|
Persónuvernd leiðbeinir Fasteignamati
Í bréfi Persónuverndar segir m.a.: "Persónuvernd leiðbeinir FMR hér um að vísa til vöktunarreglna Persónuverndar í starfsreglum stofnunarinnar. Skýra þarf nánar hvernig framkvæmd netvöktunar sé háttað innan stofnunarinnar og veita fullnægjandi fræðslu um hana. Hvað varðar tölvupóstkerfi stofnunarinnar þá þarf að vísa með skýrum hætti í vöktunarreglur Persónuverndar sem hafa að geyma sérákvæði um tölvupóst, s.s. hvenær heimilt sé að skoða tölvupóst starfsmanna. Persónuvernd leiðbeinir FMR einnig um að nota ekki það viðmið að allur tölvupóstur sé eign stofnunarinnar. Að lokum skal einnig bent á að vinnuveitandi getur ekki með eigin reglum takmarkað þau réttindi sem starfsmanni eru fengin í lögum og reglum um meðferð persónuupplýsinga." Það er t.d. æskilegt að í starfsreglunum væri að finna ákvæði sem tæki til þeirra tilvika sem upp geta komið ef starfsmaður fer fyrir mistök inn á „óviðeigandi“ síður í skilningi reglnanna, enda gæti slíkt brot á reglunum talist brot í starfi samkvæmt lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins (70/1996). |