Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

21.12.2005

Viðræður í gangi

Viðræður við Strætó bs, Orkuveitu Reykjavíkur og Faxaflóahafnir eru í fullum gangi og af endurnýjuðum krafti nú eftir að kjarasamningur félagsins við Reykjavíkurborg hefur verið samþykktur og er sá samningur auðvitað lagður til grundvallar af hálfu félagsins í viðræðunum. Viðræður þessar hafa gengið vel í öllum tilfellum og eru nú langt komnar, en stefnt er að því að ljúka samningum á fyrstu dögum nýs árs og þannig tryggja starfsmönnum þessara fyrirtækja, félagsmönnum í St.Rv. hliðstæðar kjarabætur og felast í nýgerðum samningi við borgina.Viðræður við Launanefnd sveitarfélaga vegna félagsmanna hjá Innheimtustofnun sveitarfélaga hafa hins vegar legið niðri nú um hríð, þar sem Launanefndin hefur frestað öllum kjaraviðræðum um nokkurn tíma, vegna m.a ummæla sveitastjórnarmanna (bæjarstjóra) um samningsgerð Reykjavíkurborgar að undanförnu. Þessu ástandi höfum við sýnt þolinmæði undanfarnar tvær til þrjár vikur, en þolinmæði okkar er takmörk sett og mun félagið taka afstöðu til hvort, og þá hvaða aðgerða verði gripið strax á nýju ári hafi þá ekki þegar orðið breyting á. Aðrar viðræður eru í eðlilegum farvegi.




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English