Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

2.2.2006

Garðar Hilmarsson næsti formaður St.Rv.

Sjöfn Ingólfsdóttir sem verið hefur formaður félagsins frá 1991 ákvað að gefa ekki kost á sér til starfans lengur. Hún er jafnframt 1. varaformaður BSRB og gegnir því embætti áfram.

Garðar Hilmarsson hefur setið í stjórn félagsins frá árinu 2000 og áður verið um langt skeið í fulltrúaráði félagsins. Hann hefur frá stonun  B-hluta félagsins verið formaður þess hluta, en það er deild starfsmanna hlutafélaga í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar. Hann starfaði áður hjá SKÝRR en undanfarin ár hefur hann verið starfsmaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar.

Tveir nýir koma inn í stjórn Starfsmannafélagsins á aðalfundinum en það eru Guðríður Sigurbjörnsdóttir og Hallgerður Inga Gestsdóttir en þær hafa báðar setið í fulltrúaráði félagsins í talsverðan tíma.




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English