Þessa dagana er Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands að gera kjara- og þjónustukönnun, á vegum félagsins, meðal félagsmanna þar sem bæði er spurt um þjónustu félagsins og um kjaramál. Markmiðið með slíkri skoðanakönnun er að auka vitneskju um þarfir félagsmanna og að undirbúa okkur undir næstu kjarasamninga. Það verður haft samband við 1500 félagsmenn og þeir beðnir um að svara. Símhringingar til félagsmanna fóru af stað á föstudaginn 2. febrúar. Félagsmenn hafa tekið vel á móti símnhringingarfólki þegar það hefur hringt og er það nauðsynlegt til þess að vel megi takast til. Þökkum við félagsmönnum fyrir góðar viðtökur.