Ég styð öfluga almannaþjónustu fyrir alla!
Taktu þátt í undirskriftaherferð evrópskrar verkalýðshreyfingar til eflingar almannaþjónustunni!
Leiðbeiningar. Þú smellir hér og þá blasa við þrír gluggar:
Í þann fyrsta skrifar þú nafn þitt
Í þann næsta tölvupóstfangið þitt
Fyrir land velur þú “Iceland”
Þú færð síðan sendan tölvupóst til staðfestingar undirskriftinni, opnar hann og smellir á viðeigandi línu.
Almenningur á Íslandi og í Evrópu hefur sýnt í skoðanakönnunum að hann kann að meta þá almannaþjónustu sem ríki og sveitarfélög veita og vill efla hana, öllum til hagsbóta. Öflug samfélagsþjónusta er nauðsynleg grunnstoð í sérhverju þjóðfélagi, hún treystir innviði þess og stuðlar að velferð og jöfnuði. Hún verður jafnan að vera eins góð og nokkur kostur er á og öllum aðgengileg.
Sótt er að samfélagsþjónustunni af einkafyrirtækjum sem vilja í vaxandi mæli hasla sér völl á vettvangi heilbrigðismála, menntamála, raforkumála - svo fátt eitt sé nefnt af þeim verkefnum sem opinberir aðilar hafa sinnt og byggt upp að stærstum hluta. Einkafyrirtæki hafa hins vegar aðra hagsmuni að leiðarljósi en opinberir aðilar. Þau byggja að sjálfsögðu allan rekstur á hagnaðarsjónarmiðum og þjóna þar af leiðandi sjaldnast hagsmunum almennings þegar almannaþjónusta er annars vegar. Því miður hefur sú löggjöf, sem sett hefur verið til að sporna gegn helstu ókostum og skaðsemi óheftrar samkeppni, verið yfirfærð í síauknum mæli á hina opinberu þjónustu. Um leið og þessi löggjöf hefur, ásamt með annarri, staðið framþróun samfélagsþjónustunnar fyrir þrifum þá hefur hún auðveldað einkafyrirtækjum að taka yfir opinberan rekstur.
Í aðildarríkjum Evrópusambandsins blasir við almannaþjónustunni sama ógn og hér á landi. Því stendur verkalýðshreyfingin í Evrópu sameinuð fyrir undirskriftaherferð til varnar og eflingar samfélagsþjónustunni. Er þess krafist að framkvæmdanefnd Evrópusambandsins leggi fram tillögu að nýrri löggjöf um almannaþjónustu sem eykur sjálfstæði hennar og sveigjanleika.
Evrópusamband starfsfólks í almannaþjónustu, EPSU, og Evrópusamtök verkalýðsfélaga, ETUC, standa sameiginlega að undirskriftaherferðinni sem við viljum biðja félaga okkar í BSRB, sem og aðra landsmenn, að taka þátt í og skrifa undir. Sem aðilar að Evrópska efnahagssvæðinu taka Íslendingar upp megnið af löggjöf Evrópusambandsins og því varðar þessi undirskriftasöfnun hagsmuni okkar beint! Hér fara hagsmunir almannaþjónustunnar á Íslandi og í Evrópu saman.
Markmið ETUC er að safna milljón undirskriftum og á söfnuninni að vera lokið um 20. maí! Við hvetjum alla til að skrifa undir!
Hér fylgir þýðing á enskum texta á síðu ETUC sem opnast þegar þú skrifar undir:
Öflug almannaþjónusta öllum til handa!
Saman krefjumst við almannaþjónustu sem raunverulega sinnir þörfum almennings og við skorum á framkvæmdanefnd Evrópusambandsins að hún leggi fram drög að evrópskri löggjöf um almannaþjónustu.
Ég vil skrifa undir áskorunina!
Almannaþjónusta er nauðsynleg fyrir félagslega og efnahagslega samþættingu Evrópu. Sú þjónusta verður að vera öflug og öllum aðgengileg. Fram að þessu hafa einu valkostirnir sem boðið hefur verið upp á til að þróa almannaþjónustu verið einkavæðing eða markaðsvæðing (t.d. í orkumálum og póst- og fjarskiptamálum). Það er kominn tími til að finna aðrar lausnir!
Þess vegna skorum við á framkvæmdanefnd Evrópusambandsins að leggja fram drög evrópskri löggjöf um almannaþjónustu sem miðar að eftirfarandi:
-Að veita forgang þeim almannahagsmunum sem felast í almannaþjónustu
-að tryggja að allir hafi aðgang að almannaþjónustu
-að styrkja almannaþjónustu til að tryggja grundvallaréttindi borgaranna