|
Félagsmálaskóli alþýðu heldur námskeiðið Starfsmannamál og mannauðsstjórnun 26. apríl að Grensásvegi 16a, 108 Reykjavík. Námskeiðið stendur í einn dag frá kl. 9 til 16 og er Gylfi Dalmann Aðalsteinsson leiðbeinandi. Með lögum um upplýsingar og samráð þurfa fyrirtæki að upplýsa trúnaðarmenn m.a. um skipulag og breytingar sem verða í rekstri fyrirtækisins. Til þess að samskipti trúnaðarmanna við starfsmannaþjónustu séu góð er mikilvægt að þeir þekki helstu áherslur sem eru í starfsmannamálum í dag. Mannauðsstjórnun er skilgreind sem hluti af stjórnun fyrirtækis og tekur til mönnunar, vinnu starfsmanna og samskipta þeirra innan fyrirtækisins og starfsloka þeirra. Markmið: Fyrir hverja: Alla talsmenn. Námskeiðið hefst kl. 9.00 miðvikudaginn 26. apríl og lýkur kl. 16.00 sama dag. Námskeiðið er 8 kennslustundir. Félagsmálaskólinn niðurgreiðir námskeiðið um 40%. Verð námskeiðsins er kr. 4.400 á þátttakanda. Kaffi og hádegisverður kostar kr. 1.100. Samtals er því kostnaður á þátttakanda kr. 5.500. |