Hæstiréttur hefur dæmt uppsögn tölvunarfræðingsins Salmann Tamimi ólöglega en Landspítalinn háskólasjúkrahús sagði honum upp vegna skipulagsbreytinga. Áður hafði héraðsdómur dæmt uppsögnina löglega. Salmann Tamimi er félagsmaður í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar.
Tamimi hóf störf sem verkefnastjóri hjá upplýsinga- og tölvudeild Sjúkrahúss Reykjavíkur í mars 1996. Við sameiningu Sjúkrahúss Reykjavíkur og Landspítalans árið 2001 tók hann við starfi sem verkefnastjóri á upplýsingatæknisviði stefnda. Hann var talsvert frá störfum vegna vinnuslyss í ágúst 2005 og enn talinn óvinnufær í september 2006. Starfsmönnum sviðsins var kynnt stefnumótun og nýtt skipulag þess á fundi 6. september 2006 og liggur fyrir ýtarleg greinargerð þar sem breytingum er lýst. Með bréfi 28. sama mánaðar var áfrýjanda tilkynnt að ákveðið hefði verið að leggja niður starf hans vegna framangreindra skipulagsbreytinga. Í rökstuðningi fyrir uppsögninni, sem veittur var 10. október sama ár að ósk áfrýjanda, kom fram að helstu verkefni hans hafi snúið að svokölluðum Notes kerfum stefnda. Mjög hafi dregið úr verkefnum þeim, sem hann hafi haft með höndum, þar sem stefnt hafi verið að því að skipta um tölvupóstkerfi á spítalanum, hætta notkun á Lotus Notes og nota þess í stað annað kerfi. Ákveðið hafi verið að þau verkefni sem hann hafi sinnt skyldu færast og dreifast til tækniþjónustu spítalans, en þeir sem séð hafi um Notes póstkerfið hafi tekið að sér rekstur þessara kerfa. Með nýju skipulagi, þar sem aðeins yrði ein hugbúnaðardeild í stað þriggja, væri stefnt að hagkvæmari nýtingu á starfsfólki, auk þess sem gert væri ráð fyrir að meira yrði leitað til aðkeyptra verktaka. Þessi hagræðing og skipulagsbreyting í rekstri upplýsingatæknisviðs hafi leitt til þess að leggja þurfi starf hans þar niður. Tamimi undi ekki þessari ákvörðun og höfðaði mál 31. október 2006.
Í dómnum segir orðrétt: „Stefndi hefur lýst því að ákvörðun um að leggja niður starf áfrýjanda hafi ekki byggst á vali milli manna, frammistöðu þeirra eða hæfileikum, heldur einungis á því að verkefni hans rúmuðust ekki innan nýs skipulags. Hefur stefndi einkum vísað til þess að helstu verkefni áfrýjanda hafi snúið að Notes tölvukerfum og að frekari þróun þeirra hjá stefnda hafi verið stöðvuð. Af starfslýsingu áfrýjanda, framburði vitna og öðrum gögnum málsins verður ekki ráðið að starfsvið hans hafi verið einskorðað við þessi kerfi, heldur liggur þvert á móti fyrir að hann hafi á starfstíma sínum haft margvísleg önnur verkefni með höndum. Áfrýjandi hefur því sýnt nægilega fram á að hann hafi hvorki verið ráðinn til að starfa við né starf hans verið einskorðað við þau Notes kerfi, sem stefndi bar við í rökstuðningi fyrir uppsögninni að hætt yrði að nota. Af þessum sökum var stefnda skylt að leggja frekara mat á hæfni áfrýjanda áður en tekin var ákvörðun um að segja honum upp störfum. Óumdeilt er að slíkt mat fór ekki fram og var því ekki staðið réttilega að ákvörðun stefnda um að segja áfrýjanda upp störfum."
Niðurstaða dómsins var því eftirfarandi: „Viðurkennt er að stefnda, Landspítala-háskólasjúkrahúsi, hafi verið óheimilt að segja áfrýjanda, Salmann Tamimi, upp störfum á þeim grunni, sem gert var með bréfi stefnda 28. september 2006. Stefndi greiði áfrýjanda málskostnað í héraði og fyrir Hæstarétti, samtals 750.000 krónur."