Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

27.6.2006

Miðar á Eddu Hótel

Hótelmiðar

Eins og undanfarin sumur verða niðurgreiddir miðar á Edduhótelunum fyrir félagsmenn. Verða á gistinóttu er 4.200 kr. Miðarnir verða seldir á skrifstofu Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar, Grettisgötu 89, 3. hæð,  frá og með 1. júní, og gildir hver miði fyrir tveggja manna herbergi með handlaug. Sé óskað eftir herbergi með baði verður að greiða aukalega fyrir það.

Leyfilegt er að hafa börn með sér í herbergi, hótelið útvegar dýnur án gjalds en rúmfatnað þarf fólk að koma með.  Miðarnir gilda á 15 Edduhótel viðsvegar um landið. Gestir sjá sjálfir um að bóka gistingu. Morgunverður er ekki innifalinn. Þegar keyptar eru veitingar á Edduhótelunum fá börn 0-5 ára frían mat en 6-12 ára greiða hálft gjald.

Edduhótelin eru almennt opin á tímabilinu byrjun júní til ágústloka en þó eru undantekningar á því sem félagsmönnum er bent á að kynna sér sérstaklega hjá starfsmönnum Edduhótelanna í síma 444-4000. Upplýsingar um Edduhótelin er að finna á heimasíðu www.hoteledda.is

Athugið að það er takmarkað upplag af miðum, þannig að þeir verða seldir á meðan upplag endist.  

Athugið að sum hótelanna eru aðeins með herbergjum með baði og þarf þá að greiða aukalega fyrir þau.




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English