 63 ára
Starfsmaður getur hins vegar sagt upp starfi sínu með þriggja mánaða fyrirvara.

Eftirfarandi bókanir fylgja samningnum:

Bókun 1
Upplýsingagjöf til stéttarfélaga um laun félagsmanna hefur verið með misjöfnum hætti undanfarin ár og farið í gegnum ólíka miðla. Aðilar eru sammála um að kerfisbinda þessa upplýsingagjöf við innleiðingu nýrra upplýsingakerfa ríkisins. Vinnu við grunnskilgreiningar fyrir slíkar upplýsingar og framsetningu þeirra skal lokið innan ársins eða í tæka tíð fyrir upptöku nýs launakerfis, þ.e. að Fjársýslu ríkisins veitist ráðrúm til að formgera slíkar upplýsingar í kerfum ríkisins fyrir 1. maí 2006.

Bókun 2
Aðilar eru sammála um að greiða áfram sérstakt framlag til Fræðslusetursins Starfsmenntar. Framlag þetta skal nema 0,25% af heildarlaunum frá 1. febrúar 2005 til aprílloka 2008. Fræðslusetrið verður áfram vettvangur samstarfs stéttarfélaga og ríkisins og skal vera opið fyrir samstarfi við fleiri félög en nú standa að því.

Bókun 3
Vegna þeirra tafa, m.a. vegna tilrauna til kerfisbreytinga, sem urðu á samningsgerðinni frá lokum síðasta samningstímabils til undirritunar eru aðilar sammála um að þær verði bættar með eingreiðslu til þeirra starfsmanna sem nú eru í starfi. Upphæð þeirrar eingreiðslu skal vera 20.000 kr. fyrir fullt starf mánuðina desember og janúar sl. Þeir sem eru í hlutastarfi og/eða hafa starfað skemur skulu fá hlutfallslega greiðslu.

Bókun 4  fjallar um að með sama hætti og verið hefur er gerður sérstakur samningur milli samningsaðila vegna háskólamenntaðra félagsmanna innan St.Rv. varðandi þá þætti sem fjallað eru um í 1. kafla, um kaup, undirköflum 1.1 - 1.4, 10 kafla um fræðslumál svo og um stofnanaþátt og samstarfsnefndir.

Ennfremur fylgir sérstök bókun sem fjallar um launaþróun háskólamenntaðra félagsmanna á samningstímabilinu.




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English