Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar í samstarfi við SFR - stéttarfélag og Hitt húsið halda fund fyrir ungt fólk í Tjarnarbíói á laugardaginn 28. apríl kl. 16-18. Á fundinum fær ungt fólk á aldrinum 16-25 að spyrja úr sal fulltrúa frá öllum framboðum spjörunum úr, en einnig er hvatt til að senda spurningar til frambjóðenda bæði fyrir fund og á meðan honum stendur á netfangið ungtfolkkys@gmail.com.
Fundarstjórar verða þau Halla Gunnarsdóttir og Sölvi Tryggvason.
Fundurinn verður tekinn upp og hann sendur út á netinu á slóðinni http://straumur.nyherji.is/rvk.asp.
Fulltrúar flokkanna verða; Guðjón Ólafur Jónsson frá Framsóknarflokki, Valdimar Leó Friðriksson frá Frjálslynda flokki, Margrét Sverrisdóttir frá Íslandshreyfingunni, Ágúst Ólafur Ágústsson frá Samfylkingunni, Birgir Ármannsson frá Sjálfstæðisflokki, Katrín Jakobsdóttir frá Vinstri grænum.
Auglýsing á pdf formi til að prenta út .