Árleg Menningarhátíð BSRB í Munaðarnesi verður haldin laugardaginn 11. júní. Á hátíðinni verður opnuð myndlistarsýning Önnu Hrefnudóttur. Skagfirska söngsveitin mun syngja og Þorsteinn frá Hamri lesa upp. Ávarp flytur Ögmundur Jónasson formaður BSRB. Menningarhátíðin hefst kl. 14.00 og er opin öllum. Aðgangur er ókeypis og er boðið upp á veitingar. Sýningin á verkum Önnu Hrefnudóttur verður opin á afgreiðslutíma veitingarsalsins í þjónustumiðstöðinni í Munaðarnesi fram til 1. október.
