Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

24.5.2006

Úlfljótsvatn

Hópur fólks, sem láta sig fyrirhugaðar framkvæmdir við Úlfljótsvatn varða hefur opnað bloggsíðu. Nú fer fram skoðanakönnun á afstöðu fólks til framkvæmdanna á síðunni. Haft var samband við félagið og það hvatt til þess að tjá sitt sjónarhorn vegna framkvæmdanna í gestabók síðunnar.
http://ulfljotsvatn.blog.is/blog/ulfljotsvatn/

 Afnotaréttur Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar af landi við Úlfljótsvatn sem borgarstjóri Geir Hallgrímsson afhenti félagin í afmælisgjöf árið 1969 er nú í hættu. Áform Orkuveitu og Klasa eru  að ganga freklega á afnotarétt félagsins af landinu, skipta því upp í  eignalóðir og þar af eru þær lóðir sem félaginu er boðnar aðeins örlítill hluti þess landssvæðis sem félaginu var  í upphafi afhent til afnota. 

 Fyrirhugaðar framkvæmdir eru það stórar í sniðum að það veldur verulegum áhyggjum.  Byggð með 6-700 húsum  á eignarlóðum í svokallaðri ,,frístundabyggð" er eins og  heilt bæjarfélag.

 Félagsmenn Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar  hafa í fjölda ára unnið sjálfboðaliðastarf við að byggja upp unaðsreit við Úlfljótsvatn.  Ásamt byggingu sumarhúsanna hefur verið  lögð mikil  vinna í  að rækta svæðið upp, með það þó að leiðarljósi að spilla ekki þeirri náttúrufegurð sem landsvæðið hefur upp á að bjóða .

 Við lítum á það sem forréttindi að hafa aðgang að svæði þar sem félagsmenn geta dvalið og notið óspilltrar náttúru – farið í göngu - og bátsferðir og  hvílst  í hljóðlátu umhverfi fjarri ys og þys borgarinnar.

 Félagið hefur látið í ljósi við skipulagsfulltrúa Grímsnes-og Grafningshrepps, verulegar áhyggjur sínar af  umhverfisáhrifum væntanlegra framkvæmda á svæðinu  s.s. á náttúru-og söguminjar, fuglalíf, votlendi  og  ekki síst vatnalíf vegna fráveitu frá svo stórri byggð.

 Á Aðalfundi Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar 6. mars s.l. kom fram áskorun um að Fulltrúaráð og stjórn félagsins stæðu vörð um hagsmuni félagsins og réttindi á orlofssvæði þess að Úlfljótsvatni og var sú áskorun samþykkt samhljóða.




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English