Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

16.1.2006

Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar 80 ára

Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar var stofnað 17. janúar 1926 og er því 80 ára um þessar mundir. Stjórn og fulltrúaráð félagsins hefur ákveðið að minnast þessara merku tímamóta með ýmsum hætti. Viðamesta framtak félagsins í tilefni afmælisins verður að styðja við bakið á starfsemi í þágu barna og ungs fólks með fjárframlögum. Barna- og unglingageðdeild LSH mun njóta góðs af framtakinu og einnig Fjölsmiðjan í Kópavogi en hún starfrækir, með meiru, verkþjálfunar- og framleiðslusetur fyrir ungt fólk á aldrinum 16-24 ára. Þá munu stjórn og fulltrúaráð efna til nokkurra viðburða á afmælisárinu fyrir félagsmenn og velunnara félagsins.

Stofnendur Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar voru 68 og í þeim hópi voru aðeins tvær konur.  Í dag eru félagsmenn rösklega þrjú þúsund og konur í miklum meirihluta, eða 66%. Þá hefur deild eftirlaunafólks verið starfandi innan félagsins frá 1978 og hefur innan sinna raða yfir 600 manns.

Frá upphafi hefur helsta verkefni Starfsmannafélagsins verið að berjast fyrir bættum kjörum og atvinnuöryggi félagsmanna. Auk kjara- og réttindamála hafa svo tveir málaflokkar, orlofs- og fræðslumál, verið aðalviðfangsefni félagsins á síðustu áratugum. Félagið hefur nú nýverið lokið gerð kjarasamninga fyrir allan þorra félagsmanna sinna. Helsti viðsemjandi er sem fyrr Reykjavíkurborg en í seinni tíð hafa fleiri aðilar bæst við og þar á meðal borgarfyrirtæki með breyttu rekstrarformi en í meirihlutaeigu borgarinnar. Má þar m.a. nefna Orkuveitu Reykjavíkur sf., Strætó bs., Faxaflóahafnir sf. og Félagsbústaði hf.

Starfsmannafélagið var á meðal stofnaðila BSRB árið 1942 og er nú annað fjölmennasta félagið innan vébanda þess. Frá upphafi hefur félagið tekið virkan þátt í starfsemi bandalagsins, átt fulltrúa í stjórn þess, sem og fjölmörgum nefndum og ráðum á vegum samtakanna. Fyrsti formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar var Ágúst Jósefsson heilbrigðisfulltrúi. Núverandi formaður er Sjöfn Ingólfsdóttir og er hún jafnframt 1. varaformaður BSRB.




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English