Félagsmenn hafa sýnt mikinn áhuga á að sækja um flugávísanir frá Iceland Express. Það er hægt að sækja um fram til 9. mars en 10. mars verða dregnir út þeir félagsmenn sem geta keypt miða á þessum afslætti. Sótt er um á netfangið strv@bsrb.is
Flugávísanir með Iceland Express
Nýlega náði Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar mjög góðum afsláttarsamningum við Iceland Express fyrir félagsmenn sína og hefur samið um verulegan afslátt af fargjöldum þar sem félagsmönnum bjóðast nú flugávísanir (gjafabréf) á kr. 11.000.- sem er 45% afsláttur af viðmiðunarfargjaldi, sem er 20.000.-. Félagsmenn sem áhuga hafa á að nýta sér þettaafsláttartilboð þurfa því að:Í boði verða 200 flugávísanir og getur hver fengið tvær eins og áður kemur fram. Ef umsóknir verða fleiri en þær flugávísanir sem í boði eru verður dregið úr umsóknunum. Umsóknarfrestur er til og með 9. mars nk. Þann 14. mars verður sendur tölvupóstur á þá sem dregnir voru út og þar með munu fylgja upplýsingar varðandi greiðslutilhögun. Greiðsla þarf að eiga sér stað innan tveggja daga, þ.e. í síðasta lagi þann 16. mars. Þeir sem sækja um símleiðis og fá úthlutað munu fá sent bréf þar um og þeir hafa ívið lengri greiðslufrest, eða til og með 21. mars.
Gildistími flugávísananna er 2 ár. Hægt er að nota þær í allar ferðir Iceland Express og gildir einu hvort um venjulegt flug eða sérstök tilboð er að ræða. Nánari upplýsingar á www.icelandexpress.is.
Verði framhald á þessari þjónustu er hugsanlegt að sérstakt úthlutunarkerfi verði tekið upp síðar og áskilur Orlofssjóður St.Rv. sér rétt til að færa alla þá sem fengið hafa úthlutað fram að því inn í það kerfi.
- A T H U G I Ð -
Þeir umsækjendur sem ekki hafa fengið tilkynningu með tölvupósti eða bréfi fyrir 23. mars munu því miður ekki hafa haft heppnina með sér að þessu sinni.