Jólaball Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og SFR sem haldið var síðastliðinn föstudag var í alla staði vel heppnað og mikið fjör. Þar voru mættir prúðbúnir félagsmenn með börn og barnabörn tilbúin í dansinn.
Hljómsveitin Saga Klass hélt uppi fjörinu og börn og fullorðnir skemmtu sér konunglega. Jólasveinar komu í heimsókn, dönsuðu með gestum og kvöddu börnin með sælgætispoka að gjöf í lokin.