Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

30.6.2006

Umræðufundur um þjónustutilskipun ESB

Umræðufundur um þjónustutilskipun ESB, opnun vinnumarkaðarins og stöðu verkalýðshreyfingarinnar í Austur-Evrópu. BSRB boðar til umræðufundar með tveimur reyndum forystumönnum Alþjóðasamtaka starfsmanna í almannaþjónustu, PSI (Public Services International), fimmtudaginn 6. júlí kl. 10 í húsi BSRB að Grettisgötu 89, 1. hæð.

Gestir fundarins eru þeir Alan Leather sem hefur verið ábyrgur fyrir málum heilbrigðisgeirans innan PSI og Jürgen Buxbaum, framkvæmdastjóri Evrópudeildar PSI. Fjallað verður um áhrif alþjóðavæðingar á kjör og réttindi launafólks bæði í þeim löndum sem vinnuafl streymir til og þjónustusamningar beinast að en einnig í hinum sem sjá á eftir vinnuafli sínu úr landi.  Í þessu samhengi verður horft til þjónustutilskipunar Evrópusambandsins og opnunar vinnumarkaða.

Þá verður rætt um mikilvægi þess að styrkja verkalýðshreyfinguna í Austur-Evrópu og hvaða hagsmuni verkalýðsfélög í Vestur-Evrópu og á Íslandi kunna að hafa af því, um leið og rætt verður hvað þau geta lagt af mörkum við þá uppbyggingu.

Þeir Leather og Buxbaum eru sérfræðingar í málum verkalýðshreyfingar í Austur-Evrópu og munu geta veitt mikilvæga innsýn í samspil þessara þátta sem móta Evrópu okkar tíma.

Fundurinn er opinn öllum og fer fram á ensku.




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English