Dagskrá fyrir vorönn 2006
Ljósmyndun
|
Tími: a) Þri. 14. og 21. feb. kl. b) Þri. 14. og 21. mars kl. Lengd: 8 kest. Staður: Grettisgötu 89, 4. hæð. Leiðbeinandi: Pálmi Guðmundsson Þáttökugjald kr. 1000.- |
Lýsing: Að kenna undirstöðuatriði í stafrænni ljósmyndatækni, almennri myndatöku (landslag, portrett og fl.) og hvernig eigi að meðfara myndir almennt til að mynda hvernig beri að setja myndir í tölvu, skipuleggja þær og geyma, hvernig eigi að skipuleggja myndasafn sem og laga og prenta út myndir. Ath. Æskilegt er að þátttakendur hafi meðferðis myndavél og að hún sé fullhlaðin |
Hvað ætla ég að
- Vinnustofa og hugmyndir
|
Tími: Mið. 22. febrúar kl. Lengd: 4 kest. Staður: Grettisgötu 89, Leiðbeinandi: Þórarinn Eyfjörð Ekkert þátttökugjald. |
|
Lýsing: Sumarleyfið er sá tími sem flest okkar bíða eftir með mikilli tilhlökkun. Í sumarfríinu á allt að gerast; þá á að hvílast, sinna börnunum betur og Hvernig tekst okkur að láta væntingar okkar til sumarfrísins rætast? Þurfa góðu áformin að víkja fyrir skyldustörfum sem ekki náðist að klára fyrir sumarleyfið? Fyrir utan allt það góða sem við ætlum að Hvað með peninga? Það kostar að að fara í frí og ferðast. Ætlum við að fara til útlanda? Ætlum við að ferðast innanlands? Hvaða útgjöld leggjast ofaná hinn venjulega rekstur okkar? Hvað með hugmyndir? Hvað langar mig að Námskeið þetta er hugsað sem vinnustofa þar sem unnið verður með hugmyndir og leiðir til að auka líkur á því að við getum látið væntingar okkar til sumarfrísins rætast. Námskeiðið byggist upp á fyrirlestrum, innleggjum, hugmyndavinnu, hópaverkefnum, ofl. |
Hvort ég get? Ekki málið NÝTT
|
Tími: Fim. 2., mán. 6., fim. 9. og mán. 13. mars kl. 19-22. Lengd: 16 kest. Staður: Grettisgötu 89, 4. hæð Leiðbeinandi: Dr. Hallfríður Þórarinsdóttir mannfræðingur. Þátttökugjald kr. 1.000.- |
Lýsing: Námskeiðið miðar að því að auka sjálfstraust einstaklinga, gera þá öruggari og ánægðari með sig og kenna ýmsar aðferðir til að ná þeim markmiðum. Þátttakendur eru vaktir til vitundar um tengsl jákvæðrar sjálfsímyndar og góðra samskipta. Mótun og inntak sjálfsímyndar skoðað, sýnt fram á að hún er lifandi og breytanleg og rýnt í mikilvægi samspils hugsunar og hegðunar. Aðferðir og æfingar í markmiðssetningu og ákveðniþjálfun. Námskeiðið byggir á lifandi samræðum kennara og þátttakenda. |
Launajafnrétti NÝTT
Launamunur karla og kvenna.
|
Tími: Mið. 7. mars. kl. 16.30-17.30. Lengd: 1 klst. Staður: Grettisgötu 89, 4. hæð Fyrirlesari: Lilja Mósesdóttir prófessor. Ekkert þátttökugjald. |
Lýsing: Mælingar, skýringar og aðgerðir. Lilja Mósesdóttir, mun gera grein fyrir niðurstöðum norræna verkefnisins Mælistikur á launajafnrétti. Markmið verkefnisins var að meta tölfræðiupplýsingar um kynbundinn launamun á Norðurlöndunum, greina ástæður hans og safna upplýsingum um aðgerðir til að draga úr launamun kynjanna. |
Skattaframtal
|
Tími: Mið. 15. mars. kl. 16:30-19:00 Lengd: 3 kest. Staður: Grettisgötu 89, 4. hæð Leiðbeinandi: Ekkert þátttökugjald. |
Lýsing: Að þátttakendur öðlist færni í að fylla út skattaframtal. Jafnframt verða veittar upplýsingar um þann rétt til frádráttar, afsláttar og bóta sem þeir eiga samkvæmt lögum. Þá verður einnig kynnt hvernig fólk ber sig að við framtalsskil á netinu. |
Vatnið í náttúru Íslands – Náttúran í vötnum Íslands. NÝTT
|
Tími: Mið. 22. mars kl. 17-18. Lengd: 1 klst. Staður: Grettisgötu 89, 4. hæð Fyrirlesari: Dr. Hilmar J. Malmquist líffræðingur, forstöðumaður Náttúrufræðistofu Kópavogs Ekkert þátttökugjald. |
Lýsing: Fjallað verður um vatnafræðilegan fjölbreytileika íslensku vatnaauðlindarinnar, náttúrufræðileg sérkenni, þjónustu vatnaauðlindarinnar við land og þjóð og hvar skóinn kreppir helst að í umgengni við auðlindina. |
Með allt á hreinu? Kjaramál
|
Tími: Þri. 4. apríl kl. Lengd: 3 kest. Staður: Grettisgötu 89, 4. hæð Leiðbeinandi: Sverrir Jónsson hagfræðingur. Ekkert þátttökugjald. |
Lýsing: Markmiðið með námskeiðinu er að þátttakendur fræðist um ýmis algeng atriði í kjarasamningnum sem gott er að þekkja. Farið verður yfir uppbyggingu launaseðla og lauflétt dæmi leyst í sameiningu. |