Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

20.2.2007

Trúnaðarmannanámskeið í Munaðarnesi

Grunnnámskeið fyrir trúnað­armenn í Munaðarnesi dagana 6. og 7. mars. Dagskrá námskeiðsins verður með svipuðu sniði og undanfarin ár. Þátttakendur á námskeiðinu mæta í Munaðarnesi á hádegi þriðjudagsins 6. mars og fer rúta frá BSRB-húsinu, Grettisgötu 89, kl. 10.00. Námskeiðinu lýkur síðdegis 7. mars. Rútan fer frá Munaðarnesi kl. 17.15. Þeir sem hafa áhuga á þátttöku eru beðnir að hafa samband við skrifstofu BSRB, Grettisgötu 89, í síma 525 8300 fyrir 2. mars.

Kostnaður er 7.000 kr. á mann, sem félögin greiða fyrir sína þátttakendur og hefur þátttökugjaldið verið óbreytt undanfarin ár. Inni­falið í verðinu var gisting, matur og kostnaður vegna námskeiðsins. Ferða­kostnaður er ekki innifalinn og er mikilvægt að þegar tilkynnt er um þátttöku komi fram hversu margir fara með rútu.

Dagskrá námskeiðsins:

Þriðjudagur 6. mars:

10.00   Brottför frá Grettisgötu 89
12.00   Hádegisverður
13.00   Hlutverk trúnaðarmannsins og lagaumhverfi, Sigurður Á. Friðþjófsson
15.00   Síðdegiskaffi
15.20   Réttindi og skyldur á vinnumarkaði, Sigurður Á. Friðþjófsson
17.00   Hlé
19.30   Kvöldverður

Miðvikudagur 7. mars:

8.00     Morgunverður
9.00     Forysta BSRB, ræðir um uppbyggingu og starfssvið BSRB og aðildarfélaganna, og í víðara samhengi um gildi og hlutverk verkalýðshreyfingarinnar.
10.30    Erna Guðmundsdóttir lögfræðingur BSRB: Túlkun kjarasamninga o.fl.
12.00   Hádegisverður
13.00   Réttum úr kútnum og heyrumst!
Kristín Á. Ólafsdóttir, leikari, leiðbeinir um tjáningu og stýrir æfingum þátttakenda
15.00   Síðdegiskaffi.
15.20   Framhald á námsk. Kristínar
17.00   Brottför

Þeir sem hafa fengið Handbók trúnaðarmannsins eru beðnir að taka hana með.




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English