Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

16.2.2007

Tilboð í leikhús fyrir félagsmenn

Leikhópurinn Á senunni og Hafnarfjarðarleikhúsið

Abbababb! eftir Dr. Gunna

 Leikhópurinn Á senunni býður félögum í starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar tilboð á hinn frábæra og bráðfjöruga fjölskyldusöngleik Abbababb! eftir Dr. Gunna í leikstjórn Maríu Reyndal.  Abbababb! var frumsýnt í Hafnarfjarðarleikhúsinu sunnudaginn 11. febrúar við gríðarleg fagnaðarlæti frumsýningargesta.  Meðal leikara eru Jóhann G. Jóhannsson, Sigurjón Kjartansson, Álfrún Helga Örnólfsdóttir og Atli Þór Albertsson.

Söngleikurinn Abbababb! byggir á frábærri barnaplötu Gunnars Lárusar Hjálmarssonar, Dr. Gunna, sem kom út árið 1997 og seldist í þúsundum eintaka.  Meðal þekktustu laga eru Prumpulagið, Systa sjóræningi, Herra Rokk og fýlustrákurinn og Rauða hauskúpan.  Abbababb! gerist í lok sumars, einhverntímann í kringum 1975, á þeim tíma er börn léku sér úti og það að hoppa í polli var alveg á við nýjasta tölvuleikinn í dag.  Aðalkarakterarnir eru börnin í leynifélaginu Rauðu hauskúpunni, en þau eiga sér þann draum að komast á forsíðu Moggans fyrir að koma upp um hrikalega glæpi.  Stóra ógnin í lífi barnanna eru “stóru strákarnir” en þeir eru slánar sem hangsa, hlusta á diskó og eru öllum til ama.  Þegar dínamít fer að hverfa úr vinnuskúrum í nágrenninu fara dularfullir hlutir að gerast og æsispennandi atburðarrás fer í gang.  Þá reynir á Rauðu hauskúpuna, Herra Rokk og vini þeirra í hverfinu...  Nánari upplýsingar og myndir má finna á www.abbababb.is

Almennt verð á sýninguna er 2.400 krónur en ykkur býðst miðinn á kr. 2.000.

Gestir og gagnrýnendur hafa hlaðið sýninguna lofi

                “Hljómsveitin er þétt og skemmtileg og söngur kraftmikill.. ekki veikur hlekkur þar..”

                “Dansar Láru Stefánsdóttur eru bráðskemmtilegir..”

                “Abbababb! er fjörug stuðsýning sem ætti að kæta bæði börn og fullorðna..” ÞT, Mbl.

“Ég á bara til eitt orð: VÁ. Til hamingju með þetta, sýningin er snilld frá A-Ö. Ég held að ég hafi sjaldan hlegið jafn innilega á leiksýningu- og þetta er BARNALEIKRIT! Börnin mín tala ekki um annað og ótrúlega fyndið hvernig þau tala um karakterana eins og þau hafi þekkt þau í mörg ár..”  Berglind Ósk, hamingjusamur gestur

“Takk fyrir skemmtunina! Við sátum fjórar á sýningunni;  á aldrinum 3ja, 5, 10 og 60 og skemmtum okkur allar drotningarlega”  Áslaug, hamingjusamur gestur

Ef þið hafið áhuga á að nýta ykkur tilboðið, hafið þá samband við miðasölu Hafnarfjarðarleikhússins í síma 555 2222 og nefnið tilboð til starfsmannafélags Reykjavíkurborgar.  Einnig er möguleiki að fulltrúi starfsmanna fái boðsmiða til að sjá verkið og meta hvort þið hafið áhuga.  Næstu sýningar eru:

17. febrúar kl. 14.00 og 17.00,

25. febrúar kl. 17.00 

4. mars kl. 14.00 og 17.00

Leikhópurinn Á senunni / Hafnarfjarðarleikhúsið

senan@senan.is / theater@vortex.is

sími – 861 9535 / 555 2222




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English