Árið 2002 greiddu 43,4% þeirra sem greiða almennt lífeyrisiðgjald einnig í séreignarlífeyrissjóð, 46,5% árið 2003 og 50,2% í fyrra. Í fréttabréfinu kemur fram að meðallaunatekjur þeirra sem greiða í séreignarlífeyrissparnað sé lægri en hjá heildinni og bendi það til þess að þeir séu heldur yngri en meðaltalið.
Reykjavíkurborg samþykkti í desember 2004 að greiða mótframlag vegna séreignarlífeyrissparnaðar félagsmanna.