Nú er frestur til framboðs til stjórnarkjörs í stjórn Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar runnin út. Auk þeirra sem uppstillingarnefnd stillti upp þ.e. Jóni Inga Hilmarssyni, Ragnhildi Helgadóttur, Víglundi Rúnari Jónssyni, Þóru Sigurðardóttur og Þórdísi Eygló Sigurðardóttur, hefur Grétar Bjarnasson sem starfar hjá Skipulags- og byggingasviði boðið sig fram. Því mun fara fram kosning til stjórnar St.Rv., þar sem sex frambjóðendur eru í þau fimm sæti sem kosið er um, 22. og 23. febrúar. Kosningin verður auglýst nánar síðar.