Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

22.9.2005

Afsláttur fyrir félagsmenn á Kabarett

Leikhópurinn Á senunni býður félagsmönnum í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar 10% afslátt á miðaverði á sýninguna Kabarett í Íslensku óperunni dagana 1., 8., 15. eða 22. október.  Almennt miðaverð er 3900 eða 5900 krónur. Einnig býðst hópurinn til að semja við Café Sólon um veitingar fyrir hópa fyrir sýningu og í hléi á vægu verði.  Kabarett er sjöunda verkefni hópsins og hefur verið á teikniborðinu í nokkur ár.  Eiginlegur undirbúningur hefur staðið frá síðasta sumri.  Verkið fjallar um Berlín á uppgangstíma nasistanna í byrjun fjórða áratugar síðustu aldar.  Bandaríkjamaðurinn Cliff Bradshaw kemur til Berlínar með það í huga að skrifa skáldsögu.  Þar dregst hann fljótt inn í hringiðu, þar sem samfélagið sveiflast á milli öfganna.  Annars vegar er partýið og brjálæðið í Kit Kat klúbbnum og hinsvegar eru það stjórnmálin, þar sem nasistar verða sífellt sterkari.  Hann kynnist söngkonunni Sally Bowles og hún snýr tilveru hans á hvolf.  Sofandi streymir veröldin að feigðarósi og Kabarettinn speglar það sem á gengur.

Allar upplýsingar veitir Ingvar Sverrisson framkvæmdastjóri í síma 824 7722 eða miðasala Íslensku óperunnar í síma 511 4200.   Þá má skrifa okkur á midasala@opera.is eða senan@senan.is

Sjá fréttatilkynningu frá leikhópnum




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English