Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

15.2.2007

Kjaramál á Akranesi

Mikil ólga hefur verið hjá félagsmönnum Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar sem starfa hjá Akraneskaupstað því það er skilningur okkar að bókun sú sem samþykkt var í bæjarráði síðastliðið vor innihéldi loforð um að bæjarstjórn Akraness myndi taka upp kjarasamninga sem í gildi eru og færa þá nær þeim kjarasamningi sem er í gildi millli Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og Reykjavíkurborgar.

Fjallað var um kjaramál á fundi bæjarstjórnar á þriðjudaginn 13. febrúar og var mættur stór hópur félagsmanna af Akranesi. Sveinn Kristinsson bæjarfulltrúi, innti meirihlutan eftir efndum á því að ganga til samninga við Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar að aflokinni sameiningu eins og hann taldi að meirihluti hafi verið hlynntur sl. vor. Meirihlutinn vísaði málinu á bæjarráðsfund sem verður haldinn í dag, fimmtudaginn 15. febrúar.

Stjórn Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar boðar nú til félagsfundar um kjaramál félagsmanna sem starfi hjá Akraneskaupstað. Fundurinn verður haldinn í íþróttamiðstöðinni á Jaðarsbökkum á Akranesi á mánudaginn 19 febrúar kl. 17.




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English