Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

20.10.2006

Stefán Ólafsson með erindi á fulltrúaráðsfundi

Á fulltrúaráðsfundi 18. október sl. flutti dr.Stefán Ólafsson, erindi undir heitinu skattar og og lífskjör almennings.  Þar fór hann yfir hvernig skattbyrði þeirra tekjulægstu í þjóðfélaginu hefur aukist til muna á árunum frá 1995-2004 meðan skattbyrði tekjuhæsta hópsins hefur lækkað töluvert. Auk þess að skýra að sú kaupmáttaraukning sem hefur verið hafi komið í mun stærra hlutfalli til tekjuhæsta hópsins í samfélaginu. Fram kom að í samanburði við önnur Evrópuríki frá árunum 2003-2004, ríki fjórði mesti tekjuójöfnuðurinn á Íslandi, en á árum áður var ísland í hópi þeirra landa sem ójöfnuðirinn var hvað minnstur.
Ljóst var að erindi Stefáns vakti fundarmenn til umhugsunar og voru umræður eftir erindið miklar. Vefur Stefáns er mjög athyglisverður hér er slóð inn á hann: http://www.hi.is/~olafsson/




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English