Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

31.3.2005

Fundur með borgarstjóra um stjórnkerfisbreytingar hjá Reykjvíkurborg

Fundur borgarstjóra vegna breytinga á bókhaldi og launaafgreiðslu Formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar, Sjöfn Ingólfsdóttir, og formaður BSRB, Ögmundur Jónasson, óskuðu eftir fundi með borgarstjóra til að ræða áhyggjur starfsmanna vegna fyrirhugaðra breytinga á bókhaldsþjónustu og launavinnslu á stofnunum borgarinnar. Fundurinn var haldinn 30. mars í Ráðhúsinu, að viðstöddum ofangreindum ásamt sviðsstjóra Stjórnsýslu- og starfsmannasviðs, Helgu Jónsdóttur, og forstöðumanni kjaraþróunardeildar, Birgi Birni Sigurjónssyni. Á fundinum var ákveðið að borgarstjóri muni ásamt embættismönnum mæta á fund fulltrúaráðs Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar 7. apríl næstkomandi og kynna þar þær stjórnkerfisbreytingar sem ákveðnar hafa verið hjá Reykjavíkurborg og þá einkum þær breytingar er varða launavinnslu og bókhaldsþjónustu. Í framhaldinu er áformað að halda fundi með hlutaðeigandi starfsmönnum til að kynna málið betur og fá fram sjónarmið og hugmyndir starfsmanna varðandi útfærslu þessara breytinga.




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English