Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

12.3.2007

Aðalfundur St.Rv.

Aðalfundur var haldinn í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar laugardaginn 10. mars kl. 13. Auk venjubundinna aðalfundarstarfa og lagabreytinga voru samþykktar þrjár ályktanir sem voru bornar fram af stjórn félagsins.

Ályktun I
Aðalfundur St.Rv. haldinn 10. mars 2007 lýsir vonbrigðum sínum með þá afstöðu bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar að standa ekki við þau fyrirheit er gefin voru í tengslum við samruna St.Rv. og St.Ak.
Fundurinn skorar á bæjarstjórnina að endurskoða þá afstöðu sína.

Aðalfundur St.Rv. býður alla nýja félagsmenn hjartanlega velkomna og væntir þess að  stjórn félagins vinni ötullega, hér eftir sem hingað til, að bættum hag félagsmanna og standi vörð um réttindi þeirra og kjör. 

Ályktun II
Aðalfundur Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar, haldinn 10. mars 2007, hvetur almenning, fjölmiðla og aðra þá aðila sem safna saman upplýsingum um verðlag, það er Neytendasamtökin, Neytendastofu, ASÍ og Hagstofu, til að fylgjast náið með verði á matvælum nú í kjölfar lækkunar virðisaukaskatts 1. mars s.l.

Fundurinn ítrekar nauðsyn á samstarfi allra þessara aðila þannig að virkt eftirlit og stöðugt upplýsingastreymi komist á þeirra á milli með þátttöku fjölmiðla.

Fundurinn skorar jafnframt á almenning að halda vöku sinni og láta ekki hafa sig að féþúfu.

Ályktun III
Aðalfundur Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar, haldinn 10. mars 2007, leggur áherslu á að hagsmunir erlends og innlends verkafólks á Íslandi fara saman.

Nauðsynlegt er að tryggja að aðbúnaður og kjör erlendra starfsmanna á Íslandi séu ekki lakari en Íslendinga og er það sameiginleg ábyrgð stjórnvalda og stéttarfélaga að standa vörð um það.

Fundurinn leggur því mikla áherslu á að erlent starfsfólk gangi í stéttarfélög og nýti sér þjónustu þeirra og samstöðuna innan þeirra. Það er grundvallaratriði fyrir alla launþega að ekki sé hvikað frá þeim kjörum sem um hefur verið samið. Hvetur fundurinn því stjórnvöld, fræðslustofnanir, heilbrigðisstofnanir, atvinnurekendur og aðra þá aðila sem erlent verkafólk hefur samband við, að benda því á þá kosti sem stéttarfélagsaðild hefur í för með sér.




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English