Nú um áramótin sameinaðist Starfmannafélag Akranes (St.Ak.) Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar (St.Rv.).
Sú þjónusta sem verið hefur á Akranesi heldur áfram í óbreyttri mynd, en þar starfar Oddný Erla Magnúsdóttir í 25% starfshlutfalli. Auk þess geta félagsmenn á Akranesi leitað á skrifstofu sameinaðs félags en aðalskrifstofa félagsins er að Grettisgötu 89, 3 hæð. Næstu daga og vikur verður gengið frá ýmsum bæði framkvæmdartriðum sem snúa beint að félagsmönnum og formsatriðum varðandi sameininguna. Heimasíða St.Ak mun til þess að byrja með halda sér þangað til síður hafa verið sameinaðar. www.stakakranes.com

Fulltrúar frá Akranesi fjölmenntu á afmælisfund félagsins í desember.