Starfsmannafélag Akranes leitaði til Starfsmannfélags Reykjavíkurborgar með þá hugmynd að félögin tvö mundu sameinast. Ekki hafa farið fram viðræður um málið nema í stjórn hjá St.Rv. en aðalfundur St.Ak. hefur veitt stjórn St.Ak. umboð til þess að hefja viðræður við stjórn Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar um hugsanlega sameiningu félaganna. Tillaga þar að lútandi var samþykkt á framhalds aðalfundi félagsins 22. maí sl. en á fundinn mætti Jakobína Þórðardóttir varaformaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og kynnti starfsemi félagsins og sat fyrir svörum.
Tillagan sem samþykkt var einróma fer orðrétt hér á eftir: "Framhalds aðalfundur Starfsmannafélags Akraness haldinn í Íþróttamiðstöðinni á Jaðarsbökkum 22. maí 2006, heimilar stjórn félagsins að hefja viðræður við Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar um hugsanlega sameiningu félaganna."